Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.1989, Page 7

Víkurfréttir - 26.01.1989, Page 7
MlKUK (UUU Herbílar Pósts og Síma: Til umsagnar í ráðuneytinu Annar bílanna umræddu, númeralaus við lögreglustöðina í Keflavík. Ljósm.: hbb. Molagrein í síðasta blaði um herfang það, sem Póstur og sími hefur haft í þjónustu sinni síðan um áramót, hef- ur vakið mikla athygli og fóru leikar svo að lögreglan kyrrsetti umrædda bíla og klippti af þeim númerin. Við rannsókn lögreglunn- ar hefur komið í ljós, aðsögn Óskars Þórmundssonar, að utanríkisráðuneyfið hafði heimilað umrædda notkun bílanna á nafni Pósts og síma. Þessi vinnubrögð, svo og umskráning bílanna á J- númer, telur lögreglan hins vegar óeðlileg og því hefur málinu nú verið vísað til dómsmálaráðuneytisins til umsagnar. Meðan beðið er eftir um- sögn þess ráðuneytis eru bíl- arnir kyrrsettir hjá lögregl- unni. Vegna ummæla Ríkismats sjávarafurða: Jsum allan okkar fisk“ - segir Guðmundur Ólafsson, skipstjóri á Sigurði Þorleifssyni GK Nokkurrar reiði gætir meðal sjómanna á línu- og netabátum vegna ummæla Gísla Jóns Kristjánssonar hjá Ríkismati sjávarafurða í síðasta blaði. Þar sagði hann að Ríkismatið ætti í erfiðleik- um með að fá sjómenn á línu- og netabátum til þess að ísa aflann um borð og kæmi þar af leiðandi mun lélegri afli á land á Suðurnesjum en ann- ars staðar á landinu. Blaðið hafði samband við Guðmund Ólafsson, skip- stjóra á Sigurði Þorleifssyni, og hafði hann þetta um mál- ið að segja: „Ég er alls ekki sáttur við það sem Gísli Jón lætur frá sér fara. Það er greinilegt að maðurinn hefur ekki komið á Suðurnesin undanfarin tvö ár. Við höfum ísað allan okk- ar afla í kör síðustu tvær ver- tíðir og ísað allan fisk í skip- inu síðustu 4-5 ár, eða frá því að ísstöðin var sett upp hér á hafnarbakkanum í Grinda- vík.“ Sagði Guðmundur að Gísli Jón hjá Ríkismati sjáv- arafurða gæti leitað til Fisk- markaðs Suðurnesja til þess að fá sönnun fyrir þessu, því þar hafi öllum afla verið landað á síðustu vertíð. Fimmtudagur 26. janúar 1989 7 „Sáum f ram á að fæðingin yrði í sjúkrabílnum" - segir Matthías Guðmundsson, sjúkraflutningsmaður úr Grindavík, sem tók á móti barni í sjúkrabíl á Reykjanesbraut Fjórtán marka stúlkubarn fæddist í sjúkraflutningabíl frá Grindavík, er hann var staddur ofan við Straums- vík, á leið til Reykjavíkur. Engin ljósmóðir var með í ferðinni og þegar að því kom að móðirin, Theódóra Bragadóttir, skyldi fæða barnið, kom það í hlut Matt- híasar að taka á móti barn- inu. Víkurfréttir höfðu sam- band við Matthías, sem er eini fastráðni sjúkraflutn- ingsmaðurinn í Grindavík, og báðu hann að lýsa atburð- arásinni í stuttu máli. „Það var seinnipart síð- asta föstudags sem sjúkra- bíllinn var kallaður að Tún- götunni hér í Grindavík til þess að flytja barnshafandi konu á sjúkrahús í Reykja- vík. Þegar við vorum lögð af stað til Reykjavíkur, þá var orðið mjög stutt á milli hríða hjá konunni og sáum við fram á það að við myndum ekki ná til Reykjavíkur áður en fæðingin myndi eiga sér stað, þannigað barnið myndi fæðast í bílnum. Við vorum síðan stödd ofan við Straumsvík þegar stúlku- barnið kom í heiminn." -Hvernig gekk fæðingin? „Fæðingin gekk mjög vel en þetta gerðist allt mjög fljótt. Akstursskilyrði á Reykjanesbraut voru hins vegar mjög slæm vegna hláku, þannig að það var mikið vagg og velta inni í sjúkrabílnum.“ -Að lokum. Er sjúkrabíll- inn búinn til fæðinga? „Sjúkrabíllinn er pláss- mikill og í honum eru svo- kallaðir fæðingapakkar. Það er allt til alls, þannig að okk- ur er ekkert að vanbúnaði,“ sagði Matthías Guðmunds- son, sjúkraflutningsmaður úr Grindavík, að endingu. Þess má síðan geta hér að barnsfaðirinn heitir Jón Þór Dagbjartsson, og var liann viðstaddur fæðinguna. o ö roi i HAFNARGÖTU 90 Ft tl KEFLAVfK

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.