Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Síða 7

Víkurfréttir - 05.01.1989, Síða 7
mm juiUt Slökkvistarfi lokið við bifreiðina Eldur gaus undan mælaborðinu Um kvöldmatarleytið síð- asta fimmtudag var slökkviliði BS tilkynnt um eld í bifreið á gatnamótum Hringbrautar og Faxabrautarí Keflavík. Erlið- ið kom á vettvang var laus eld- ur í mælaborði bifreiðarinnar sem er af gerðinni Mercury Topas og aðeins ekinn um 5000 kílómetra. Er eldurinn kom upp var bifreiðin kyrrstæð en í hæga- gangi. Kona sem sat undir stýri varð brunalyktar vör og sá eitthvert ljós undan mæla- borðinu. Slökkti hún þegar á vél bílsins og í sama mund gaus eldurinn upp. Konunni varð ekki meint af en bifreiðin skemmdist eitthvað, þrátt fyrir snögg viðbrögð slökkviliðsins sem slökkti eldinn á auga- bragði. Flugeldastríðið í Keflavík/Njarðvík: IBK gekk vel Björgunarsveitirnar höfðu fyrir kostnaði „Flugeldasalan gekk von- um framar hjá okkur og við seldum miklu meira en við áttum von á í fyrstu. Við urð- um að verða okkur út um aukabirgðir til þess að anna eftirspurn síðustu dagana fyrir áramótin," sagði Rúnar Lúðvíksson, formaður knattspyrnuráðs IBK, er hann var spurður um við- brögð fólks við flugelda- markaði ráðsins fyrir síðustu áramót. Það var ekki sama hljóð í strokknum hjá björgunar- sveitunum og þetta sagði Ol- afur Bjarnason, formaður Stakks, er samband var haft við hann strax eftir áramót- in: „Þetta gekk heldur illa hjá okkur í Stakk og viðbrögð fólks voru slök, en við slupp- um þó fyrir horn með um 300.000 króna ágóða af söl- unni.“ -Hvað er til ráða hjá ykkur núna? „Ég hef enga trú á öðru en að við förum á bæinn eða gerum allt til þess að Finna okkur örugga fjáröflunar- leið.“ Sama staða var uppi á ten- ingnum hjá skátum í Njarð- vík, ef hún var þá ekki öllu verri. „Þetta gekk illa hjá okkur og við rétt höfðum fyrir kostnaði og höfðum lítið upp úr krafsinu, nema þá fyrir- höfnina. Ég ætla að vona að það þurfi ekki að koma til þess að selja þurfi björgunarbúnað af Suðurnesjum til þess að standa undir rekstri. Það er spurning hvað við gerum um næstu áramót. Það er þegar búið að brjóta hefð og það er augljóst að við verðum að leita á önnur mið,“ sagði Hafsteinn Hafsteinsson, for- maður Hjálparsveitar skáta í Njarðvík er hann var spurð- ur út í útkomu flugelda- markaðar sveitarinnar fyrir síðustu áramót. Stakksmenn og skátar vildu koma því á framfæri að flugeldamarkaðirnir verða opnir fyrir þrettándann, sem er á morgun. Stakkur hefur opið frá 16-22 í dag en til kl. 19 á morgun, þrettándann. Hjá skátum í Njarðvík verð- ursíðanopiðfrákl. lOtil 17 á morgun. Þá verður knatt- spyrnuráð IBK einnig með opið á þrettándanum. Fimmtudagur 5. janúar 1989 Hafnargötu 24 Sími 12455 V3 s\^v ^aa NÝJUSTU FRÉTTIR AF METSÖLUBÓKINNI I' LANDSBANKANUM: RAUNÁVÖXTUN KJÖRBÓKAR VAR FRÁ 8.57% Á ÁRINU 1988 Já, það kemur mörgum á óvart að óbundin ávöxtunarleið eins og Kjörbók skuli bera slíka raunávöxtun. En ástæðan er samt einföld. Kjörbókin er sveigjanleg í allar áttir og höfundar hennar í Landsbankanum taka sífellt með í reikninginn breytilegar aðstæður. Þannig ber Kjörbók háa grunnvexti, ávöxtunin er reglulega borin saman við verðtryggða reikninga og þeir sem eiga lengi inni eru verðlaunaðir sérstaklega með afturvirkum vaxtaþrepum eftir 16 og 24 mánuði. Raunávöxtun Kjörbókar var 8,57% á liðnu ári, 9,92% á 16 mánaða þrepinu og 10,49% á 24 mánaða þrepinu, sem var reiknað út í fyrsta sinn nú um áramótin. Þér er óhætt að leggja traust þitt og sparifé á Kjörbókina strax. Hún bregst ekki frekar en fyrri daginn. L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Leifsstöð - Sandgerði - Grindavík

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.