Víkurfréttir - 26.01.1989, Page 12
\)IKUR
Fimmtudagur 26. janúar 1989
Aðalfundur
fig) Golfklúbbs
/ Suðurnesja
verður haldinn í Golfskálanum, sunnudag-
inn 5. febrúar kl. 14.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Félagar, mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
ÞORRABLOT
Þingeyingafélagsins
Hið árlega þorrablót Þingeyinga verður
haldið í Stapa, laugardaginn 4. febrúar og
hefst með borðhaldi stundvíslega kl. 19.
Hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar sér um
dinner- og dansmúsík. Gómsætur þorra-
maturinn verður eitthvað kryddaður með
andlegu fóðri.
Miðasala fer fram í Stapa, fimmtudaginn 2.
febrúar frá kl. 17 til 19. Upplýsingar veittar
í símum 11619 og 12516 eftir kl. 19.
Nefndin
Konur
Námskeiðið Stofnun og rekstur fyrir-
tækja fyrir konur verður haldið dag-
ana 3.-4. febrúar og 10.-11. febrúar í
Keflavík. Þetta er 26 kennslustunda
námskeið með vönduðum náms-
gögnum.
Meðal efnis: Stofnandi og stjórnun, gerð
stofnáætlana, markaðsmál, fjármál, reikn-
ingsskil og eignarform fyrirtækja.
Staður: Hafnargata 90.
Fyrri hluti: föstudaginn 03.02. kl. 18.00-
22.30 og laugardaginn 04.02. kl. 9.00-17.00.
Seinni hluti: föstudaginn 10.02. og laugar-
daginn 11.02. á sama tíma.
Þátttaka tilkynnist til: Iðntæknistofnunar
íslands í síma (91 )-687000 eða til Atvinnu-
þróunarfélags Suðurnesja í síma 14027 fyrir
núðvikudaginn.
Iðntæknistofnun
Islands
Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja hf.
jútUv
Um spásagnaranda
Víkurfrétta
22.01.89.
Hr. ritstjóri.
Vegna fréttar á baksíðu Víkur-
frétta í síðustu viku um 20 milljón
kr. fjárveitingu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum tilSjúkrahússKefla-
víkurlæknishéraðs til bygginga-
framkvæmda vil ég biðja um að
leiðréttur verði sá misskilningur
sem þar cr og eftirfarandi birt:
Fjárhagsnefnd SSS lagði til í
samræmi við áður gerða skýrslu
unr málefni aldraðra að kr. 20
milljónum verði varið úr sveitar-
sjóðum á árinu 1989 til bygginga-
framkvæmda í þeim málaflokki.
Tillagan skiptist í 19,3 milljónir
til D.S. og 0,7 milljónir til S.K.
sem er framlag sveitarfélaganna á
móti fjárveitingum ríkisins.
Þar scm ríkisstjórn íslands hef-
ur ekki enn heimilað framkvæmd-
ir við D-álmu sjúkrahússins er því
miður ekki um fjárveitingu úr
sveitarsjóðum að ræða að þessu
sinni til byggingaframkvæmda.
Kllcrt Kiríksson
Hinsvegar er það ósk allra Suður-
nesjamanna að framkvæmdaleyfi
D-álmu komi sem fyrst. Ekkert
væri mér kærara en að Víkurfréttir
gætu nú í sumar birt forsíðufrétt
þess efnis að fyrsta skóflustungan
að D-álmu hefði verið tekin og
framkvæmdir hafnar.
Einnig að sveitarfélögin á Suð-
urnesjum legðu fram kr. 20 millj-
ónirtil verksinsáárinu 1989. Von-
andi er hér því um spásagnaranda
Víkurfrétta að ræða í áðurnefndri
frétt.
Varðandi setu sömu manna í
stjórn SSS og fjárhagsnefnd SSS er
rétt að taka fram að á þeim fund-
um stjórnar SSS, þar sem tillögur
fjárhagsnefndar eru til afgreiðslu,
mæta aðeins kjörnir sveitarstjörn-
armenn og fjárhagsnefndarmenn
víkja. Svo var einnig s.l. fimmtu-
dag, enda eðlilegt að sömu menn
fjalli ekki um eigin tillögur beggja
megin við borðið, þótt svo þeir
gætu setu sinnar vegna í stjórn
SSS.
Ekki legg ég blaðinu þennan
misskilning til lasts, þar sem
stjórnkerfið er ekki með þeim
hætti að allir hafi það á reiðum
höndum.
Með virðingu og vinsemd,
Ellert Eiríksson,
formaður fjárhagsnefndar S.S.S.
ATHUGASEMD
Vegna ruglingslegra og rangra
frétta í Víkurfréttum varðandi
uppgjör á skuldum Sjúkrahúss
Keflavíkur við fjármálaráðuneyt-
ið, tel ég mér skylt að koma eftir-
farandi staðreyndum á framfæri.
Strax og núverandi stjórn S.K.
tók við, tók hún til við að fá botn í
Ijármál sjúkrahússins.
Daggjaldanefnd sjúkrahúsa úr-
skurðaði 1986 að sveitarfélögun-
um bæri aðgreiða hlutaaf hallaár-
anna 1985 og ’86, samtals að upp-
hæð kr. 14,5 milljónir.
Fjármála- og heilbrigðisráðu-
neyti ásamt Ríkisendurskoðun
settu vorið 1987 sameiginlega
nefnd í málið. Sveitarstjórnar-
menn komu þar ckki nærri, en
form. stjórnar S.K. og þó aðallega
framkvstj. stóðu í viðræðum við
þessa nefnd.
