Víkurfréttir - 19.04.1989, Síða 5
Allra síðasta sýning
á revíunni
Við kynntumst fyrst í Keflavík“
föstudaginn 21. apríl kl. 21 í Félagsbíói.
Miðasala hefst kl. 19 sama dag.
Leikfélag Keflavíkur
Miðvikudagur 19. apríl 1989 5
Sendum Njarðvíkingum og
Suðumesjamönnum bestu óskir
um gleðilegt sumar.
Njarðvíkurbær
r
Oskum Kejlvíkingum og Suður-
nesjamönnum gleðilegs sumars
og hvetjum fólk til þátttöku
í hátíðarhöldum dagsins.
Keflavíkurbær
£53
C3
Loðnuveiðarnar fóru m.a. fram að þessu sinni uppi í landsteinum
hér við norðanverðan skagann. Hér er Gígja VE að veiðum undir
Vatnsnesvita. Ljósm.: epj.
Loðnuveiði lokið:
Tæp 47 þús. tonn
til Suðurnesja
Loðnuvertíð er nú lokið. í
Suðurnesjahöfnum var land-
að tæpum 47 þúsund tonn-
um af loðnu, bæði til bræðslu
og frystingar.
I Grindavík var landað
25.831 tonni, þar af 3778
tonnum til frystingar. í
Sandgerði bárust 13.291
tonn á landi, þar af 1568
tonn til frystingar. 1 Njarð-
vík og Keflavík var landað
7.441 tonni afloðnu,en tölur
yfir það magn sem fór til
frystingar lágu ekki fyrir,
þegar samantektin var gerð.
Af þessum tæpu 47 þús-
und tonnum, sem hér var
landað, fóru rétt rúm 1000
tonn í meltuverksmiðjuna
Valfóður og í síðustu viku
landaði Vestmannaeyjaskip-
ið Bergur 231 tonni af loðnu,
sem fór til vinnslu hjá Roði
hf. á Reykjanes, sem fram-
leiðir m.a. kattamat.
Grindavík:
4 teknir fyrir
hraðaakstur
Þegar götur eru auðar
eykst hraðinn til mikilla
muna og margir hafa gaman
af því að gefa ökutækjunum
aðeins betur inn. Þessi leikur
er oft skammgóður vermir
hjá mörgum, því í síðustu
viku stöðvaði lögreglan í
Grindavík íjóra ökumenn,
sem kitluðu pinnann um of.
Voru tveir teknir á Austur-
vegi í Grindavík, annað á 88
en hinn á 90 km hraða, en há-
markshraði á þessum vegi er
50 kílómetrar. Einnig stöðv-
aði Grindavíkurlögreglan
tvo ökumenn á Grindavík-
urveginum fyrir of hraðan
akstur, annan á 112 km
hraða en hinn á 122 km
hraða. Mega þessir ökumenn
annað hvort búast við sekt-
um eða ökuleyfamissi.