Víkurfréttir - 12.11.1987, Qupperneq 15
muR
Y{um\
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 15
Kjaramalin - Erna Gunnarsdóttir:
ALLIR SEM EINN
Tillaga flutt á 13. þingi Verkamannasambands íslands
Við lifum nú eitt mesta góðæri
Islandssögunnaren samt höfum
við aldrei verið skuldugri. Des-
embersamningarnir bera góðær-
inu slæm vitni. Þrátt fyrir mikla
baráttu var ekki hægt að þoka
verkafólki ofar en í 26.500 kr. á
mán.
Vinnuveitendur töldu að bog-
inn væri spenntur til hins ítrasta,
alveg útilokað að hækka launin
meira, annars væri þjóðarbúið
allt í voða. Verðbólga og vísitala
upp og gengið fellt. Og við, auð-
trúa sálir, skrifuðum undir, af
ábyrgð.
En hvað gerist svo? Hver
þrýstihópurinn af öðrum kom
fram og sótti miklarlaunahækk-
anir, frá 20-50%, með hótunum
og verkföllum. Ríkið samdi við
sína menn. Fólkið fékk nánast
það sem það fór fram á og eng-
um datt í hug að nefna vísitölu
og verðbólgu.
Það sent vakti reiði manna var
að tiltekinn hópur fólks ntarg-
faldaði verkamannalaunin með
3. Sem sagt, okkur ber þrisvar
sinnum hærri laun en verka-
manninum.
Ef þetta er ekki siðleysi, hvað
er það þá? Hvernig getur ein
launastétt leyft sér að meta störf
annarrar á þennan hátt. Og ekki
nóg með það. Hagfræðingar
Verkamannasambandsins og
vinnuveitenda voru helst á því
að þetta væri nú allt saman gott
og blessað. Svona hefði það
verið í Mesópótamíu fyrir 3000
árum, sami launamismunurinn.
(Hvernig í ósköpunum sem þeir
vita það nú). Og þess vegna væri
allt í lagi að hafa það svona
áfram.
Þessi rökfærsla er nú ekki
nema til þess að hlæja að.
Hvernig haldið þið að lífið á
jörðinni væri í dag ef við værum
á sama þróunar- og menningar-
stigi og Mesópótar fyrir 3000 ár-
um?
Afmæli
30 ára verður á morgun
(föstudag 13. nóvember) frú
Elísabet þrifatæknir. Hún
tekur á móti gestum sama
dag milli kl. 7 og 8 að heimili
sínu, Framsóknargötunni,
Sandgerði.
\fiKun
\p€ÍUt
- blað sem lesið er
upp til agna.
Að mati spekinganna hefur
öll framþróun árþúsúndanna
mátt fram ganga, önnur en laun
verkafólks. Þau eiga að vera eins
metjn gegnum þúsundir ára. Við
hljótum að eiga svör við þessu í
dag.
Vikjum aðeins að góðærinu.
Góðæri fyrir hverja? Góðærið er
ekki hjá verkamanninum með
30 þús. kr. mánaðarlaunin. Og
ráðamenn gera mikið úr aukn-
um kaupmætti. Ekki finnur
verkamaðurinn fyrir honum.
Allt hefur hækkað. vörur og
þjónusta. Þeir hafa aukinn
kaupmátt sem háu launin hafa
og þeir yfirborguðu.
Ostjórn eða stjórnleysi yfir-
valda gera það að verkum að er-
lendir peningar í milljörðum
króna hafa streymt inn í landið
og valdið mikilli þenslu, sérstak-
lega í þjónustugreinunum. Og
nú er svo komið að frystihúsin
standa hálfmönnuð eða nánast
tóm víða á landinu. Enda kemur
það af sjálfu sér að ef fólk getur
valið um störf, fer það síðast í
fiskinn. Fólk segir: Það er ekk-
ert aðlaðandi við fískvinnu,
nema ef það væri kaupið.
Þetta verða menn að gera sér
grein fyrir og ég held að það þýði
ekki lengur að bjóða fískvinnsl-
ufólki þessi lágu laun. Það veit
að það er í góðri stöðu til þess að
fara fram á góð laun.
Hverjir eiga að vinna fyrir
gjaldeyri þjóðarinnar, sem á að
standa straum af allri lánasúp-
unni, eyðslunni og óráðsíunni?
Eru það ekki sjómenn og fisk-
verkafólk?
Flest fólk í fískinum segir:
Burt með vinnuþrældóminn í
fiskvinnunni. Burt með bónus-
inn. En krafan er gott, mann-
sæmandi tímakaup. eins og þetta
fólk á skilið. Maður skal ætla að
auðvelt verði að sækja umtals-
verðar hækkanir nú í komandi
samningum. Fiskvinnslan
kaupir fiskinn á fískmörkuðun-
um á ofurverði oft á tíðum.
Þorskinn upp í 70 kr. kg., ýsuna
yfír 100 kr. og jafnvel löngu og
hlýra á 40 kr. Einnig bjóða þeir í
erlent vinnuafl og borga fyrir
það ferðir og uppihald.
Nú þarf allt fiskvinnslufólk á
landinu að sameinast um að ná
sínu kaupi og kjörum upp.
Við höfum ekki efni á neinu
sundurlyndi um smámunina, en
standa saman sem einn rnaður.
Allir vita að samtakamáttur-
inn er sterkasta aflið. Við sáum
það í samningunum í vetur.
Margar launastéttir börðu fram
sínar kröfur með samstöðu.
Því segi ég: Allir sem einn.
Erna Gunnarsdóttir
Byggöasafn Suðurnesja
rii n iii ii iíi
Opið á laugardögum kl. 14-16.
Aörir tímar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
ÖLL EFNI TIL
BÍLAMÁLUNAR
Notum CENTARI gæðaefni
Bílarétting
Grófin 20A - Keflavik
Simi 13844
SÖLUUMBOÐ
Sendibílar
S. 14141
&i)yU
- TILBUNIR í ALLAN FLUTNING - ~
V VÍKURHUGBÚNAÐUR
HEILDARLAUSN
UM
HELGINA
Sýning á tölvum og hugbúnaði
verður haldin í Víkurhugbúnaði
um helgina.
Laugardag 14. nóvember
kl. 10.00 - 18.00
Sunnudag 15. nóvember
VÍKURHUGBÚNAÐUR KYNNIR
Ráð - Sölukerfi
Ráð - Viðskiptamannakerfi
Ráð - Lagerkerfi
Ráð - Fjárhagsbókhald
Ráð - Launabókhald
Ráð - Víxlabókhald
kl. 10.00 - 18.00
Víkurhugbúnaður mun kynna
viðskiptahugbúnað fyrir stærri
sem minni fyrirtæki i hvers
konar verslun og iðnaði.
Vikurhugbúnaður hefur gert samn-
ing við tölvufyrirtæki í Reykjavík um
verðlækkun á tölvum hl
Suðurnesjamanna þessa helgi.
Leysum vanda um helgina - lítum á
heildarlausnina hjá Vikurhugbúnaði.
V VÍKURHUGBÚNAÐUR
Hafnamnh ■ _ Vnflouik
Hafnargötu 16 - Keflavík