Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.01.1989, Síða 13

Víkurfréttir - 26.01.1989, Síða 13
Mimn juiUt Fimmtudagur 26. janúar 1989 13 Þjónustuútboð Flugleiða: Átta tilboð bárust Alls bárust átta tilboð í þjónustuútboð Flugleiða h.f. á Keflavíkurflugvelli, en þau voru opnuð á föstudag. Til- boð þessi eru frá eftirtöldum aðilum: Leifur h.f., Reykjavík, 640.498.940 kr.; Handtak h.f., Keflavík, 652.166.070 kr.; Lárus Einarsson, Mos- fellsbæ, 577.077.260 kr.;Ský h.f., Njarðvík, L698.922.03Ö kr.; Securitas h.f., Reykja- vík, kr. 595.817.684; Skuld h.f., Reykjavík, 658.022.166 kr.; Reynir Olsen, Garðabæ, kr. 784.363.768 og Hilmar Sölvason og Sigurbjörn Björnsson kr. 630.015.230. Að baki fyrirtækisins Handtaks h.f. eru Hermann Ragnarsson, Jón Norðfjörð o.fl. en Ský h.f. er Jósep Val- geirsson o.fl. Samkvæmt þessu buðu þrír hópar Suð- urnesjamanna í verkið. Þar af eru tveir sem hugsanlega gætu lent í þeim hópi sem valið verður úr. Um 9 milljónir til öldrunarmála: „Meiri háttar barnaskapur' - segir Karl Steinar Guðnason um hlut annarra í því máli Víkurfréttir birtu á sínum tíma frétt þess efnis að Karl Steinar Guðnason alþingis- maður hefði hugleitt að hætta stuðningi við ríkisstjórnina fengist ekki fé í D-álmuna. Vakti frétt þessi feiknaathygli en hvað svo? Karl Steinar fylgdi ríkisstjórninni við af- greiðslu frumvarpa fyrir jólin. Þá hefur heyrst að þær 9 milljónir sem í fjárlögum eru sagðar „til öldrunarþjónustu á Suðurnesjum“ megi rekja til þessa atfylgis Karls Steinars. Sumir telja þó að rekja megi þessa fjárveitingu til skýrslu um öldrunarmál á Suðurnesj- um sem lögð var fram af fjár- hagsnefnd SSS. En hvað segir Karl Steinar um málið? Er þetta til komið vegna þrýstings frá honum og hefur hann samþykkt, eftir ít- arlegar viðræður við heilbrigð- Karl Steinar (.uðnason is- og fjármálaráðherra, að upphæðin skyldi ekki sérstak- lega merkt D-álmunni til að auðvelda framgang málsins í fjárveitinganefnd? „Jú, þetta er rétt. Hinsvegar er mér nákvæmlega sama hver þakkar sér þessa fjárveitingu. Eg hefi orðið var við að aðrir gera það. Auðvita er það meiriháttar barnaskapur að ætla, að á sama tíma og alls staðar er skorið niður, þá þurfi bara góðlátlega heimsókn embætt- ismanna í ráðuneytin til að framkalla fjárveitingu. Það væri nýtt ef svo væri og þeim þætti það frétt í fjárveitinga- nefnd. Það væri líka frétt fyrir heilbrigðisráðherra og fjár- málaráðherra, sem ég þurfti að eiga við varðandi þetta mál. Annars er þaðaðalatriðið að menn standi saman um þau nauðsynjamál sem heilbrigðis- þjónustan er. I þeim hremm- ingum sem áttu sér stað við gerð fjárlaga komst ég svo vissulega að því að það er mik- il andstaða í ráðuneyti og víð- ar í kerfinu við byggingu D- álmu við sjúkrahúsið. Þeim að- ilum er það mjög ljúft að menn deili hér syðra um þessi mál og nýta sér það óspart til að koma í veg fyrir fjárveitingar til Suð- urnesja." Innbrot Nýja Bíó Aðfaranótt sunnudagsins var brotist inn í Nýja bíó og stolið þaðan sælgæti að verð- mæti um tuttugu þúsund krónur. Eins og áður var far- ið inn í bíóið að neðanverðu í gegnum Bergás, sem áður var. Er málið nú í lögreglu- rannsókn og því óupplýst. Afmæli Þessi vinnuglaðastúlka hófí gær inngöngu á síðasta árið í sína fjóra áratugi. Tekur hún því á móti gjöfum og kveðjum á sínu öðru heimili að Vallar- götu 15, í dag. Karlrembudeildin Veislueldhús Flugleiða, flugstöð Sértilboð fyrir ferminguna VEISLUMATUR Á VÆGU VERÐI •KALTBORÐ • HEITUR MATUR • POTTRÉTTIR • SJÁVARRÉTTIR • BRAUÐTERTUR • SNITTUR • KOKTEILPINNAR KALT BORÐ • GRAFLAX • FISKIHLAUP • 2 TEG. SÍLD • SVÍNAHAM- BORGARSTEIK • ROAST BEEF • LAMBAMEDALÍUR ALLT ÞETTA FYRIR AÐEINS: • KJÖTPINNAR -barbique • GRÆNT SALAT • KARTÖFLUSALAT • BRAUÐ OG SMJÖR • 2 TEG. KALDAR SÓSUR • HEIT SÓSA 1300 kr. pr. mann LANUM LEIRTAU EF VEISLAN ER KEYPT HJA OKKUR 12 manna brauðtertur Aðeins kr. 1900 pantið tímanlega í SÍMA 50246 - 50235 KAFFISNITTUR fyrir ferm- inguna - Aðeins kr. 52. Flugleiðir hf.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.