Víkurfréttir - 12.11.1987, Blaðsíða 4
4 Fimmtudagur 12. nóvember 1987
Messur og
safnaðarstörf
KEFLAVÍKURKIRKJA:
Laugardagur 14. nóv.:
Jaröarför Bjarna Ingvars Kjart-
anssonar, Garðavegi 14, Kefla-
vík, fer fram kl. 14
Sunnudagur 15. nóv.:
Sunnudagaskóli kl. 11. Munið
skólabílinn.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.
Vænst er þátttöku fermingar-
barna og foreldra þeirra.
Mánudagur 16. nóv.:
Laufabrauðsbakstur Systra- og
bræðrafélagsins í Kirkjulundi
kl. 20. - Allir velkomnir.
Sóknarprestur
INNRI-NJARÐVÍKUR-
KIRKJA:
Barnastarf í Safnaðarheimilinu
kl. 11.
Sóknarprestur
YTRI-NJARÐVÍKUR-
KIRKJA:
Messa og barnastarf kl. 11.
Barnakórinn syngur.
Sóknarprestur
HVALSNES-
SÖFNUÐUR:
Sunnudagaskólinn er kl. 14 í
Grunnskólanum í Sandgerði.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
GLÓÐIN BREYTIR UM SVIP
Miklar breytingar hafa verið gerðar á aðal afgreiðslusal veitingahússins Glóðarinnar i
Keflavík. Er salurinn nú mun léttari yfir að sjá en áður og ferskleiki yfir öllu. Ljósm.: cpj.
Alþjóðlegt skákmót í Njarðvík
ÚTSKÁLAKIRKJA:
Sunnudagaskólinn er kl. 11.
Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson
GRINDAVÍKUR-
KIRKJA:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.
Foreldrar eru hvattirtil að koma
með börnum sínum.
Sóknarprestur
Um síðustu helgi hófst al-
þjóðlegt skákmót í félags-
heimilinu Stapa í Njarðvík
og mun standa til 20. nóv-
ember. Mótið er haldið í
samvinnu tímaritsins Skák-
ar, Keflavíkurbæjar og
Njarðvíkurbæjar. Er mót
þetta hið áttunda í röð al-
þjóðlegra skákmóta sem
tímaritið Skák heldur í sam-
vinnu við sveitarfélög vítt og
breitt um landið.
Hafa Suðurnesjamenn
verið í fararbroddi um skák-
mótahald utan Reykjavíkur.
Fyrsta alþjóðlega mótið á
landsbyggðinni var haldið í
Grindavík og fyrsta helgar-
skákmótið var haldið í Kefla-
vík, en þau eru nú orðin 33
talsins. Af þeim sex mönnum
sem skipa framkvæmda-
stjórn mótsins eru fjórir af
Suðurnesjum, þ.e. Eiríkur
Alexandersson, fram-
Hryllings-
sinfónían í
Félags-
bíói
kvæmdastjóri, Jón Böðvars-
son, ritstjóri, Oddur Einars-
son, bæjarstjóri og Páll Jóns-
son, sparisjóðsstjóri.
I þessu móti eru saman
komnir flestir efnilegustu
skákmenn landsins, þ.á.m.
Björgvin Jónsson, Njarðvík,
sem aðeins vantaði hálfan
vinning á síðasta móti, sem
haldið var í Olafsvík, til að ná
sínum fyrsta áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli. Auk
innlendra skákmanna keppa
hér útlendingar sem eru að
vinna sér inn titla. En mót
þetta er í 5. styrkleikaflokki
og þarf 7 vinninga úr 11
skákum til að fá meistara-
áfanga.
Miðvikudaginn 18. nóv. verð-
ur sýnd í Félagsbíói kvikmynd-
in rússneska „Come and see“
(Komið og sjáið). Hún greinir
frá ungum dreng á mótunar-
skeiðinu, sem upplifirhörmung-
ar síðari heimstyrjaldarinnar
sem eitt logandi helvíti á jörðu.
„Come and see“ var sýnd á ný-
afstaðinni kvikmyndahátíð við
mikið lof, jafnt áhorfenda sem
gagnrýnenda og var myndin tal-
in sú besta á hátíðinni. „Hryll-
ingssinfónía sem neglir mann
niður í sætið“ varð einum að
orði.
Sýningin er á vegum Nem-
endafélags Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og hefst stundvís-
lega kl. i6:30. Miðaverð er kr.
100.
Kabarett:
„Lífsskákin“ I Garðinum
Litla leikféla^ið í Garði frumsýnirá laui>ardagskvöld kabarettinn ,,Lífsskákin“, sem
settur er saman af Iluldu Ólafsdóttur og félögum Litla leikfélagsins.
Lífsskákin fjallar um, eins og nafnið bendir til, líf nokkurra fjölskyldna. I»á er fléttað
inn í þetta söng og léttu „túrhesta“-gríni.
Sýningin á laugardagskvöldið hefst klukkan 21 og miðapantanir eru í síma 27133 frá
kl. 18 sýningardag.
Ljósm.: hbb.
Mótið hefst á virkum dög-
um kl. 16 en kl. 14 á laugar-
dögum og sunnudögum.
Keppendur hafa 2 klukku-
stundir fyrir 40 leiki og síðan
í beinu framhaldi 1 klst. fyrir Kristínu í Njarðvík kl. 23
20 leiki. Biðskákir verða síð- virka daga og kl. 21 um helg-
an tefidar í borðsal Hótels ar.
Jólarósasala
Systrafélag Njarðvíkur-
kirkju gengst fyrir sölu á úr-
vals jólarósum í Njarðvíkur-
kirkju á morgun, föstudag,
milli kl. 13 og 18. Vonast fél-
agskonur til að sem flestir
komi og styrki þar með gott
málefni.
Reynis-
menn með
happdrætti
Knattspyrnufélagið Reynir
hefur sett afstað happdrætti til
styrktar starfsemi sinni. Vinn-
ingar eru tveir, bifreiðaf gerð-
inni Daihatsu Charade XL
árg. 1988 að verðmæti 375 þús,
og utanlandsferð með Sam-
vinnuferðum-Landsýn að
verðmæti 30 þús. kr.
Upplag miða er 1000 stk.
Dregið verður hjá bæjarfóget-
anum í Keflavik 15. desembcr.
Töfrafólk:
Önnur
sýning
á morgun
Á morgun kl. 18 verðurönnur
fjölskyldusýning á ,,The
greatest MAGIC SHOW“ í Fé-
lagsbíói í Keflavík. Á þessari
sýningu koma m.a. fram hugs-
analesari, vasaþjófur, sjón-
hverfingamaður, sirkusdama og
trúðar. Þetta er fólk frá sirkus-
flokknum SIRKUS ARENA,
nýir fjöllistamenn.
Sýningin á mánudagskvöld
tókst vel, után þess hvað áhorf-
endur vantaði. Þess vegna var
ákveðið að halda aðra sýningu á
morgun kl. 18 fyrir alla fjöl-
skylduna, og vonaðist vasaþjóf-
urinn í samtali við Víkur-fréttir,
að hann fengi að stela af „fullu
húsi“.
Suðurnesjamenn, látið úr
standa fram úr ermum, ég meina
hendur, og látið sjá ykkur í
Félagsbíói á morgun kl. 18.
mun
jutUt