Víkurfréttir - 12.11.1987, Síða 21
NÝ NÁMSKEIÐ
hjá BIRNU
að hefjast
í íþrótta-
húsinu
í Njarðvík.
Innritun á
staðnum
á þriðjudögum
og fimmtudögum
kl. 17.15-21.15,
eða í síma
91-37379.
Birna
Magnúsdóttir
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 21
Naumur
sigur á KR
UMFN vann nauman sigurá
KR-ingum í Hagaskóla sl.
þriðjudagskvöld, 89:85, eftir að
staðan í hálíleik hafði verið
44:43 fyrir UMFN.
Njarðvíkingar þurftu að hafa
mikið fyrir þessum sigri og KR-
ingar veittu þeim harða mót-
spyrnu. Stigahæstir voru Jó-
hannes Kristbjörnsson með 25
stig og Valur Ingimundarson
með 23.
Njarðvíkingar unnu ótrú-
lega léttan sigur á Þór á Akur-
eyri sl. föstudag. Lokatölur
urðu 111 stig gegn 80.
Allir leikmenn UMFN
fengu að spjara sig og skoruðu
allir stig. Stigahæstur var Val-
ur Ingimundarson með 23 stig,
Jóhannes og Isak skoruðu 22
stig hvor.
Naumur
sigur
ÍBK gegn
UMFG
IBK vann UMFG með naum-
induni i úrvalsdeildinni í körfu í
Iþróttahúsinu í Keflavík sl.
fimmtudag, 80:73.
Barátta Grindvíkinga kom
Keflvíkingum greinilega á óvart
og var ekki laust við að það færi
smá taugatitringur um leik-
menn og stuðningsmenn íliK,
þegar Grindvíkingar leiddu í
leikhléi, 45:44.
Seinni hálfleikur varjafn og
spennandi eins og sá fyrri, en
það var svo á lokamínútunum
sem leikreynsla Keflvíkinga
kom í Ijós og þeir náðu að
merja sigur í þessum leik.
Bestir hjá Keflvíkingum voru
þeir Jón Kr. og Guðjón Skúla-
son. Sem fyrr segir börðust
Grindvíkingar gífurlega vel í
þessum leik og með sams kon-
ar baráttu í þeim leikjum sem
eftir eru ættu þeir að eiga auð-
velt með að tryggja sér áfram-
haldandi veru í úrvalsdeild-
inni að ári. Besti maður þeirra
var Guðmundur Bragason.
Stig ÍBK: Guðjón Skúla 19, Jón
Kr. 18, Hreinn Þorkels 14, Sigurð-
ur Ingimundar 8, Matti O. 6,
Magnús Guðfinns, Falur Harðar-
son og Olafur Gottskálksson 4, og
Brynjar Harðarson 3.
Stig UMFG: Guðmundur
Bragason 21, Hjálmar Hallgríms-
son 16, Rúnar Arnason 13, Stein-
þór Helgason 10, Eyjólfur Guð-
iaugsson 7, Guðlaugur Jónsson 6.
Handbolti - 2. deild:
UMFN OG REYNIR
LEIKA Á LAUGARDAG
Kvennakarfa:
27 stig skildu á
milli í lokin
Öruggur sigur ÍBK á Grindvíkingum
Keflavíkurstúlkurnar sigruðu
Grindavík örugglega er liðin átt-
ust við í íþróttahúsinu í Keflavíká
sunnudag, 62:35. Sigur ÍBK var
aldrei í hættu. Þær tóku leikinn
strax í sínar hendur og höfðu 10
stiga forskot i leikhléi, 26:16.
I síðari hálfleik komu Grinda-
víkurstúlkurnar ákveðnar til
leiks og náðu að minnka mun-
inn í fjögur stig, 26:22, en IBK
hleypti þeirn ekki nær, keyrðu
upp hraðann og sigruðu með 27
stiga mun, 62:35.
Keflavíkurliðið verður örugg-
lega mjög sterkt í deildinni í vet-
ur, en í þessum leik vantaði
Kristínu Blöndal og einnig var
Auður Rafnsdóttir fjarri góðu
gamni vegna meiðsla. Þá gekk
Anna María ekki heil til skógar
vegna meiðsla í læri, en þetta
virtist ekki há liðinu mikið í
þessum leik.
Stig ÍBK: Anna María 23,
Katrín 12, Björg 11, Margrét St. 6,
Kristín 4, Bylgja, Eva og Svandís
2.
Stig UMFG: Marta 15, Ragn-
heiður og Sigríður 6, Svana 4,
Guðný og Valgerður 2.
Svana reynir körfuskot, umkringd Keflvíkingum.
En hvað segja Njarðvíking-
ar? „Við erum hvergi smeykir.
Reynir er óútreiknanlegt lið en
við vinnum þá á laugardaginn.
Liðið hcfur öðlast sjálfstraust-
ið á ný og við ætlum okkur að
stöðva sigurgöngu Reynis-
manna," sagði Erlingur Hann-
esson, liðsstjóri UMFN, í sam-
tali við Víkurfréttir.
Eins og fyrr segir verður
leikurinn í íþróttahúsinu í
Njarðvík á laugardaginn og
hefst kl. 14..
„Við erum í hörku formi
þessa dagana og ætlum okkur
ekkert annað en sigur í Njarð-
vík og þar nteð selja félagsmet
með því að vinna 5 leiki í röð.
Njarðvíkingum hefurekki geng-
ið vel þrátt fvrir sigur á HK og
revnsla okkar mun vega þyngra
í_ þessum leik,“ sagði Kristinn
Ármannsson, Rcynismaður, að-
spurður um leik þeirra við
UMFN í Njarðvík i 2. deildinni i
handbolta n.k. laugardag.
Hvor þeirra fagnar sigri á morgun?
Stórleikur í úrvalsdeildinni [
á morgun — UMFN-ÍBK: |
„Fyllum
gryfjuna“
„Hef irú á að 700-800 manns mæti á leikinn“,
- segir Hilmar Hafsteinsson, formaður UMFN
- „Eigum harma að hefna“
- segir Gunnar Þorvarðarson, þjálfari ÍBK
- „Keflvíkingar stöðva okkur ekki“
- segir Valur Ingimundarson, þjálfari UMFN
Stórieikur fvrri umferðar í úr-
valsdcildinni í körfuholta verðurí
Ijónagryfjunni í Njarðvík á morg-
un, fiistudag, en þá leiða saman
hesta sína UMFN og ÍBK, tvö
efstu lið deildarinnar.
„Eg hef trú á því að þetta
verði skemmtilegur leikur eins
og alltaf þegar liðin mætast. Við
ætlum okkur að fyila gryíjuna
og ég hef trú á því að það mæti 7-
800 manns," sagði Hilmar Huf-
steinsson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar UMFN. En hvað
segja þjálfararnir? Gunnar Þor-
varðarson, ÍBK: „Við eigum
harma að hefna síðan þeir stálu
sigri af okkur í Reykjanesmót-
inu þegar þeir unnu okkur með
einu stigi. Þetta verður örugg-
lega hörkuleikur en eins og
alltaf ætlum við okkur ekkert
annað en sigur.“ Valur Ingi-
mundarson, UMFN: ,,Við
vitum ekki hvað er að tapa og
ætlum ekki að taka upp á því
núna. Keflvíkingar verða erfiðir
andstæðingar en ég hef ekki trú
á því að þeir stoppi okkur,“
mun
jUttU