Seinnihluta sumars 1987 var
lokið við að fá botn í stöðu fjár-
mála S.K. Útkoman varð sú að
S.K. skorti um kr. 56 milljónir til
þess að endar næðu saman í rekstri
áranna 1985 og ’86.
Form. stjórnar og framkvstj.
S.K. mótmæltu úrskurði Dag-
gjaldanefndar frá 1986 og héldu
stíft Iram að ríkið yrði að greiða
allan rekstrarhallann.
Nefndarmenn bcntu þá á að
raunverulega skulduðu sveitarfél-
ögin langt í sömu upphæð og Dag-
gjaldanefnd væri að krefja, vegna
framkvæmda við skurðstofu og
kaupa á Mánagötu 9, sem skort
hafi heimildir fyrir. Kostnaður
vegna þessa væri í skuld og búinn
að hlaða á sig vöxtum, sem hlytu
að falla á sveitarfélögin.
Nefndin féllst á að ríkið greiddi
venjulegt hlutfall i þessum fram-
kvæmdum og kaupum á verðlagi
þess tima sem í þetta var ráðist,
sem töldust, með endurbótum kr.
16,2 milljónir fyrir ríkissjóð.
Nefndarmenn töldu sveitarfél-
ögin þar með sleppa vel frá þess-
um málum með þvi að greiða
aðeins kr. 14.5 millj. af rekstrar-
hallanum. í Ijós kom líka aðnokk-
uð var um að kostnaður sem til-
heyrði Heilsugæslunni hafði verið
færður á Sjúkrahúsið.
Við sluppum með að bað var að-
eins leiðrétt eitt ár aftur i tímann.
Það kostaði þó sveitarfélögin kr.
2,8 millj.
Olafur Björnsson
í des. ’87 fengust nefndar 14,5
milljónir gcgnum Ijármálaráðu-
neytið, lánaðar vaxtalaust til loka
sept. ’88.
Sveitarfélögin áttu að nota þann
tíma til að ganga frá skiptingu sin
á milli og semja um greiðsluskil-
mála.
Það drógst að forsvarsmenn
sveitarfélaganna gengu frá þessum
málum, meðal annars vegna þess
að þeir gcrðu sér vonir um að
koma hluta af þessari upphæðsem
eftir stóð á rikið. Helst fá henni
skipt til helminga.
Frestur þessi rann út í lok sept-
ember ’88. Framkvstj. S.K. fékk
fregnir um að ef ekki yrði búið að
ganga frá þessum málum á til-
skildum tima yrði skuldin dregin
frá rekstrarfjárveitingu til S.K.
Þetta létum við ganga til stjórnar
S.S.S.
Nefnd frá S.S.S. hafði átt einn
fund með fulltrúum frá ráðuneyt-
inu s.l. sumar, en síðan halði ekk-
ert verið aðhafst. í okt. skipar
S.S.S. nýja nefnd, sem gekk end-
anlega frá málinu við ráðuneytin,
með fyrirvara um saniþ. sveitar-
stjórnanna, sem nú munu allar
búnar að staðfesta það samkomu-
lagið.
Frá upphafi var vilvrði fyrir að
ríkið greiddi allan halla áranna
1987 og ’88. Enda viðurkennt að
reksturinn hafði batnað verulega
frá lýrri árum.
Það sem nýtt er i endanlegu
samkomulagi er að S.K. fær nú
strax samþykki fyrir fjórum nýj-
um stöðugildum, sem beðið hafði
verið um að fengjust á tveimur ár-
um. Það kemur sér mjög vel því
stöður við S.K. hafa verið umfram
heimildir.
Einnig var nú samið um að
stjórn og framkvstj. S.K. skuli
bera ábyrgð á að reksturskostnað-
ur fari ekki fram úr því sem veitt er
á fjárlögum. Fróðlegt verður að
fylgjast með hvort S.S.S. setur
stjórnum annara stofnana sinna
sömu kosti í þessum efnum.
Stjórn S.K. hefir loksins náð
samkomulagi við heilbrigðisráðu-
neytið um hvernig rekstri S.K.
skuli haga um næstu framtíð. Tals-
verð óvissa er um hver kostnaður
verður endanlega og vel gæti svo
farið að enn verði að herða að, þótt
mörgum þyki þegar nóg að gert.
Stjórn S.K. hefir samþ. að gera
sitt besta til þess að standa við það
samkomulag sem búið er að gera
og treystir á stuðning sveitar-
stjórnanna við erfiðar ákvarðanir
sem óhjákvæmilega verður að
taka.
Rugl Víkurfrétta um fjárveit-
ingu til D-álmunnar læt égöðrum
eftir að leiðrétta. Itreka aðeins að
enn hefir heilbrigðisráðuneytið
ekki gert neina tillögu um fjárveit-
ingu til þeirra framkvæmda.
Olafur Björnsson,
stjórnarform. S.K.
Ö, þessi
pólitík
Það fer ekkert á milli mála að
menn eru farnir að spá í næstu kosn-
ingar, a.m.k. Ólafur Björnsson,
sem telur misskilning vera rugl, svo
og aðrar skoðanir en hans eigin.
Rétt er að geta þess að frásögnin
á baksíðu síðasta tölublaðs var röng
vcgna mannlegra mistaka hér á
blaðinu. Þvi var sjúkrahúsinu ætluð
fjárveiting sem öldrunarmál áttu.
Aðrir þættir er fram komu í um-
ræddri frétt stendur blaðið við.
Emil Páll Jónsson.