Víkurfréttir - 12.11.1987, Blaðsíða 11
V/KUf?
ftOUi
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 11
F’HfH nw [ f
■ms
§£ . Tulflfníf'* J
á
ypíi
4-5 þús. manns komu
í afmæliskaffið
Þúsundir Suðurnesjamanna þáðu kaffi
og afmælistertu, auk þess sem börnin fengu
svaladrykk og súkkulaði, í tilefni 80 ára
afmælis Sparisjóðsins í Keflavík sl. föstu-
dag.
Var afmælisins minnst með þessum hætti
í öllum afgreiðslum stofnunarinnar. Er
talið að 4-5 þúsund manns hafi heimsótt
Sparisjóðinn þennan dag í þeim fjórum
byggðarlögum sem stofnunin hefur að-
setur.
Sparisjóðurinn bauð ekki aðeins gest-
um og gangandi upp á veitingar, því öllum
dagheimilum og íeikskólum, svo og elli-
hcimilum var sendur glaðningur.
Áfram með nýbygginguna:
Flutt inn í húsið
innan tveggja ára
Stjórn Sparisjóðsins hefur
ákveðið að hefja fram-
kvæmdir að nýju eftir nokk-
urt hlé, í nýbyggingu Spari-
sjóðsins við Tjarnargölu í
Keflavík.
Næsta vor verður gengið
frá húsinu að utan. Tómas
Tómasson og Páll Jónsson,
sparisjóðsstjórar, sögðu í
samtali við Víkur-fréttir, að
markmiðið væri að flytja í
húsið innan tveggja ára.
Bygging hússins hófst 1. sept.
1981 en framkvæmdir hafa
legið niðri nú í tvö ár. A þeim
tíma hefur Sparisjóðurinn
einbeitt sér að því að bæta
húsnæðisvandamál í Njarð-
vík og opnað útibú í Grinda-
vík.
Útibússtjóri ráðinn
í Grindavík:
„Bjart-
sýnn
á fram-
tíðina“
- segir Margeir
Guðmundsson
Margeir Guðmundsson, 27
ára Grindvíkingur, hefur ver-
ið ráðinn útibússtjóri Spuri-
sjóðsins í Grindavík.
Margeir er innfæddur
Grindvíkingur og lauk sl.
suinar prófi í viðskiptafræði
Irá Rockford College í Banda-
ríkjunuin. Hann lauk stú-
dentsprófi frá Fjölbrautaskóia
Suðurnesja 1980. Margeir er
ekki alveg ókunnugur banka-
störfum, því eftir stúdents-
prófið starfaði hann í Lands-
bankanum i 3 ár áður en hann
hélt út til frekara náms. En
hvernig tilílnning er það að
hafa unnið hjá Landsbankan-
um og vera að hefja störf hjá
Sparisjóðnum sent útibús-
stjóri?
„Tilfinningin er ágæt og
starfið leggst vel i mig. Það er
niikið að læra svona í byrjun,
en ég hlakka til að takast á við
verkefnið. Nú, með Lands-
bankann vil ég segja, að allir
hafa gott af samkeppni.
Grindvtkingar geta nú valið á
milli tveggja stofnana og það
er tíl góðs. Sparisjóðnum í
Grindavík hefur verið vel tekið
af bæjarbúum, þannig að ég er
bjartsýnn á framtíðina", sagði
nýráðinn útibússtjóri, Margeir
Guðmundsson.