Víkurfréttir - 26.01.1989, Síða 17
Fimmtudagur 26. janúar 1989 17
Hafnar-
gata 43
flutt
á brott
Karl Herbcrtsson, Hörga-
túni 26, Garðabæ, hefurósk-
að eftir því við bæjarsjóð
Keflavíkur að fá húseignina
Hafnargötu 43 til flutnings.
Hefur bæjarráð Keflavíkur
samþykkt erindið með því
skilyrði að flutningurinn
verði á ábyrgð Karls og án
kostnaðar fyrir bæjarsjóð.
Húsvarðar-
skipti í
Fjölbraut
Ráðinn hefur verið hús-
vörður í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í stað Maríusar
Sigurjónssonar sem látið
hefur af störfum af heilsu-
farsástæðum. Bárust alls
þrjár umsóknir um stöðuna,
þ.e. frá Sigurði Steinssyni,
bifvélavirkja, Kjartani Finn-
bogasyni, lögregluvarð-
stjóra, og Guðjóni Jóhanns-
syni, skipstjóra.
Samþykkti skólanefnd að
ráða Sigurð en tók jafnframt
fram að allir umsækjendurn-
ir væru mjög hæfir í umrætt
starf.
Gnúpur GK 11
Hinn nýi togari Þorbjörns h.f. hefur nú fengið nafnið Gnúpur GK 11. Sést hann hér í Njarðvíkurhöfn
skömmu fyrir síðustu helgi. Ljósm.: epj.
Trimform - kynning á Suðurnesjum:
Leið að bættri heilsu
Komið er á markaðinn danskt
tæki sem er smækkuð mynd af
tækjum þeim, sem skilað hafa
miklum árangri í heilsugæslu-
stöðvum, umönnunarstofnunum
og sjúkrahúsum. Eins og flestir
hafa séð og heyrt, þá eru þeir mjög
margir sem eiga í erfiðleikum
vegna margvíslegra kvilla í stoð-
og hreyfikerfi. Nægirþaraðbenda
á nýjustu kannanir vinnueftirlits-
ins.
Trimform-tækið, sem kynnt
verður, er sérstaklega ætlað til
heimilisnota. Því erætlaðaðvinna
bug á verkjum í hálsi og herðum,
vöðvabólguverkjum, bakverkjum
í efra og neðra baki.
Ennfremur má segja aðþarnasé
komin ný von fyrir gigtarsjúkl-
inga, fólk með bjúg og lélegt blóð-
streymi.
I dag hafa 46 heimili á Islandi
tekið Trimform í sína þjónustu og
utan eins tilfellis, þá eru allir í sjö-
unda himni með árangur Trim-
form-tækisins. Þetta fólk talar um
það að það hafi losnað við verkina
og pilluátið.
Mjög mikilvægt eraðfylgja leið-
beiningunum vel, sem allar eru á
íslensku og hannaðar afdönskum
læknum og sjúkraþjáll'urum eftir
fjögurra ára rannsóknarstarf t
dönskum endurhæfingarstöðvum.
Það er von mín að undirtektir
verði jafn góðar hér á Suðurnesj-
um sem ogannarsstaðará landinu
og að þeir, sem eru þjáðir af fyrr-
greindum kvillum, verði með á
kynningarkvöldunum," sagði
Magnús Jónatansson, innflytjandi
Trimform, að lokum. Annars
staðar í blaðinu birtist auglýsing
varðandi kynningu þessa.
Keflavík:
Þokkalegur
afli
„Það hefur gengið þokka-
lega hjá bátunum eftir ára-
mótin en það sem af er hefur
tíðarfarið verið nokkuð erf-
itt. Freyja var langhæst línu-
báta í síðustu viku, með 24
tonn. Annars hafa bátarnir
verið að fá þetta tíu til ellefu
tonn með tvær setningar, en
netabátarnir þetta ellefu og
upp í sautján tonn,“ sagði
starfsmaður á hafnarvigtinni
í Keflavík í samtali við blað-
jð.________________
Dregið í happ-
drætti Blindra-
vinafélagsins
Dregið hefur verið í hapji-
drætti Blindravinafélags í,s-
lands og komu eftirfarandi
vinningsnúmer upp: Mynd-
band á miða nr. 16991 og
myndavélar á miða nr. 3855,
19770, 23325, 19970, 13183,
5121 og 2823.
Dánardægur
misritaðist
Þau leiðu mistök urðu í
undirfyrirsögn minningar-
greinar í síðasta tölublaði að
sagt var að Alda Kristín Jó-
hannsdóttir hefði látist 9.
janúar 1989. En eins og fram
kom í minningargreininni
sjálfri lést hún 4. janúar.
Biðjumst við velvirðingar á
mistökum þessum.
Tilboðsverð
á plöntum
LEA 490 kr.
Hreiðurburkni 300 kr.
Sverðburkni 320 kr.
Mikið úrval af plöntum á góðu verði.
Ath. Opið í hádeginu.
Blómastofa Guðrúnar
Hafnargötu 36
Sími 11350
Skipasmíðastöð Njarðvíkur óskar að ráða
vélvirkja til starfa. Upplýsingar í síma
14088.
Skipastóll Suðurnesja:
TELUR 136 SKIP
í dag er heildarfjöldi skipa á
Suðurnesjum 136. Þar af eru
133 fiskiskip. Að auki eráSuð-
urnesjum stór floti opinna
skipa en ofangreindar tölur
miðast við þilfarsskip.
Þau þrjú skip sem ekki eru
fiskveiðiskip eru olíuskipið
Stapafell, sem er með heima-
höfn í Keflavík, hafnsögubát-
urinn Villi í Grindavik og
þjónustubátur við fiskeldi er
nefnist Tumi II.
Samkvæmt íslensku sjó-
mannaalmanaki 1989vorusex
Suðurnesjaskip tekin af skrá á
síðasta ári, samtals 685 tonn.
Tvö þeirra, Skúmur GK 22 og
Stafnes KE 130, voru seld úr
landi upp í kaup á öðrum, eitt
strandaði, tvö fórust og einu
var fargað. í staðinn voru 13
ný skip skráð til Suðurnesja,
alls 1600 tonn. Þau fimm sem
stærst eru í þeim hópi eru Jöf-
ur KE 17, 254 tonn, Skúmur
GK 22, 242 tonn, og Stafnes
KE 130, 176 tonn. Þá er eitt
skip á skrá hér syðra sem ekki
var gert út á síðasta ári. Það er
10 tonna stálbátur í Grindavík
er ber nafnið Drífa GK 83.
Stærsta skipið á Suðurnesj-
um er Stapafellið, 1432 tonn,
en fimm stærstu fiskiskipin eru
þessi:
Grindvíkingur GK 606,
577 tonn, Aðalvík KE 95
(nýja), 560 tonn, Olafur Jóns-
son GK 404, 488 tonn, Sjávar-
borg GK 60, 452 tonn og hinn
nýi GnúpurGK 11,436 tonn.
Iðnaðarhúsnæði
til sölu
250 ferm. iðnaðarhúsnæði til sölu að Iðavöllum, Keflavík.
Góð kjör.
167 ferm. iðnaðarhúsnæði til sölu í Njarðvík. Verð kr.
4.300.000. Útborgun 1.300.000. Eftirstöðvar til 4ra ára.
Steinsmíði hf. - Sími 12500-11753