Víkurfréttir - 03.11.1988, Blaðsíða 20
V//KUK
jtam
Fimmtudagur 3. nóvember 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. -.Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Batnandi
atvinnuhorfur:
Fólksskort-
ur hjá
Brynjólfi
Umtalsverð fækkun hefur
orðið varðandi það félagsfólk
VSFK og VKFKN, sem nú er
á atvinnuleysisbótum. Fyrir
síðustu helgi voru tæplega 70
manns á skrá þessari en síð-
asta þriðjudag var þessi hópur
kominn niður í 45, þar af voru
10 Vogabúar og 10 útlending-
ar.
Að sögn talsmanns skrif-
stofu félaganna er reiknaðmeð
að þessi tala lækki enn, þar
sem búið er að bjóða mörgum
þeirra vinnu. Þá eru í tölum
þessum 7 manns sem bættust á
skrána nú um helgina en
tveimur þeirra hefur verið
synjað um bætur. Fyrir lágu
ennfremur umsóknir um
bætur frá 6 manns en enn hafði
ekki verið tekin afstaða til þess
hvort þau fengju bætur á
þriðjudag.
Þá er vitað til þess að Bryn-
jólfur h.f. í Innri-Njarðvík þarf
á fleira fólki að halda og hafa
m.a. birst auglýsingar þess
efnis í ýmsum fjölmiðlum svo
og í þessu blaði.
Þessu til viðbótar er vitað
um 50 aðila er teljast til Versl-
unarmannafélags Suðurnesja
sem einnig eru atvinnulausir,
þar af eru 41 er störfuðu í Suð-
urnesjabakaríi, sem áður hét
Ragnarsbakarí.
Tryggt
verði fjár-
magn til
D-álmu
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt samhljóða á aðal-
fundi SSS um helgina. Var hún
borin upp af Ellert Eiríkssyni
og Eðvarð Júlíussyni:
„Aðalfundur S.S.S. haldinn
28. og 29. október 1988 í Festi,
Grindavík skorar á fjárveit-
inganefnd Alþingis og þing-
menn kjördæmisins aðtryggja
fjármagn á fjárlögum 1989 til
byggingar D-álmu við sjúkra-
húsið í Keflavík."
Hið glæsilega Stafnes kcmur til heimahafnar á föstudag.
Ljósmyndir: hbb.
Nýtt og glæsilegt Stafnes til Keflavíkur:
Síldarfrysting um borð
Keflvíkingar fögnuðu því
síðasta föstudag þegar nýtt
Stafnes lagðist að bryggju í
Keflavík. Þetta er annað nýja
skipið á skömmum tima sem
kemur í flota Keflvíkinga en
nýlega kom Skagaröst KE 70
úr miklum og glæsilegum end-
urbótum.
Stafnes kom til heimahafn-
ar að viðstöddu fjölmenni.
Skipið er 176 tonn að stærð,
34,6 metrar að lengd og 8
metra breitt. Skipið er búið
1500 ha. aðalvél með hliðar-
skrúfur bæði að aftan ogfram-
an, sem eru 225 hestöfl hvor,
ásamt fullkomnustu og nýj-
ustu fiskileitartækjum.
Að sögn Odds Sæmunds-
sonar, skipstjóra og eins eig-
enda Stafness KE, hófst smíði
skipsins í nóvember 1987 og
gekk vel. Stafnes er útbúið á
allar veiðar s.s. togveiðar,
dragnótaveiðar, síldveiðar og
netaveiðar. Hægt er að heil-
frysta aflann um borð og er
frystigeta skipsins 27 tonn á
sólarhring. Nýsmíðin kostaði
170 milljónir króna og skipa-
smíðastöðin tók eldra Stafnes-
ið upp í smíðina fyrir 14 millj-
ónir króna.
1 samtali við blaðið sagðist
Oddur ætla að fara á síldveið-
ar í fyrstu, þar sem allur afli
verður frystur um borð. I
áhöfn Stafness eru þrettán
manns.
Eigendur Stafness KE-130. F.v.: Jónína Guðmundsdóttir, Oddur
Sæmundsson, Jórunn Garðarsdóttir og llilmar Magnússon.
Stefán Jón næsti
formaður SSS
Engin breyting varð á skip-
un manna í stjórn Sambands
sveitarfélaga á Suðurnesjum
nú á aðalfundinum. Er stjórn-
in skipuð Jóni Olafi Jónssyni,
Keflavík, Eðvaldi Bóassyni,
Njarðvík, Bjarna Andréssyni,
Grindavík, Stefáni Jóni
Bjarnasyni, Miðneshreppi,
Ellert Eiríkssyni, Gerða-
hreppi, Vilhjálmi Grímssyni,
Vatnsleysustrandarhreppi og
Björgvini Lútherssyni, Höfn-
um.
Samkvæmt lögum sam-
bandsins verður fulltrúi Mið-
neshrepps, Stefán Jón Bjarna-
son, næsti formaður og sam-
kvæmt því verður aðalfundur-
inn haldinn að ári í Miðnes-
hreppi.
TRÉ-X byggingavörur
Iðcjvöllum 7 - Keflavík - Sími 14700
VSFK:
Sameining-
arlögin
samþykkt
Aðalfundur Verkalýðs- og
sjómannafélags Keílavíkur og
nágrennis, sem haldinn var
síðasta Fimmtudag, samþykkti
ný lög fyrir félagið. Lög þessi
eru borin fram svo Verka-
kvennafélagið geti gengið inn í
VSFK eins og til stendur að
verði að veruleika um miðjan
desember n.k.
Að sögn Karls Steinars
Guðnasonar, formanns
VSFK, verður félagið þá með
um 2500 félaga og þar með eitt
af stærstu verkalýðsfélögum
landsins, þ.e. þeirra sem eru
innan Verkamannasambands-
ins. Aðeins Dagsbrún í
Reykjavík, Eining á Akureyri
og hugsanlega Framsókn í
Reykjavík eru stærri.
Flugleiðir:
Öllum hlað-
mönnum
sagt upp
Öllum hlaðmönnum Flug-
leiða á Keflavíkurflugvelli, alls
42 að tölu, hefur verið sagt upp
störfum. Er uppsagnarfrestur-
inn nokkuð misjafn eftir því
hvað viðkomandi starfsmaður
hefur áunnið sér langan upp-
sagnarfrest.
Stendur til að bjóða þennan
verkþátt út, en starfsmenn
þessir sjá um afgreiðslu á far-
angri ogfrakt, m.a. frá flugvél-
unum. Hefur heyrst að verk-
stjórar á staðnum séu með það
í athugun að leggja fram tilboð
í verk þetta.
Hefur þetta staðið til all
lengi án mikillar hrifningar
starfsmannanna og hefur
heyrst að þeir hyggist mæta
þessu með ýmsu móti, m.a. að
vinna hægar en gert hefur ver-
ið fram að þessu.
Þeir hafa greinilega ekki verið
ofhlaðnir verkefnum . . .