Víkurfréttir - 05.01.1989, Blaðsíða 20
yfíKUR
jUtth
Fimmtudagur 5. janúar 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. - .Símar 14717, 15717.
SPURÐU SPARISJÓÐINN
Heilbrigðisfulltrúi:
Vatnsveita stofnuð
eða vatns-
bólum lokað
fkveikja í bókaherbergi:
LitRu munaði að húsið færi
Nefnd sú sem utanríkisráð-
herra skipaði á sínum tíma
vegna mengunar í vatnsbólun-
um í kjölfar olíuslyss á Kefla-
víkurflugvelli, hefur nú skilað
af sér að sögn Magnúsar Guð-
jónssonar, heilbrigðisfulltrúa.
„Boltinn er því hjá sveitarfél-
ögunum, þar sent a.m.k.
Keflavík og Njarðvík þurfa að
stofna sameiginlega vatns-
veitu svo hefjast megi handa
um framhald málsins,“ sagði
Magnús.
Er gert ráð fyrir að þessi
sameiginlega vatnsveita verði
þannig í framkvæmd að hin
sveitarfélögin gætu komið þar
inn í, þegar vilji væri fyrir
hendi. A næstu tveimur vikum
er að vænta óyggjandi sannana
um það hvaðan mengun vatns-
bólanna kemur en boraðar
hafa verið 20 borholur víðs-
vegar um svæðið til sönnunar á
því máli.
„Verði einhver dráttur nú á
málum s.s. stofnun vatnsveit-
unnar, verður núverandi
vatnsbólum lokað,“ sagði
Magnús, en að undanförnu
hafa komið í ljós mjög margar
skýrslur um mengunarslys á
undanförnum árum í nágrenni
vatnsbólanna.
-En hvað um olíutanka sem
víða eru enn í jörðu við hin
ýmsu hús frá þeim tíma áður
en hitaveitan var lögð, verður
eitthvað gert til að fjarlægja þá
mengun sem komið gæti það-
an?
„Já, með auknum mann-
skap munum við gera eigend-
um það að taka upp þessa
tanka, sem þegar er víða búið
að fjarlægja," sagði hann að
lokum.
Mjög litlu munaði að íbúð-
arhús úr timbri yrði eldi að
bráð daginn fyrir gamlársdag í
Keflavík. Virðist bæði rann-
sóknarlögregla sem slökkvi-
liðsstjóri vera sannfærð um að
þarna hafi aðeins sekúndu-
spursmál skipt sköpum er
bókaherbergi hússins nr. 19
við Oðinsvelli varð alelda.
Kom eldurinn upp í her-
bergi þar sem heimilisfaðirinn
stundar m.a. þá iðju að binda
inn bækur. Var herbergið lok-
að og sat fólk við kaffidrykkju
annars staðar í húsinu er veg-
farandi bankaði uppá og lét
vita um mikinn reyk er kom úr
húsinu þar sem bókaherbergið
var. Var öllu þegar lokað og
fólk drifið út jafnframt því sem
kallað var á slökkvilið BS, sem
kom að vörmu spori.
Var herbergið þá alelda og
innra glerið farið að springa.
Tók slökkvistarfið skamma
stund en þó eru allir innan-
stokksmunir herbergisins
brunnir og kjölur bóka svið-
inn en mikið bókasafn var
þarna inni sem mun aðallega
hafa skemmst af sóti og hita
Fer ekkert á milli mála að
litlu munaði að annað hvort
ytra glerið í gluggunum springi
og súrefni komist inn eða eld-
urinn náð að komast upp í
þakið. í báðum þeim tilfellum
hefði húsið trúlega farið að
mestu. Er hér því fyrst og
fremst að þakka skjótum við-
brögðum slökkviliðs sem er til-
búið á vaks, svo og réttum við-
brögðum fólksins í húsinu.
Að sögn Óskars Þórmunds-
sonar, rannsóknarlögreglu-
manns, er talið að um íkveikju
af völdum krakka sé að ræða,
því barn var að leik í herberg-
inu skömmu áður en eldsins
varð vart. En þar sem eldurinn
kom upp var hvorki rafmagn
né neitt sem orsakað gat eldinn
nema utanaðkomandi.
Eftir að slökkvistarfi lauk
var húsið reyklosað af slökkvi-
liðinu og einnig var notuð
þarna sérstök vatnssuga til að
losa vatn úr teppum og af
gólfi.
