Víkurfréttir - 02.02.1989, Qupperneq 7
_________________Fimmtudagur 2. febrúar 1989 7
Stjórnunarkostnaður sveitarfélaga 1987:
Langlægstur
í Keflavík
að meðaltali á hvern íbúa
Lokið er verulegum endur-
bótum á Hafbergi GK 377 frá
Grindavík. Fóru breytingar
þessar fram hjá Stálsmiðjunni
h.f. í Reykjavík og kostuðu um
35 milljónir króna. Eftir er
skipið nú sem nýtt.
Settur var bakki að framan
og nýr skutur. Var skuturinn
sleginn út og við það var skipið
lengt um 1,50 metra. Um leið
var ný brú sett á og allar vistar-
verur endurnýjaðar undir
brúnni þ.m.t. borðsalur, eld-
hús, salerni og íbúðir, að því er
fram kemur í Fiskifréttum.
Ein mesta breytingin er þó
fólgin í því að sett var nýtt
vindukerfi í skipið en fram að
þessu hefur Hafbergið nánast
aðeins verið á netum. Nú opn-
ast því möguleikar á togveið-
um.
Þá voru settir um borð nýir
kranar og lyftir annar 16 tonn-
um en hinn 9 tonnum. Þá var
einnig aukið við tækjakost í
brú skipsins.
Fyrir breytingar þessar var
Hafljergið 162 tonna skip. Það
er upphaflega smíðað íNoregi
1962 ogeríeigu Hælsvíkurh.f.
í Grindavík.
Samkvæmt Árbók sveitar-
félaga var stjórnunarkostnað-
ur sveitarfélaga á Suðurnesj-
um langlægstur í Keflavík. Þar
voru meðaltekjur með því
lægsta á hvern íbúa. Það
byggðarlag sem mestu varði til
íþróttamála það ár var Mið-
neshreppur.
Á næstunni munum við
birta fleiri tölur úr þessari at-
hyglisverðu bók. En á næstu
árum eru litlar breytingar fyr-
irsjáanlegar í þessum efnum
nema hvað útboð Flugleiða á
þjónustu í Leifsstöð og fast-
eignagjöld af þeirri byggingu
koma til með að breyta tekju-
er fær verkið greiða aðstöðu-
gjöld alfarið til Miðneshrepps,
eins og nú er með fasteigna-
gjöld af byggingunni.
Eins sjá menn fram á breyt-
ingar varðandi tekjur er runn-
ið hafa til Hafnahrepps, en þar
sem aðalstöðvar ÍÁV flytjast
nú í lögsagnarumdæmi Njarð-
víkur munu tekjur Hafna-
hrepps af þessari starfsemi
renna þangað í framtíðinni.
Ef tölurnar hér að framan
eru skoðaðar nánar kemur vel
í ljós að stjórnunarkostnaður
er í engu samræmi við meðal-
tekjurnar, ekki heldur sá stóri
kostnaðarliður sem íþrótta-
málin eru víða. Eins geta menn
séð í fljótu bragði að í sameig-
inlega þættinum er nú greitt
eftir höfðatölureglu. Ef þar
væri farið eftir tekjum á hvern
íbúa gæti núverandi hlutfall
sveitarfélaganna raskast
nokkuð. T.d. myndi hlutdeild
stærsta byggðarlagsins, Kefla-
víkur, breytast úr 48% meðal-
tali í 45%.
\tiKun
juiiit
Hafberg GK 377 eftir breytingarnar.
Ljósm.: Fiskifréttir.
35 milljón kr.
endurbótum
lokið
Byggðarlag: Stjórn. kostn. Meðal- tekjur íþrótta- mál
Kcflavík 3.800 47.000 3.100
Grindavík 5.200 57.000 2.600
Njarðvík 5.800 58.000 4.100
Miðneshreppur 6.700 52.000 4.600
Gerðahreppur 6.200 49.000 1.400
Vatnsleysustr.hr. 8.000 45.000 205
Hafnahreppur 17.700 \ 95.000 1.500
Ef við skoðum þessa þrjá
þætti hjá sveitarfélögunum
miðað við hvern íbúa kemur
margt forvitnilegt í ljós.
hlið Miðneshrepps verulega.
Áður en kom að útboði Flug-
leiða borgaði það fyrirtæki
landsútsvar en nú mun sá aðili
Veislueldhús Flugleiða, flugstöð
Sértilboð fyrir ferminguna
VEISLUMATUR
Á VÆGU VERÐI
•KALTBORÐ
• HEITUR MATUR
• POTTRÉTTIR
• SJÁVARRÉTTIR
• BRAUÐTERTUR
• SNITTUR
• KOKTEILPINNAR
KALT BORÐ
• GRAFLAX
• FISKIHLAUP
• 2 TEG. SÍLD
• SVÍNAHAM-
BORGARSTEIK
• ROAST BEEF
• LAMBAMEDALÍUR
• KJÖTPINNAR
-barbique
• GRÆNT SALAT
i
• KARTÖFLUSALAT
• BRAUÐ OG SMJÖR
• 2 TEG. KALDAR
SÓSUR
• HEIT SÓSA
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS I
1300 kr.
pr.
mann
LANUM LEIRTAU EF VEISLAN ER KEYPT HJA OKKUR
12 manna Aðeins kr. 1
brauðtertur 1900
Pantið tímanlega
í SÍMA 50246 - 50235
KAFFISNITTUR fyrir ferm-
inguna - Aðeins kr. 52.
Flugleiðir hf.