Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 8
MUR 8 Fimmtudagur 23. febrúar 1989 | (UUU molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Páll Heimamenn sitja ekki við sama borð Þegar fram fara útboð sveitarfélaga á Suðurnesjum virðist oft gleymast mikil- vægt atriði, en það er að verð- hugmyndir heimamanna mega oft vera töluvert fyrir ofan lægsta verð, en eru þó besti kosturinn. Því af því til- boðsverði sem heimamenn setja fram kemur stór hluti til baka í formi aðstöðu- gjalda og útsvara, en verð ut- anbæjarmanna fer allt burt. Þessi þáttur vill því miður alltof oft gleymast. Því sitja heimamenn alls ekki allir við sama borð og sveitarfélögin stuðla þarna ekki að því að halda atvinnunni heima fyrir. Mikill áhugi fyrir strandinu Sjaldan hefur sést annar eins áhugi fyrir nokkrum at- burði í Keflavík eins og strandi Eyrúnar ÁR á dög- unum. Alveg frá því að bát- urinn hóf að reka áleiðis upp í fjöru og þar til hann var kominn upp í sleða dráttar- brautarinnar eftir björgun- ina fylgdist mikill fjöldi fólks með atburðinum. Segja fróð- ir menn að bæði íþrótta- hreyfingin og Sjómanna- dagsráð megi vera öfund- sjúk yfir þeim fjölda sem mætti þarna til leiks. Var strandið „praktískt“? „Er praktískt að stranda við slippinn?" sagði Loki þeirra DV-manna um strand Eyrúnar. Kannski eru þessi orð ekki svo fjarstæðukennd þegar á allt er litið. Þó ná- lægðin við slippinn hafi kannski ekki breytt miklu, má segja að strandið hafi breytt einhverju fyrir slipp- inn. Því er báturinn var sjó- settur sáu menn þar fram á einhvern samdrátt í verkefn- um sem breyttist örlítið við strandið. Að þessu leyti hlýtur strandið að teljast praktískt. Hvenær verður her- inn stoppaður af? Er herinn á Keflavíkur- flugvelli ekki farinn aðganga of langt, þegar ltann er far- inn að senda hópa í tveimur herrútum upp í Bláfjöll eins og átti sér stað á laugardag? Með þessu háttalagi er her- inn að fara inn á brautir inn- lendra aðila að margra dómi. Hlýtur því að koma von bráðar upp sú staða að hern- um verði greint frá því að nú sé nóg komið af yfirgangi þeirra. Ráðsmennska hersins Hvað ætla stjórnvöld þessa lands lengi að þráast við að setja hernum á Kefla- víkurflugvelli þær reglur að þeir versli alla þá þjónustu sem hægt er af innlendum aðilum? Ekki bara smávegis kjöt, brauð og mjólk, heldur líka allt hitt. Menn verða að fara að hætta þessum undir- lægjuhætti við herinn, annað gengur ekki. Búið að tvístra bakaríinu Þá er með öllu útséð að bakarí rísi aftur upp úr þrotabúi Ragnarsbakarís, því nú er búið að tvístra eign- unum í allar áttir. Hefur Sig- urjónsbakarí yfirtekið sölu- búðirnar í Samkaupi og á vellinum en Myllan þá á Hringbrautinni. Þá er nán- ast búið að selja allt seljan- legt úr tækjabúnaðinum og herma sögur að þar hafi í sumum tilfellum verið frek- ar um gjöf en sölu að ræða. Munu því margir kröfuhafar í búið sitja eftir með sárt enn- ið, þó öðrum s.s. Keflavíkur- bæ hafi tekist að fá upp í sín- ar kröfur. Þriðji hver með Agli SL Sandgerðingar þykja ferðaglaðir mjög, eins og flestir Suðurnesjamenn. Þeir Sandgerðingar eiga líka sinn Kidda Dan, sem er Egill nokkur Olafsson. Hann hef- ur á undanförnum þremur árum selt yfir þúsund Sand- gerðingum ferðir til útlanda sem lætur nærri að sé um 70- 80% íbúa. Að meðaltali hef- ur hann selt þriðja hverjum Sandgerðing ferð á ári á undanförnum árum. Það er því óhætt að segja að Sam- vinnuferðir-Landsýn sé heppið að hafa svona dug- lega umboðsmenn sem þeir Kiddi Dan og Egill sannar- lega eru... Vanvirða við skólanefnd Skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurnesja hefur að undanförnu verið óhress með fjárveitingar sveitarfél- aganna á Suðurnesjum til skólans. Vegna þessa hefur hann nýlega sent stjórn SSS mikið skammarbréf, þar sem hann segir m.a.: „Afgreiðsla af þessum toga er vanvirða við störf skólanefndar og spyrja má hvort fjárhags- nefnd og stjórn SSS hyggst með þessu fordæmi sínu leggja niður skólanefnd og yfirtaka störf hennar að öllu leyti og jafnvel segja skóla- meistara enn frekar fyrir verkum.