Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Qupperneq 2

Víkurfréttir - 05.01.1989, Qupperneq 2
\)IKUK 2 Fimmtudagur 5. janúar 1989 Kristófer tekinn við bílaskoðuninni Mikil ölvun á nýársnótt Mikið var um ölvun á al- mannafæri og í heimahús- um á svæði lögreglunnar í Keflavík. Var hún kölluð 71 sinni út yfir áramótin vegna þessa. Þá voru sjö ökumenn teknir, grunaðir um meinta ölvun við akst- ur. Ekki varð þó nema eitt umferðaróhapp sem lög- reglan þurfti að hafa af- skipti af og það minni hátt- ar. Er það óvanalega lítið. Kristófer Þorgrimsson bifvélavirki hefur tekið við starfi forstöðumanns Suð- urnesjadeildar hinnar nýju bifreiðaskoðunar. Jafn- framt hefur hann hætt starfsemi bifreiðaverk- stæðis þess sem hann rak við Iðavelli í Keflavík en það húsnæði mun hýsa bif- reiðaskoðunina í framtíð- inni og opnar sem slíkt í næstu viku. Jafnframt Kristófer munu tveir af starfsmönn- um Bifreiðaeftirlits ríkis- ins í Keflavík, þcir Örvar Kristjánsson og Jón Krist- insson, starfa á hinum nýja stað. Eftirleiðis mun þjónusta bifreiðaumboðanna og annað sem Kristófer hafði, flytjast yfir á bifreiðaverk- stæði sem Ingólfur stæði sem Ingólfur Þor- steinsson mun innan tíðar opna í Grófinni í Keflavík. KEFLVÍKINGAR Frá og með 10. janúar n.k. mun Gjaldheimta Suðurnesja annast alla innheimtu á gjöldum bæjarsjóðs þ.á.m. fast- eignagjöldum fyrir árið 1989. Fasteignagjöld 1989 verða með 5gjalddögum, 10/1, 10/2, 10/3,10/4 og 10/5. Eindagi fasteignagjalda er einum mán- uði eftir gjalddaga. Afsláttur af fasteignaskatti kr. 1 5.000,00 er veittur þeim sem náð höfðu 70 ára aldri í árslok 1988. Afsláttur af fasteignaskatti kr. 7.500,00 er veittur þeim sem höfðu náð 67 ára aldri í árslok 1988, svo og sjómönnum sem njóta lífeyrisgreiðslna úr Lífeyrissjóði sjómanna. Öll ógreidd eldri gjöld til bæjarsjóðs munu verða send lög- mönnum til innheimtu fyrir 1. febrúar n.k. og er hér með skorað á þá aðila sem skulda eldri gjöld að gera skil eða semja um viðkomandi gjöld nú þegar. BÆJARSJÓÐUR juíUt Magdalena Olsen afhendir Sigurði Erlendssyni peningagjöfina, seni verður notuð til sumardvalarheimilis þess sem Þroskahjálp fyrirhugar að setja upp á Suðurnesjum. Ljósm.: hbb. Valgeirsbakarí: Gaf 100 þúsund kr. Valgeirsbakarí í Njarðvík færði Þroskahjálp á Suður- nesjum 100 þúsund króna gjöf í síðustu viku til sumardvalar- heimilis, sem fyrirhugað er að reisa hér á Suðurnesjum. Það var Magdalena Olsen, eiginkona Valgeirs Þorláks- sonar, sem afhenti Sigurði Er- lendssyni, formanni Þroska- hjálpar á Suðurnesjum, fjár- hæðina til ráðstöfunar. Tillöguteikningar af sumar- dvalarheimilinu liggja nú frammi til umræðu og er nú einnig unnið að því að fá land undir heimilið hér á Suður- nesjum og jafnvel stefnt að því að byrja framkvæmdir við það að reisa húsið strax í vor, að sögn Kristins Hilmarssonar hjá Þroskahjálp. Njarðvík: Eldur í fiölbýlishúsi Milli jóla og nýárs var slökkviliðið í Keflavík kvatt út að fjölbýlishúsi við Fífu- móa í Njarðvík. Hafði komið upp eldur í sorpgeymslu hússins og þrátt fyrir að íbú- ar úr húsinu hafi tæmt tvö slökkvitæki og mokað snjó á eldinn dugði það ekki til. Tók slökkvistarfið mjög skamma stund en nokkur reykur mun hafa borist í gegnum sorplúgur um einn stigagang hússins. Tjón varð þó ekki alvarlegt, hvorki af völdum elds né reyks. Fiskvinna Starfsfólk vantar til fiskvinnslu. Fiskverkun Njarðar hf. Sandgerði, sími 37448. Þrettándagleði verður á morgun, föstu- dag 6. jan., og hefst kl. 20:30 með því að álfadrottning og kóngur ríða í farar- broddi í blysför ásamt fríðu föruneyti, nokkrum púkum, lúðrasvéit og kyndil- berum frá jólatrénu við skrúðgarðinn að íþróttavellinum. Þar verður kveikt í mik- illi álfabrennu og jólasveinarnir m æta á svæðið og kveðja áður en þeir halda til fjalla. Söngur, glens og gaman á þrett- ándanum. Mætum öll hress og kát. Bæjarstjórinn í Keflavík

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.