Víkurfréttir - 19.04.1989, Blaðsíða 6
Miðvikudagur 19. apríl 1989
mun
jUtUt
molar
Grín - Gagnrýni - Vangaveltur
Umsjón: Emil Páll
Til hvers var
Steindór keyptur?
Þegar áform voru uppi um
kaup SBK á starfsemi Stein-
dórs Sigurðssonar sáu þeir,
sem voru þessu fylgjandi, að
auðveldara væri að reka eitt
fyrirtæki en tvö og samræma
mætti ýmislegt í rekstri SBK
eftir sameininguna. Nú,
þremur vikum eftir samein-
inguna, virðist lítið bera á al-
vöru í þeim efnum. Þeir
starfsmenn Steindórs sem
komu yfír fá ekki að aka
vögnum SBK þ.e. þeim, sem
áður voru í eigu þess fyrir-
tækis, og eru því eingöngu
notaðir til aksturs á gömlu
Steindórs-rútunum. Þeir
kóngar, sem áður áttu mest-
alla yfirvinnu hjá SBK, virð-
ast enn ráða ríkjum og sjá til
þess að Steindórsmenn fái
helst enga yfirvinnu. Þá ríkir
óvissa um það hvort þeir
starfsmenn, er áður unnu hjá
Steindóri, fái vinnu eftir
næstu mánaðamót. Eins
virðist engin samræming
hafa farið fram varðandi nýt-
ingu vagnanna, a.m.k. sjást
Steindórsvagnar ekki í áætl-
unarferðum, þó þeir séu
flestir af heppilegri stærð en
SBK-rúturnar.
...og hvað með við-
skiptavildina?
I gegnum árin hefur verið
mikill verðmunur á hóp-
ferðabílum frá SBK og Stein-
dóri. SBK hafa verið mun
hærri. Þetta hafa menn feng-
ið að reyna nú, eftir að sam-
eining fyrirtækjanna er orðin
að veruleika. Er því vitað um
a.m.k. tvo fasta viðskipta-
vini Steindórs sem telja
heppilegra að fá rútur utan
svæðis en að skipta við SBK.
Hefur annar þessara aðila
fengið rútu frá Akranesi til
að ná í hóp til Keflavíkur.
Virðist því útséð að ekki er
nægjanlegt að sameina fyrir-
tækin, það verður líka að
sameina reksturinn og
standa sig í samkeppninni.
Annars verður lítið úr þeirri
viðskiptavild sem keypt var.
Fyrirtækið hans
Upp á síðkastið hefur það
færst í vöxt að einn af yfir-
mönnum Hitaveitu Suður-
nesja hefur í umræðu hagað
svo málum að það liti út fyrir
að hann ætti fyrirtækið, en
ekki sveitarfélögin á Suður-
nesjum og ríkið. Hafa menn
haft gaman af og kalla nú
margir hverjir Hitaveituna
„Fyrirtækið hans“.
Handleggurinn
lét undan
Þótt það sé í raun saklaus
leikur að fara í sjómann, get-
ur það stundum orðið vafa-
samt. Það fengu menn að
kynnast um síðustu helgi í
húsi einu í Keflavík. Sá sem
varð undir varð að hætta
leiknum með brotinn upp-
handlegg. Endaði því sá sjó-
maður rneð aðstoð læknis,
lögreglu og sjúkraflutnings-
manna.
Vildu ekki hætta
Það er stundum erfitt að fá
fólk til að hætta að skemmta
sér, þegar fjörið stendur sem
hæst. Það fékk sá að reyna
sem stóð fyrir skemmtun í
Sjálfstæðishúsinu í Njarðvík
um síðustu helgi. Því þó ball-
Skaut bæjarstjóri
yfir markið?