Slökkviliðsmenr. og lögregla yfirgefa húsið að slökkvistarfi loknu.
Ljósm.: epj.
Er formaður D.S.
gerður að píslarvætti?
Nýja
Aðal-
vlkin
komin
í gærkvöldi var Aðaivík
KE-95, sem áður hét
Drangey SK. væntanleg til
Njarðvíkur i fyrsta sinn
undir þcssu nalhi. Um
áramótin fóru fram forni-
leg eigendaskipti togar-
anna Bergvíkur og Aðal-
víkur til Sauðárkróks og
Drangeyjar til Hraðfrysti-
húss Kefiavíkur.
Mun Aðalvíkin fá nafnið
Drangey SK, en Bergvíkin
nafnið Skagfirðingur SK.
Að sögn lngóifs Falssonar,
framkvæmdastjóra HK,
mun Aðalvíkinni verða
breytt í alfrystiskip í maí í
vor, en skipið er sem kunn-
ugt er hálffrystiskip.
í næstsíðasta tölublaði var
greint frá bókunum hrepps-
nefnda Gerða- og Miðnes-
hrepps um Hermann Ragnars-
son, stjórnarformann Dvalar-
heimila aldraðra Suðurnesj-
um. Þar kom m.a. fram að
hann hefði á fundi stjórnarinn-
ar verið með hótanir í garð
samstarfsaðila sem hann hafi
flutt ýmist í umboði meiri-
hluta bæjarstjórnar Keflavík-
ur eða bæjarstjórnarinnar í
heild.
Kom fram hjá hreppsnefnd
Gerðahrepps að þeir efuðust
um að hann talaði í umboði
bæjarstjórnarinnar. Vegna
þessa höfum við nú kynnt okk-
ur málið frá hlið Hermanns.
En 29. desember sendi hann
hreppsnefnd Miðneshrepps
greinargerð vegna máls þessa.
Þar koma m.a. fram harð-
orð mótmæli gegn þeim vinnu-
brögðum fulltrúa Sandgerð-
inga í stjórn DS að flytja
hreppsnefndinni skilaboð,
eins og þarna virðist hafa átt
sér stað, þar sem enginn grein-
armunur er gerður á vanga-
veltum og staðreyndum. Segir
Hermann í greinargerð þessari
að „þessi vinnubrögðeruótrú-
lega fjarstæðukennd'*. Kemur
fram að hann hafi á umrædd-
um stjórnarfundi DS talað út
frá sínum persónulegu skoð-
unum en ekki í umboði bæjar-
stjórnar Keflavíkur.
Síðan segir orðrétt: „A
stjórnarfundinum vísaði ég í
viðræður mínar við einstaka
ónafngreinda bæjarfulltrúa og
lagði persónulegt mat mitt á
það hver yrði hugsanleg af-
staða bæjarstjórnar Keflavík-
ur til skýrslu fjárhagsnefndar-
innar.“ Þá segir hann síðar: „I
umræddu bréfi Miðneshrepps
(sem lagt var fyrir stjórn SSS-
innskot blaðamanns) er
aragrúi af missögnum og rang-
færslum, sem mér þykir afar
leitt að fram skuli koma frá
opinberum aðila.“ Síðan færir
hann ýmis rök fyrir máli sínu.
„Virðist sem Hermann
hafi hér verið notaður sem
píslarvottur í máli sem ein-
hverjir hafi áhuga á að gera
fjaðrafok út af. En í máli þessu
hefur m.a. komiðfram að Mið-
nesingar vilja að Keflavíkur-
bær gefi DS Hlévang," sagði
einn viðmælenda blaðsins um
mál þetta.
Gekk berserksgang
í Grindavík:
Gröf 40 holur
í húsagarði
Honum hefur heldur betur
verið heitt í hamsi, manninum
sem gekk berserksgang í hús-
garði einum í Grindavík á ný-
ársdag. Það var kl. 13:35 að
lögreglan fékk tilkynningu um
mann nokkurn sem hamaðist í
húsgarði einum við sérstæða
iðju. Þegar lögreglan kom á
vettvang var maðurinn búinn
að grafa 40 djúpar holur í hús-
garðinn áður en tókst að
stöðva hann.
Mér skilst að þetta hafi
verið óþolinmóður golfari..
----------------------------I
5S b
m ' m ■" • _ m ■n v S
TRÉ L/v
TRE-X INNIHURÐIR
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700