Víkurfréttir - 05.01.1989, Blaðsíða 5
MÍKUn
(qlamti
Góð
helgi í
Glaum-
bergi
SKEMMTISTAÐUR
Diskotek laugardagskvöld 7. janúar.
Aldurstakmark 20 ára. Snyrtilegur
klæðnaður. Opið 22-03. Mætum öll
hress og kát á nýju ári.
Ferskur veitingastaður í notalegu umhverfi,
þar sem þjónustan er frábær og þú nýtur þess að
snæða Ijúffenga rétti.
Ef þú vilt fara í fjörið eftir matinn þá ertu vel-
kominn í Glaumberg án þess að greiða aðgangs-
eyri.
Glaumberg Sjávargullið
-ef þú vilt gleði-------------- og góðan mat
Fimmtudagur 5. janúar 1989 5
Þetta er ekki „kóngulóarmaðurinn“ heldur slökkviliðsmenn frá BS
á leið upp á 3ju hæð fjölbýlishúss við Sólvallagötu í Keflavík.
Ljósm.: epj.
Inn um glugga
á þriðju hæð
Það er ekkert spaug að loka
sig úti á 3. hæð í fjölbýlishúsi.
Þetta hefur þó hent fjölskyldu
eina í Keflavík nú í tvígang
með stuttu millibili. I báðum
tilfellunum var gripið til þess
ráðs að fá slökkviliðið til að
hjálpa upp á sakirnar.
Kom ljósmyndari Víkur-
frétta þar að sem liðið var á leið
upp húsið í orðsins fyllstu
merkingu, er síðara óhappið
átti sér stað á fimmtudag í síð-
ustu viku. Sést á myndinni að
slökkviliðsmönnum er treyst-
andi til margbreytilegrar
hjálpar, a.m.k. þeim hjá
Brunavörnum Suðurnesja.
Vart voru slökkviliðsmenn-
irnir komnir upp á stöð á ný er
tilkynning barst um eld í rusli
á Ieikvellinum við Mávabraut
og skömmu eftir að því útkalli
var lokið barst annað útkall
um eld í rusli. Að þessu sinni í
rústum gamla dekkjaverk-
stæðisins neðan við nýja póst-
húsið.
Gjaldþrot Ásgeirs hf.:
Lokið er skiptameðferð
vegna gjaldþrots Asgeirs h.f.
í Garði. Upp í forgangskröf-
ur, sem samtals námu kr.
1.923.441,96, greiddust kr.
150.169 eða rúm 7,8%. Ekk-
ert greiddist upp í aðrar kröf-
ur, sem samtals námu kr.
58.859.735,12, auk vaxta og
kostnaðar eftir upphafsdag
skipta.
Ásgeir h .f. var fiskvinnslu-
fyrirtæki og áður útgerðar-
fvrirtæki en hafði hætt út-
gerð fyrir nokkrum árum,
þ.e. á eigin skipum en leigði
önnur. Þá rak lýrirtækið
frystihús sem slegið var Ut-
vegsbankanum á nauðung-
aruppboði áður en til gjald-
þrotsins kom.
Þrátt fyrir að Utvegsbank-
inn hafi eignast fiskvinnslu-
húsið á nauðungaruppboði á
tíu milljónir, sem var langt
undir verðmæti, er talið að
bankinn hafi tapað stórum
upphæðum en krafa hans í
þrotabúið nám 36 milljónum
króna, sem ekkert fékkst
upp í.
Er kom að uppgjöri þrota-
búsins voru einu eignirnar
tvær bifreiðar og var önnur
seld á frjálsum markaði en
hin á uppboði. Nam söluverð
þeirra aðeins um 150 þús-
undum króna.
ÞRETTANDAGLEÐI IBK
EINAR JÚL.
Aldurstak-
mark 18 ára.
Snyrtilegur
klæðnaður.
RÚNAR og hjálparsv.
Föstudagskvöldið
6. jan. kl. 22-03.
ROKKSVEIT (Hjálpar-
sveit) Rúnars Júlíusson-
ar leikur fyrir dansi og
heldur uppi frábæru
þrettándastuði.
Skemmtiatriði hefjast kl.
24 en þá koma fram Ein-
ar Júlíusson, Jóhann G.
Jóhannsson og Ragnar
Bjarnason. Fjölmennum
í þrettándastuðið!
skemmtistadur]
Sími 14040
Forsaia
fimmtudag
kl. 17-19
JÓHANN G.
Jóhann G.
kynnir og syngur
lög af nýjustu
plötu sinni,
Myndræn áhrif,
og áritar hana.
RAGGI BJARNA