Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.01.1989, Side 12

Víkurfréttir - 05.01.1989, Side 12
12 Fimmtudagur 5. janúar 1989 FÓSTRUR ATHUGIÐ Staða forstöðumanns við dagvistun- arheimilið Holt, Innri-Njarðvík, er laus til umsóknar. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur hefur verið fram- lengdur til 13. janúar. Upplýsingar veitir undirritaður á bæjarskrifstof- unum, Fitjum. Félagsmálastjórinn í Njarðvík sími 16200. ATVINNA Vantar starfskraft til innheimtu- og skrifstofustarfa hálfan daginn. Upplýsingar í síma 12070. r Olíuverslun Islands Njarðvík, sími 12070. \ j Tómstundaráð Miðneshrepps ítrekar auglýsingu eftir starfsmanni í hlutastarf, helst karlmanni. Umerað ræða gæslustörf á „diskótekum“ og „opnu húsi“. Nánari uppiýsingar veita Víðir í síma 37441 og Sigurður í síma 37681. Umsóknarfre3íu’• renn- ur út 14/1 ’89. Augnlækningastofa Augnlækningastofa mín er nú alfarið flutt til Hafnarfjarðar, að Suðurgötu 44. Tímapantanir í síma 91-54556 frá kl. 8.30 til 16 virka daga. Eftirliti með þeim sem áður hafa til mín leitað mun ég sinna á mánudög- um á Heilsugæslustöðinni í Keflavík, sími 14000. Tekið á móti tímapönt- unum alla virka daga frá kl. 9-16. Jens Þórisson, augnlæknir. \>ÍKUR Hér býr Friðrika, í Villepinte í Frakklandi Kveðja frá Frakklandi: Eitt bréf á dag kemur skapinu í lag Villepinte 8.12.88. Kæru vinir. Nú hef ég verið í Frakklandi í 3/i mánuð hjá fjölskyldu sem mér líkar vel við: 2 stelpur, 21 og 17 ára og svo mamman og pabbinn. Eldri stelpan er í verslunarskóla í Le Havre og kemur bara heim um helgar, yngri stelpan er í einkaskóla í París í einhverjum barnafræð- um, pabbinn vinnur þar líka og mamman er barnakennari, ofsalega róleg og þolinmóð og hlustar alltaf á mig. Við búum í litlu raðhúsi í nýja hlutanum af Villepinte sem er 30.000 íbúa bær, ekkert nema raðhús, blokkir og tré, um 20 krn norð-vestur af París. Eg hef trúnaðarmann sem ég get leitað til ef einhver vandamál koma upp á og um daginn er afi gamli dó þá fór fjölskyldan öll til Britagne en ég var á meðan hjá honum og- fjölskyldan hans var mjög góð við mig og vildi allt fyrir mig gera. Frakkar eru mjög miklir sælkerar svo að maturinn er mjög góður. Þeir virðast líka vera mjög kvefaðir því að allir bera á sér snýtuklúta og snýta sér í tíma og ótíma. Þetta er mjög elskulegt fólk yfír höfuð og kyssist alltaf er það býður góðan daginn. Það er misjafnt hve oft en á Parísarsvæðinu eru það 4 kossar, 2 á hvora kinn. Er ég kem í skólann kyssi ég alla í bekknum og svo vini mína og nú þegar þetta er orð- inn vani er erfitt að ímynda sér annað. Eg fer oft til Parísar með lest. Það tekur um 20 mín. Þar búa 2 kanar sem eru hér einnig með AFS og við höfum þegar heimsótt mikið af söfnum, kirkjum og að sjálfsögðu Eiff- el-turninn. Skólinn sem égeríer 1,5 km Friðrika K. Stefánsdóltir í burtu. Ég fer yfirleitt gang- andi og það tekur 15 mín., meðfram beinni hraðbraut og stundum kafnar maður næst- um því úr mengun. Ég er í bekk lére A2 sem er tungumálabekkur þannig að ég hef bara 2 tíma í stærðfr. aðra hverja viku og hina vik- una bara 1. Auk stærðfræðinn- ar er ég í landa- og náttúru- fræði, eðlisfr., sögu, ensku, frönsku og arabísku. Arabískan er kennd vegna þess að það eru svo ofboðslega margir Arabar í skólanum. Ég fer svo með krökkunum sem eru líka í arabísku til Jórdaníu í júní. Það erarabísku-kennar- inn sem skipuleggur þessa ferð. Þann 17. des. ætlum við að hafa couscous-partý í skól- anum til að fjármagna ferðina (couscous er arabískur réttur). I arabískutímum lærum við ekki bara að tala arabísku heldur einnig um daglegt líf arabana og einnig smá landa- fræði til að gera sér grein fyrir hvar arabíska er töluð og fleira. Franskan gengur vel þó að það geti myndast svolítið neyðarlegar aðstæður stund- um: Ég var í röðinni í mötu- neytinu í skólanum og labbaði framhjá eftirréttinum rétt eins og ég hefði gleymt að fá mér, svo að konan sem skammtar sagði: „Ta glace“ og ég leit á glasið mitt og sagði: „Hvað með „ma glace“ og öll röðin beið og horfði á mig, svo end- urtók hún og þá mundi ég að „ta glace" þýðir „ísinn þinn“. Oh, asninn hún ég! I byrjun nóv. var frí í skól- anum vegna allra heilagra messu. Þá fór ég til Angers til Caroline Lefort sem var í Keflavík með AFS á síðasta ári. Það var gaman að geta tal- að á íslensku við einhvern sem skilur hana (er ég tala íslensku í skólanum verða krakkarnir bara hræddir). Ég var hjá henni í 5 daga og fjölskyldan hennar er alveg frábær. Jæja, nú ætla ég að hætta. Að lokum við ég óska öllum gleðilegra jóla og farsæls kom- andi árs. Ef þið hafið tíma megið þið skrifa mér, alveg endilega því að 1 bréf á dag kemur skapinu í lag. Astarkveðjur, Friðrika Kr. Stefánsd. Chez Coquentif 8 Ave. ambroise croizat 93 420 VILLEPINTE FRANCE. Byggöasafn Suöurnesja Opiö á laugardögum kl. 14 - 16. Aörir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.