Víkurfréttir - 23.02.1989, Page 19
l'HAIItUtiMt
MESSUR
Keflavíkurkirkja
Laugardagur 18. febrúar:
Jarðarför Steinars Þórhallssonar,
Framnesvegi 10, fer fram kl. 14.
Jarðarför Ástþórs Helgasonar,
Birkiteig 37, fer fram kl. 16.
Sunnudagaskóli kl. 11. Perlan dýr-
ma:ta. Af hverju afi? o.íl. Munið
skólabílinn. Takið sunnudags-
póstinn með svo við sjáum hve oft
þið hafið sótt sunnudagaskólann í
vetur.
Skátaguðsþjónusta kl. 14. Skátar
fjölmenna til kirkju í tilefni af
Baden Powell degi 22. febrúar.
Sóknarprestur
Ytri-Njarðvíkurkirkja
Messa og barnastarf kl. 11.
Sóknarprestur
Útskálakirkja
Sunnudagaskóli verður kl. 11.
Munið sunnudagaskólapóstinn.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Hvalsneskirkja
Sunnudagaskóli verður i Grunn-
skólanum Sandgerði kl. 14. Munið
sunnudagaskólapóstinn.
lljörtur Magni Jóhannsson
Kirkjuvogskirkja
Messa kl. 11. Sérstakur barnaþátt-
ur verður í messunni.
Sóknarprestur
Grindavíkurkirkja
Barnasamkoma kl. 11. Munið
framhaldssöguna.
Messa kl. 14. Altarisganga og
skírn.
Þriðjudagur kl. 20:30: Bænasam-
koma, kennd verður íhugunar-
bæn. Kaffi og umræður.
Sóknarprestur
Árshátíð Víðis:
ðlafur. Svanur
og Vilhjálmur
verðlaunaðir
Félagarnir Vilhjálmur Ein-
arsson, Olafur Róbertsson og
Svanur Þorsteinsson fengu
sérstaka viðurkenningu frá
stjórn Knattspyrnufélagsins
Víðis á árshátíð félagsins sem
haldin var síðasta laugardags-
kvöld fyrir fullu samkomuhúsi
í Garði.
Fékk Vilhjálmur Einarsson
viðurkenningu fyrir að hafa
leikið 250 leiki með meistara-
flokki, Ólafur Róbertsson
fyrir að hafa Ieikið 200 leiki og
Svanur Þorsteinsson fyrir 100
leiki með meistaraflokki.
Arshátíðin þótti takas! vel
en samkomúsið í Garði var
þéttsetið eins og áður sagði.
Hófst hátíðin með borðhaldi
og að því loknu var brugðið á
leik og fólk horfði á skemmti-
dagskrá í sjónvarpi Víðsýn,
sem sá um að halda hlátur-
taugum fólks við efnið. Að því
loknu var stiginn dans langt
fram eftir nóttu.
Svaitur Þorsteinsson, Ólafur Róbertsson og Villtjálmur Einarsson
voru heiðraðir á árshátíð Víðis.
Árshátíðargestir gæða sér á veitingunum. Ljósm.: hbb.
Fimmtudagur 23. febrúar 1989 19
Atli Vilhelmsson og Karl Finnbogason munu halda utan ívorog
æfa í viku til tíu daga með Glasgow Rangers eða Celtic í Skot-
landi. Ljósm.: hbb
Minningarsjóður
Ingimundar Guðmundssonar:
Fyrstu styrkir
veittir
Tveir ungir og upprennandi
knattspyrnumenn úr Víði í
Garði, þeir Atli Vilhelmsson
og Karl Finnbogason, voru
þeir fyrstu sent fengu styrk úr
nýjum sjóði sem stofnsettur
hefur verið hjá Knattspyrnu-
félaginu Víði til minningar um
Ingimund Guðmundsson,
fyrrum leikntann með Víði,
sem lést í bílslysi fyrir fáunt
árum.
Það var formaður ittinning-
arsjóðsins, Tómas Þorsteins-
son, sent afhenti þeim félög-
um, Atla og Karli, staðfest-
ingarskjal, þar sem þeim
stendur til boða að æfa í viku
til tíu daga nteð annað hvort
Glasgow Rangers eða Celtic á
vori kontanda.
t
Þökkum innilega auðsýnda santúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
PÁLS GUÐJÓNSSONAR
frá Lyjum, Strandasýslu.
Guðrún
Sigrún Fálsdóttir
Sigþrúður Pálsdóttir
Loftur Pálsson
Sigurbjörn Pálsson
Þórir Pálsson
Barnabörn
Pálsdóttir
Hjörtur Hjartarson
Halldór Hjálmarsson
Guðrún Einarsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
Ósk Jónsdóttir
og barnabarnabörn.
Glæný brauð og kökur alla daga
Alltaf eitthvað nýtt og spennandi