“ Hvað er Njarðvík og hvað Keflavík? Það er furðulegt hvað bæj- arstjórnir Njarðvíkur og Keflavíkur standa oft í þrefi um ýmis framfaramál. Þessi byggðarlög eru í huga alls þorra almennings eitt og hið sama. Fólkið sækir vinnu á víxl milli þeirra, Keflvíking- ar versla í Njarðvík og Njarð- víkingar í Keflavík. Hitaveit- an og Gjaldheimtan eru kornin í Njarðvík og enginn Keflvíkingur kvartar yfir því. Bæði byggðarlögin eru að fara út í sameiginlegan rekstur hafnanna og vatns- veitunnar. En þegar kemur að sundinu er annað uppi á teningnum. Þá vill Njarðvík- urbæjarstjórnin ekki að Njarðvíkingar syndi í Kefla- vík, þó þeir geri það samt og öfugt með Kefivíkinga. Það skrítna við þetta er neitun Njarðvíkinga um þátttöku í sundmiðstöðinni kemur upp á sama tíma og nánast ein- göngu Keflvíkingar halda uppi merki Njarðvíkinga í sundi. UTsm NÚ ER TÆKIFÆRIÐ TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP, ÞVÍ NÆSTU 7 DAGA ER ÚTSALA HJÁ OKKUR Á ÚLPUM OG ÖÐRUM SPORTFATNAÐIFRÁ BIZERTA SPORT 30-50% afsláttur. ÁLAFOSSbúóin Iðavöllum 14b Keflavík Orðhvatur: Ég er fegurðardrottning og brosi gegnum ... Hann nálgast óðum fegurð- ardagurinn mikli fjórði mars. En að kvöldi þess dags verður hún valin, fegurðardrottning okkar Suðurnesjamanna. En ég verð að segja að ég hef stórar áhyggjur af þessari keppni þetta árið, vegna þess að rétt fyrir fegurðardaginn mikla verður bjórdagurinn ógurlegi, fyrsti mars. Og ég er hræddur um að hann geti sett strik í fjórða mars eins og reyndar all- an marsmánuð. Ég óttast það mjög að ekki verði runnið af Suðurnesja- mönnum fjórða mars og eins óttast ég að ungfrúrnar í keppn- inni laumist í ölið og það svo hastarlega jafnvel að út skjótist á þeim bjórvambir, þannig að eróbikk og kjólasaumur undan- farnar vikur missi hvorutveggja marks. En kannski gerir það ekkert til, því engin af þessum stúlkum segist vera í þessu til að vinna, sei sei nei, þær eru þarna bless- aðar til að fá reynslu, kynnast hverri annarri og þroskast. Sig- ur kemur þessum litillátu stúlk- um ekki í hug. Orðhvatur tók eitt dæmigert fegurðarsamkeppnisviðtal við dæmigerða fegurðarsamkeppn- isstúlku: NAFN: Bergljót Ormsdóttir. ALDUR: 18 ára. SKÓLI: FS, er á viðskiptabraut. ÁHUGA- MÁL: Sund, eróbikk, skíði. FRAMTÍÐARÁFORM: Læra eitthvað í sambandi við ferða- mál og skoða mig um í heimin- um. Bergljót er 1,96 cm á hæð og 102 kíló. Bergljót tók það fram að hún er ekki í þessu vegna eig- in áhuga, hún var bara beðin um að fara og svo er þetta þrosk- andi, sagði Begga að lokum. Nei, þær segjast ekki hafa áhuga á að vinna. En hvað það varðar þá veit nú Orðhvatur lengra nefi sínu enda horft upp á margar fegurðardrottningar um æfina. Hann veit að inni í þeim öllum, þessum fallegu stúlkum, leynist ósk um að mega vinna ekki bara hér í Keflavík heldur allstaðar, þær hafa allar í sér svolítið af Hófí- sótt og pinulítið af Lindu-veiki. Þær dreymir um frægð og frama og ég lái þeim það ekki. -Bara að ég væri fegurðar- drottning. ef þú vilt gæði og gott verð

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.