Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 23.02.1989, Blaðsíða 20
mun ýtitUí Fimmtudagur 23. febrúar 1989 AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717. Tvær í öruggum vexti. Sparisjóðurinn -fyrir þig og þína Loðnuvertíðin: 3200 tonn á land í síðustu viku Loðnubátar Suðurnesja- manna báru rúmlcga 3200 tonn af loðnu á land til vinnslu í síðustu viku og um belgina. Sunnuberg landaði tvisvar í síðustu viku í Cirindavík, rúm- lega 800 tonnuin, og Háberg- ið 1000 tonnum i tveim lönd- unum. Þá landaði Vaðlaberg- ið einu sinni, 311 tonnum, og Keflvíkingur einnig einu sinni, 289 tonnum af loðnu í Grinda- vík. í Njarðvík hafði Dagfari landað tvisvar sinnum í síð- ustu viku, samtals 670 tonn- um, og Kcflvíkingur einu sinni, 166 tonnum. Á mánudagsmorgun var verið að landa fullfermi úr Háberginu í Grindavík, 650 tonnum, en þá hafði einungis liðið sólarhringur frá því skip- ið hafði landað síðast í Grindavík. Nú er unnið af kappi í frystihúsunum hér á Suðurnesjum við það að frysta sem mest og loðnuskip- in kcppast við að ná sem mestu á land áður en loðnan hrygnir, en senn líður að því. 1 — m ' — * mmm l ííílllL TRÉ : /\ SPON PARKETT TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SÍMI 14700 Sandgerði: Flestir bátar á sjö um helgina Flestir Sandgerðisbáta fóru á sió um helgina ogsvo virðist vera sem brúnin sé örlitið að lyftast á sjómönnum sem gera út frá Sandgerði. Starfsmaður á hafnarvigtinni tjáði okkur að bátur einn hefði farið í fyrsta skipti á sjó á sunnudaginn var frá 5. desember i fyrra. Alls bárust 458,7 tonn á land í Sandgerði í síðustu viku. Aflahæstir í net voru Arney með 47,5 tonn í fimm róðrum, Sæborg með 39,7 tonn í þrem- ur róðrum og Hafnarberg með 29,8 tonn í fimm róðrum. Af línubátum var Jón Gunnlaugs með 32,7 tonn í tveimur róðrum, Una i Garði með 23,8 i tveimur og Freyja með 22,4 tonn í tveimur. Af smærri Iínubátum var Ragn- ar með 12,2 í fjórum róðrum og einnig Sóley úr fimm róðrum. Þá fékk Sleypnir 8,3 tonn úr tveimur róðrum. Léleg veiði var hjá drag- nótabátum og fékk Baldur 5,1 tonn, Bliki 4 tonn og Haförn 3 tonn, allir í þremur róðrum. Skuldastaða Keflavíkurbæjar: Betri staða um áramót Skuldastaða Keflavíkur- bæjar við sameiginlega rekin fyrirtæki á Suðurnesjum hef- ur örlítið batnað samkvæmt því er hún var um mánaða- mót. En þá skuldaði Kefla- víkurbær tæpar 35 milljónir til þessara fyrirtækja. Sundurliðun er þannig við einstök fyrirtæki: Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum .. 2,5 milljónir Fjölbrautaskólinn, inneign .......... 143 þúsund Heilsugæslustöð Suðurnesja...... 7,8 milljónir Sjúkrahús Keflavíkur- læknishéraðs...... 2,1 milljón Sorpeyðingarstöð Suðurnesja ..... 2,7 milljónir Dvalarheimilin .. 9,2 milljónir Hitaveita Suðurnesja .... 10,6 milljónir Eins og sést á þessu eru skuldir alls staðar nema hjá Fjölbrautaskólanum. Eftir sem áður er bæjarfélagið stórskuldugt og veldur það viðkomandi fyrirtækjum nokkrum erfiðleikum. Létt sveifla í Félagsbíói l.éttsveil Tónlistarskúlans i kellavík. ásamt hljómsveit l'rá Akranesi, munu koma fratn jt tónleikum, sem haldnir verða í 1 elagsbiói i Kel'la- vík n.k. laugardag, og spila fjölmörg þekkl lög. Heljast lónleikai nir kl. 17 og verða aðgöngumiðar seldir við innganginn - Meðlylgjandi Ijósmynd tók l’áll Ketilsson á ælingu l.eltsveitarinnar nýverið. Staðgreiðsla kemur við sveitarfélögin c I c^p ’ hef Itlerað að Njarðvikingar verði ekki boðnir í opnunar- kokteilinn i haust. þegar útilaugin opnar . . . Breytingin á staðgreiðslu skatta og innheimtu í gegn um Gjaldheimtu Suðurnesja hefur valdið nokkrum vand- kvæðum hjá hinum ýmsu sveitarfélögum á Suðurnesj- um. Áður en þetta kerfi var tekið upp komu tekjurnar jafnt og þétt til sveitarfélag- anna og mest á eindaga, sem er 15. hvers mánaðar. Nú koma tekjurnar að mestu í einni greiðslu sem kemur 25. hvers mánaðar, þ.e. 10 dögum eftir eindaga. 1 einstaka tilfellum koma þessar tekjur þó þann 18., en þar er um undantekningar að ræða að sögn Stefáns Jóns Bjarnasonar, sveitarstjóra Miðneshrepps og formanns SSS. Þórarinn St. Sigurðsson, sveitarstjóri Hafnahrepps, sagði í samtali við blaðið að vegna þessa þyrftu sveitar- félögin í raun að aðlaga sig breyttu innstreymi á fjár- magni og gæti sú aðlögun tekið allt upp í tvö ár.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.