Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Síða 3

Víkurfréttir - 23.02.1989, Síða 3
\)iKiin ttitm Félagar í björgunarsvcilinni Ægi rcka töliildin Ijögur i lund al'tur, cn |iau voru komin um 50 m út í sjó. Ljósm.: hbb. Garður: Fjðrir hestar á sundi Fyrir snarræði björgunar- sveitarmanna í Garði tókst að koma í veg fyrir að fjögur hross færu sér að voða á sundi síðasta laugardag. Hestamaður í Garði hafði misst ftmm folöld úr girðingu á laugardeginum og höfðu þau orðið hrædd þegar reynt var að ná þeim aftur í girðing- una og tóku til fótanna og struku. Fóru fjögur þeirra í fjöruna neðan við Gauks- staði, en það fimmta var á hlaupum á túninu þar fyrir ofan. Þar sem séð var að ekki tækist að fá hrossin í land aft- ur og mikil hætta var á að þau tækju það til ráðs að synda á haf út var björgunarsveitin Ægir kölluð til. Var slöngu- bátur sveitarinnar sjósettur við Gerðabryggjuna, en um það leyti héldu hrossin fjögur til sunds. Hélt slöngubáturinn þegar á móti hrossunum, sem hafa verið búin að synda um 50 metra á haf út. Tókst að snúa þeim til lands að nýju og voru þau aðframkomin eftir sund- ið, en tóku þó á rás upp Gauk- staðatúnið svonefnda og tókst skömmu síðar að hemja þau. Var haft á orði eftir björg- unina að ef björgunarsveitin hefði komið mínútu síðar á vettvang, þá hefðu hrossin farið sér að voða en betur fór en í fyrstu á horfði. Fimmtudagur 23. febrúar 1989 3 SmSTOFMKM Morgun- og kvöldhópur að byrja. Innritun í fullum gangi. Grípið t ækifærið og skráið ykkur strax. Arnþrúður B. Árnadóttir, skrifstofutæknir, útskrifuð jan. ’89: „Námið var mun yfirgrips- meira en ég hafði haldið. Það hitti beint í mark hjá mérenda voru kennararnir frábærir og námið ítarlegt. Það var mjög ánægjulegt að hitta og starfa með því fólki sem var á nám- skeiðinu. Eg sé ekki eftir því að hafa fjárfest í skrifstofutækninámi, því það skilar sér margfalt til baka.“ Nám í skrifstofutækni opnar þér nýja möguleika í starfi. Kenndar eru allar helstu viðskipta- og tölvugreinar, sem gera þig að úrvals starfskrafti. Innritun og upplýsingar í símum 91-687590 & 686709. LO. LTölvufræðslan 1 llollsgötu 52 - Njuiöiik Borgartúni 28, Kcykjavik Rokkdans: Par úr Sandgerði íslandsmeistarar _ Ungt par úr Sandgerði, Ólöf Valdís Ragnarsdóttir og Viggó Maríusson, varð ís- landsmeistari í yngri riðli í Is- landsmeistaramótinu í rokk- dansi, sem haldið var á vegum Dansráðs íslands og skemmtistaðarins Hollywood um helgina. Sex pör dönsuðu til úrslita og báru þau Ólöf og Viggó sigur úr býtum, en þau eru 13 og 12 ára. Að sögn Auðar Haralds danskennara hóf parið nám i dansinum á síðastliðnu hausti í Dansskóla Auðar Haralds í Keflavík. Sigruðu þau með yfirburðurft en allir keppend- ur í úrslitum rokkdansins komu frá Dansskóla Auðar Haralds. Loðnufrysting: HK tekið á leigu íslenskur gæðafiskur í Njarðvík hefur tekið á leigu frystihús Hraðfrystihúss Keflavíkur. Að sögn Jóns Gunnarssonar hjá íslenskum gæðafiski er leigutíminn með- an loðnufrysting stendur yfir. Auk þessa rekur fyrirtækið áfram frystihús sitt í Njarð- vík en hugmyndin er að vinna vaktavinnu við loðnufrysting- una og var þegar búið að vinna eina 28 klukkustunda törn fyrir helgi. Er það helst að staðið hefur á nægu hrá- efni til að slík vinnsla gæti far- ið fram en þó var útlitið bjart- ara í þeim efnum er blaðið hafði samband við Jón á mánudag. Fjör á föstu- (SjldMMti dagskvöldi Diskótek frá kl. 23 til 03. Aldurstakmark 18 ára. Snyrtilegur klæðnaður. Sjáumst hress.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.