Víkurfréttir - 03.11.1988, Side 10
HÖLDUM FJARMAGNINU [ HEIMABYGGÐ - VERSLUM HEIMA - ÞAÐ ERU HAGSMUNIR SUÐURNESJA - HÖLDUM FJARMAGNINU í HEIMABYGGO
Víkurfréttir
- hagsmunir
Suðurnesja.
-Viðskiptavinir?
„Það er viss kjarni við-
skiptamanna en það koma
alltaf ný andlit. Það er verið
að skoða og kynna sér vöru-
úrval og vöruverð. Það er
nokkuð um að fólk komi á
kvöldin því kvöld- og helgar-
sala er áþekk dagsölu í versl-
uninni. Ég get boðið upp á
vörur hér sem aðrir eru ekki
með, t.d. heitarílatkökur. Þá
hef ég verið með heimsend-
ingarþjónustu fyrir þá sem
þess þurfa.“
-Hvernig gengur að halda
vöruverði í lágmarki?
„Það er rokkandi. Sumar
vörur eru dýrari hjá mörk-
uðunum og aðrar hjá okkur.
Það sem við fáum í gegnum
K-tilboðin er ódýrara. 30%
lengri opnunartími er dýr í
svona verslun en Verðmis-
munur hefur farið minnk-
andi.“
-Svona að lokum, Unnar,
ert þú í samkeppni við bræð-
ur þína í Nonna & Bubba eða
vinnið þið saman?
„Við vinnum saman og
allar upplýsingar eru opnar
okkar á milli. Við erum ekki í
samkeppni og höfum reynt
að kaupa inn vörur saman,“
sagði Unnar Ragnarsson í
Fíabúð að lokum.
Verslunin Hornið:
„Langur opnun-
artími heidur lífi
í versluninni"
- segir Anna Pálsdóttir,
- kaupmaður á ,,Horninu“
„Langur opnunartími er
það sem heldur lífi í verslun-
inni,“ sagði Anna Pálsdóttir
verslunareigandi í samtali
við blaðið. Anna er eigandi
verslunarinnar Hornið, sem
er matvöruverslun á horni
Hringbrautar og Skólavegar
í Keflavík, sem reyndar selur
heilsuvörur einnig.
„Þetta er langur vinnu-
dagur. Verslunin opnar kl.
níu á morgnana og er opin til
tíu á kvöldin. Mér finnst
þetta óþarflega langur opn-
unartími, sem mætti stytta
aðeins,“ sagði Anna þegar
hún var spurð út í opnunar-
tíma verslunarinnar.
„En það er engu að síður
þessi langi opnunartími sem
heldur lífi í versluninni.“ Til
Verslunin Hornið, Keflavík. Ljósm.: hbb.
- FYRIRTÆKJAFRETTIR -
Firmaskrá Keflavíkur hefur
að undanförnu borist nokkrar
tilkynningar um rekstur fyrir-
tækja og eru þessar þær helstu:
Varmi s.f.: Þar hafa þeir
Steinþór Gunnarsson, Sand-
gerði, og Hörður Hafsteins-
son, Keflavík, selt þeim Svein-
birni S. Reynissyni og Guð-
laugi Guðmundssyni hlut sinn
og hafa þeir jafnframt flutt
fyrirtækið í Garðinn.
Róm: Kristín Lárusdóttir,
Fífumóa 3e, Njarðvík, hefur
keypt gjafavöruverslunina
Róm.
Ver s.f.: Asgeir B. Erlends-
son hefur gengið út úr útgerð-
arfélaginu Ver s.f.
Isnes s.f.: Þar hefur Björn
Olafsson gengið út.
Fés s.f.: Sigurður Þ. Adolfs-
son hefur gengið út úr því fél-
agi.
Sigrún M. Sigurðardóttir,
Narfakoti II, Innri-Njarðvík,
hefur sett á stofn einkafyrir-
tæki í Njarðvík undir nafninu
Frostrós. Tilgangur þess er
framleiðsla og útflutningur á
matvælum.
Þó skráning fyrirtækisins
hafi nýlega farið fram hefur
fyrirtækið starfrækt m.a. fisk-
verkun í Höfnum.
