Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Page 1

Víkurfréttir - 05.01.1989, Page 1
Innbrot í ísienskan Markað: Sporin rakin til hins seka Milli jóla og nýárs fór í gang þjófavarnakerfi Vara hjá Islenskum Markaði við Iðavelli í Keflavík. Er lög- regian kom á vettvang kom í ljós að framið hafði verið innbrot en sá sem þar var að verki var á bak og burt. Fljótlega fundust í snjó- fölinni skóför sem rakin voru þar til þau slitnuðu en fundust þó nokkuð langt þar frá á ný og voru síðan rakin að húsi einu. Morg- uninn eftir var síðan hand- tekinn í húsi þessu maður, sem játað hefur að hafa brotist þarna inn ásamt öðrum til. Engu höfðu mennirnir þó stolið, því þeir voru vart búnir að brjótast inn þegar kerfið fór í gang og fældi þá í burtu. Rakel Kristín Gunnarsdóttir með nýársbarnið, 22 marka dreng, sem fa'ddist i sjúkrabíl ofan við Voga á leið til Reykjavíkur. Ljósm.: hbb. Nýársbarn Suðurnesja 1989: Fæddist í sjúkrabílnum ofan við Voga Snarræði Ijósmóður bjargaði lífi barnsins Sá fáheyrði atburður átti sér stað á nýársdagsmorgun að 22 marka sveinbarn fæddist í sjúkrabíl á Reykjanesbraut. Barn þetta er fýrsta Suður- nesjabarn ársins. Við fæðing- una vann Lea Oddsdóttir ljós- móðir mikið þrekvirki eins og fram kemur hér á eftir og í við- tali við hana er birtist annars staðar í blaðinu. Fæddist barnið kl. 10:55 er sjúkrabíllinn var staddur ofan við Voga. Foreldrar barnsins eru Rakel Kristín Gunnars- dóttir og Jóhann Guðjónsson, Greniteigi 17 í Keflavík. Kom það í hlut Davíðs Eyrbekks, sjúkraflutningsmanns, að að- stoða ljósmóðurina við fæð- inguna ásamt tveimur konum úr skylduliði barnsins, sem voru farþegar með sjúkrabíln- um. Ökumaður sjúkrabílsins var Ingimar Guðnason og var ekið á 120-130 km hraða inn Reykjanesbraut á bláum blikkljósum enda mikið í húfi, eins og fram kemur í viðtali við ljósmóðurina. Atvik eins og þetta vekur þó tvær spurningar, þ.e. hvers vegna þurfti að senda konuna til Reykjavíkur og hvers vegna fæðingin fór ekki fram hér syðra. A þessu máli er tek- ið annars staðar i blaðinu. Þá má einnig hafa það í huga hve það er mikið öryggi að hafa menn á vakt fyrir sjúkrabílinn á slökkvistöðinni allan sólar- hringinn sem geta brugðist við eins og þarna átti sér stað. Eins og fyrr segir er nánar fjallað um þetta mál á blaðsíðu 14 í blaðinu í dag. Könnun í 7.-9. bekk Grunnskóia Njarðvíkur um áhugamál: Þric iji hv er nemandi di rekk lurál engi 10 af hverjum 12 stunda íþróttir Af 120 nemendum, sem tóku þátt í skoðanakönnun um áhugamál unglinga í Njarðvík, sögðust 100 stunda einhvcrjar íþróttir. Þessar nið- urstöður eru birtar í blaðinu Suðurnes, sem gefið er út af ungum mönnum í Njarðvík. Að sögn Gylfa Guðmunds- sonar, skólastjóra Grunn- skóla Njarðvíkur, stóðu útgef- endur blaðsins að könnun þessari i 7.-9. bekk skólans með fullu samþykki skólans. Er hér um mjög gott framtak að ræða, en þrátt fyrir ítrekað- ar tiiraunir tókst ekki að ná tali af aðstandendum blaðsins og skoðanakönnunarinnar. I blaðinu kemur ennfremur fram að yfir 85 nemendur séu háðir einhvers konar skemmt- unum. 40 drengir hafa mikinn áhuga á stúlkum en 39 stúlkur hafa hug á að næla sér í drengi. Þetta er reyndar það áhuga- mál sem mjóst var á mununum en það munaði aðeins einu at- kvæði. Eins og við var að búast seg- ir í blaðinu, var frímerkjasöfn- un það áhugamál sem var neðst á listanum með aðeins fjögur atkvæði. Þær tölur, sem eru þó öllu uggvænlegri eru að í Grunnskóla Njarðvíkur reykja 8 stúlkur og 6 drengir eða 11% aðspurðra. 15% drengja sem spurðir voru drekka áfengi en 23% stúlkna. Samtals drekka því 38% nem- enda í 7.-9. bekk, segir í niður- stöðum umrædds blaðs. Ibúafjöldi á Suðurnesjum: Verður 15 þúsund á árinu Af öllum svæðum á land- inu var íbúafjölgun næst mest á Suðurnesjum eða 2,48% milli áranna 1986 og 1987 samkvæmt bráða- birgðatölum I. des. s.l. Að- eins höfuðborgarsvæðið hafði örlítið meiri fjölgun. Alls voru íbúar Suður- nesja 14.969 og hafði þeim fjölgað um 371 milli ára. Hafði fjölgun orðið í fimm sveitarfélögum af sjö á svæð- inu, mest i Keflavík, minnst í Garði. Bæði í Hafnahreppi og Vatnsleysustrandar- hreppi hafði orðið fækkun. Samkvæmt þessu eru íbúar 1. des. s.l. 7322 í Kefla- vík, 2438 í Njarðvík, 2141 í Grindavík, 102 í Hafna- hreppi, 1277 í Miðneshreppi, 1065 í Gerðahreppi og 624 í Vatnsleysustrandarhreppi. Breytingin milli ára var sem hér segir: Keflavík +189, Njarðvtk +86, Grindavík +94, Hafna- hreppur — 11, Miðneshrepp- ur +23, Gerðahreppur +6 og Vatnsleysustrandarhreppur — 16. í Ak m jr y/ m Víkurfréttir óska lesendum sínum árs og friðar. Á morgun verður þrettándagleði í Keflavík. Álfadrottning og kóngur ríða í fríðu föruneyti kl. 20.30 frá jólatré Keflvíkinga við skrúðgarðinn, að íþróttavellinum þar sem kveikt verður i álfabrennu. Þar verður glens og gaman og eru Keflvíkingar og nærsveitungar hvattir til að fjölmenna.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.