Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 9
Strand Eyrúnar ÁR: Tók niðri við sjó- setningu í tjörunni við Keflavikurslipp á föstudagsmorgun. Báturinn staðnæmdist einungis um metra frá skolpaffalli og því hægt að ganga beint út í bátinn. Ljósm.: hbb og cpj. Fimmtudagur 23. febrúar 1989 9 Aðilar frá útgerð og tryggingafélagi kanna skemmdir á skrokk bátsins. Stýri og skrúfa eru nt.a. skemmd. Nú er talið fullvíst að or- sök strands Eyrúnar AR 66 úti í Gróf, rétt norðan við bryggju Dráttarbrautar Keflavíkur, megi rekja til þess að bátinn tók niðri við sjósetningu á fimmtudegin- um. Við það fór stýri bátsins í skrúfuna og þar með varð báturinn stjórnlaus. Þar sem vél bátsins stöðv- aðist ekki gat hann bakkað frá bryggjunni en lét ekki að stjórn og því fór svo að bát- inn rak upp í fjöru. Eftir að bátnum hafði ver- ið snúið í fjörunni kippti björgunarskipið Goðinn bátnum út á síðdegisflóðinu á föstudag. I fjörunni ýttu stórvirkar vinnuvélar eftir bátnum. Er báturinn kom upp í slipp á ný kom í ljós að hann var furðanlega lítið skemmdur. Skipta þarf þó um nokkra planka í botni hans, stýrið og botnstykkið, lagfæra skrúfuna o.fl. Verð- ur verkið unnið inni í hinu stóra húsi slippsins en bátn- um var rennt þar inn. Eyrún ÁR 66 er 24 tonna eikarbátur, smíðaður á Akureyri 1973 og er í eigu Erlings Ævars Jónssonar, Þorlákshöfn. Er báturinn tryggður hjá Vélbátatrygg- ingu Reykjaness og hefur verið það frá því á árunum 1982-1983 að hann var gerð- ur út frá Sandgerði af Guð- laugi Sigursveinssyni, en þá bar báturinn sama nafn en númerið GK 157. Hefur báturinn að undan- förnu verið í miklum endur- bótum í Dráttarbraut Kefla- víkur en þar var m.a. settur á hann hvalbakur. Eyrún ÁR umlukin sjó á alla kanta, rétt eftir að bátinn bafði rekið upp í Ijöruna á fimmtudaginn. Öryggisbók -Trompbók Tvær í öruggum vexti Sparisjóðurinn í Keflavík býður tvær öruggar leiðir til ávöxt- unar. TROMPBÓK nýtt og betra Tromp- alltaflaus og án út- tektargjalds. ÖRYGGISBÓK - 12 tnánaða bundinn reikning- ur með stigbækkandi vöxtuni á allri uppliæðinni, eftir því sem innstæðan ltækkar. í fjármálum setjuni við öryggið ofar öðru. SPARISJÓÐURINN - fyrir þig og þina

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.