Stofnsett hefur verið í
Njarðvík hlutafélag er ber
nafnið Nesvör hf. Tilgangur
þess er kaup og sala fasteigna.
Stofnendur eru Bergsplan
h.f., Reyðarfirði, Framtak h.f.,
Reykjavík, Valfóður h.f.,
Reykjavík, ásamt þremur ein-
staklingum, búsettum í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Firmaskrá Njarðvíkur hefur
borist tilkynning þess efnis að
Þórður Þórðarson, til lög-
heimilis að Bröttugötu 10,
Vestmannaeyjum, en með
dvalarstað að Þórustíg 12,
Njarðvík, starfræki sælgætis-
og tóbakssölu svo og skyndi-
bitastað undir firmanafninu
Fitjaborg að Fitjum, Njarðvík.
Ér hér um að ræða Tomma-
borgarastaðinn á Fitjum.
Gylfi Pálsson, Þverholti 4,
Keflavík, hefur tekið við öllum
rekstri Endurhæfingarstöðvar
Þroskahjálpar á Suðurnesjum
af Þroskahjálp á Suðurnesj-
um. Kemur þetta fram í nýlegu
Lögbirtingablaði.
Firmaskrá Grindavíkur
hefur borist tilkynning þess
efnis að fyrirtækinu Gunn-
laugi og Erni sf. hafi verið
slitið og óskist því afmáð úr
firmaskránni. Birtist tilkynn-
ing þess efnis í nýlegu Lög-
birtingablaði.
„Það er mjög gott að vera
staðsettur á milli stórmark-
aðanna og það er góð sam'-
vinna okkar á milli,“ sagði
Unnar Ragnarsson, kaup-
maður í Fíabúð í Njarðvík, er
Víkurfréttir heimsóttu hann
nýlega. „Við björgum oft
hverjir öðrum um hina ýmsu
smáhluti, þannig að það hef-
ur ekkcrt háð mér að vera
staðsettur hérna.“
Fíabúð er eina matvöru-
verslunin í Njarðvík fyrir ut-
an stórmarkaðina tvo, Sam-
kaup og Hagkaup. Eigendur
Fíabúðar eru þau Unnar
Ragnarsson og María Guð-
mundsdóttir. Hjá verslun-
inni starfa tvær stúlkur fyrir
hádegi og þrjár eftir. Þá eru
tvær stúlkur aukalega sem
skipta með sér kvöld- og
helgarvöktum. Þegar Unnar
var spurður um það hvernig
reksturinn hafi gengið á ár-
inu sagðist hann ekki hafa
neina viðmiðun þar sem
hann hóf rekstur verslunar-
innar um síðustu áramót en
sagði: „Eftiraðstaðgreiðslu-
kerfi skatta kom þá eru
greiðslukort meira notuð en
ella,“
-A verslunin ekki í harðri
samkeppni við stórmarkað-
ina?
„Stórmarkaðirnir komu
ört og eru að verða jafn
margir og litlu verslanirnar.
Þeir hafa byggt stór hús og
geta því ekki haldið vöru-
verðinu niðri. Kaupmaður-
inn á hornínu á eftir að sækja
í sig veðrið á næstu árum.“
Verslunin Fíabúð í Njarðvík.
10 Fimmtudagur 3. nóvember 1988
\Jimr<
iuiUi
Fimmtudagur 3. nóvember 1988 11
Guðný Jóhannsdóttir, afgreiðslustúlka, og Anna Pálsdóttir, verslunareigandi. Anna er með fimm stúlk-
ur á launaskrá hjá sér, með ræstingarstúlkunni. Ljósm.: hbb
útskýringar sagði Anna að
um helmingssala væri frá
klukkan sex á daginn og til
tíu um kvöldið. „Reksturinn
hefur gengið þokkalega en
samt er samdráttur. Fjárráð
fólks hafa minnkað. Maðurá
í harðri samkeppni við stór-
markaðina.“
-Eru það mikið til sömu
viðskiptavinirnir sem skipta
við kaupmanninn á horninu
eða er það breytilegur hóp-
ur?
„Þetta er mikið fastur við-
skiptamannakjarni eða
kúnnar, sem maður hefur,“
sagði Anna og bætti við „á
kvöldin er meira um fólk
sem kemur úr nágranna-
byggðarlögunum til þess að
versla.“
-Hvað með vöruverð og
vöruúrval í lítilli verslun?
„Það gefur auga leið að
verð í stórmörkuðum eru
heldur lægri heldur en hjá
smærri kaupmönnum, en
kaupmaðurinn á horninu
getur samt verið með lægra
verð en markaðirnir.
Það er erfitt að vera með
gott vöruúrval vegna þess að
það vantar pláss og aukið
vöruúrval þyngir lagerinn
mikið. Ég reyni að vera með
allt það algengasta og það
sem viðskiptavinina vantar.
Ef það er ekki til þá reyni ég
að útvega hlutina eins fljótt
og auðið er“.
-Gerir fólk verðsaman-
burð?
„Það er nokkuð um að
fólk geri samanburð á verði
en ekki allir. Það fer líka
mikið eftir verðinu hvort
fólk velur íslenskt eða er-
lent.“
-Finnst þér Suðurnesja-
menn sækja mikið út fyrir
svæðið til þess að versla og
hvað getum við gert til þess
að snúa þeirri þróun við?
„Suðurnesjamenn gera
mikið af því að fara til
Reykjavíkur og versla. Við
eigum í harðri samkeppni við
Stór-Reykjavíkursvæðið.
Það er erfítt að segja til um
hvað hægt er að gera til þess
að snúa þessari þróun við.
Ekki þarf að breyta vöru-
verði miðað við verðkannan-
ir. Það þykir fínna að versla í
Reykjavík. Ég held að fólk
yrði óhresst ef það þyrfti að
sækja allt til Reykjavíkur,“
sagði Anna Pálsdóttir, versl-
unareigandi í Horninu að
lokum.
SJAVAMULLID
V RESTAURANT
'89
BÍLASÝnilNG
TOYQTA 1989
á Bilasölu Brynleifs, laugardag
5. nóv. kl. 10-17 og sunnudag
6. nóv. kl. 13-17.
TOYOTA
TOYOTA
IFIÖLVENTIA
JVÉLAR
Vatnsnesvegi 29A - Keflavík - Simar: 14888, 15488
Víkurfréttir
- málgagn
Suðurnesja
Ferskur veitingastaður í
notalegu umhverfi, þar
sem þjónustan er frábær
og þú nýtur þess að
snæða Ijúffenga rétti.
Yfirmatreiðslumaður Sjávargullsins,
Daði Kristjánsson, og starfslið
hans, sjá um að kitla bragð-
laukana.
A TH. Matargestir greiða ekki að-
göngueyri á dansleik í Glaumbergi.
opið
Föstud., laugard.
og sunnud. frá
kl. 18:30. W
Borðapantanir W
daglega i síma
SJAVAMULLIÐ
U RESTAURANT
Sókabái He^taóíkur
BLAÐABAKKAR
Tölvuskóli FS
Eftirtalin námskeið verða í boði á
vegum tölvuskólans:
Grunnnámskeið, 12.-15. nóv.
Efni: helstu hugtök og DOS-stýrikerfið.
Ritvinnsla fyrir byrjendur, 16.-23. nóv.
Orðsnilld (Word Perfect).
Forritunarmálið PASCAL, 26.-27. nóv.
Grunnnámskeið í Turbo Pascal.
Töflureiknir, 3.-4. des.
Grunnnámskeið í Multiplan.
Gagnagrunnur, 10.-11. des.
dBASE III+ fyrir byrjendur.
Upplýsingar og innritun í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, sími
13100. ATH. starfsmannafélögin greiða hluta fyrir félags-
menn sína.
Byggöasafn Suöurnesja
Opið á laugardögum kl. 14 - 16.
Aðrir timar eftir samkomulagi.
Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.
Unnar Ragnarsson við kjötborðið í vcrslun sinni. Unnar reynir að bjóða upp á vöru sem aðrir
bjóða ekki, til dxniis heitar tlatkökur. Ljósm.: hbb.
Fíabúð í Njarðvík:
„Kaupmaðurinn á
horninu á eftir að
sækja í sig veðrið
- segir Unnar Ragnarsson, kaupmaður