Bæjarstjórinn í Keflavík
lýsti því yfir á síðasta fundi
bæjarstjórnar að lóð Pósts og
síma að Hafnargötu 40 væri
með endemum Ijót og illa
hirt. Með þessu virðist bæjar-
stjórinn hafa skotið yfir
markið, því lóð þessi er ekki
ið ætti að hætta kl. 3 vildu
gestirnir halda áfram fram
yfir kl. 5. Gekk því ekki
átakalaust að stöðva fjörið,
en það tókst þó um síðir.
Varla vandamál
Bæjarfulltrúum í Keflavík
var all umhugað um það á
síðasta fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur, að húseigendur
við Hafnargötuna taki nú vel
til í kringum sig, enda Hafn-
argatan einskonar andlit
bæjarins. Jón Ólafur Jóns-
son, sá sami og lagði til að
bærinn keypti Hafnargötu
30 og breytti í almennings-
garð, benti á að núverandi
eigandi þess húsnæðis mætti
taka þetta til sín. VarlaJjarf
að ítreka þetta, þar sem Ólaf-
ur Eggertsson, einn eigenda
umrædds húsnæðis, hefur
lengi verið einn aðal forvígis-
maður umhverfisnefndar
Njarðvíkurbæjar.
Njarðvíkurkratar illir
Nú er það talið nánast ör-
uggt að það hafi verið Hann-
es Einarsson, fulltrúi Kefl-
víkinga, sem sat hjá við kjör
formanns stjórnar Hitaveitu
Suðurnesja á dögunum en
ekki annar ríkisfulltrúanna.
Telja Njarðvíkurkratar að
með þessu hafi Hannes svik-
ið lit, en í kjöri var einnig
Njarðvíkurkratinn Ólafur
Thordersen. Munu vissir
toppkratar úr Njarðvík hafa
brugðist ókvæða við og gert
forráðamönnum Keflavík-
urkrata það skiljanlegt að
vegna þessa muni þeir ekki
styðja umræddan Hannes í
stöðu vatnsveitustjóra, sem
þó hafði náðst samkomulag
um.
Timbur og smjörlíki
Með hverju skyldu þeir
þétta Mariane Danielsen?
Þessi spurning hefur mikið
verið á vörum manna undan-
farna daga. Sú aðferð sem
þarna er notuð og er ævaforn
er þó all merkileg. Um er að
i
verri en aðrar, auk þess sem á
lóðinni voru umbúðir vegna
þess að verið var að gera sím-
stöðina öruggari fyrir tíðum
rafmagnsbilunum. Annars
staðar í blaðinu er fjallað um
þetta mál og það að bæjar-
stjórn hefur ekki svarað
þriggja ára gömlu bréfi frá
Pósti og síma vegna lóðar
þessarar.
ræða tréfleyga sem reknir eru
í götin og síðan þrútna þeir
út í sjónum. Með fleygunum
er síðan troðið smjörlíki og
saman dugar þetta til að
halda botninum þéttum, þar
sem það er sett í.
Garðmaðurinn
Hemmi Gunn
Hermann Gunnarsson
eða Hemmi Gunn, eins og
flestir landsmenn þekkja
hann, lagði mikla áherslu á
það, er afmælistónleikarnir
fóru fram í íþróttahúsi
Keflavíkur, að hann ætti ætt-
ir sínar að rekja til Suður-
nesja. Sagðist hann vera
Garðmaður, þ.e. afi hans var
úr Garðinum. Þá vitið þið
það, góðir hálsar.
Þjóðhátíðardagurinn í
Keflavík innan dyra
Nú, í kjölfar hátíðarhalda
Keflvíkinga í tilefni 40 ára
afmælisins, sjá menn hve
íþróttahúsið er heppilegt
fyrir samkomur sem þessar,
þ.á.m. hátíðarhöldin 17.
júní. Hefur því margurhaft á
orði að nær væri að setja þær
reglur að hátíðarhöldin fari
framvegis fram í húsi þessu.
Ef svo undarlega bregður við
að veður verður gott þennan
dag, má alltaf fara með há-
tíðarhöldin út. Er vitað að
meðal bæjarfulltrúa er nokk-
ur áhugi á því að hafa slíka
reglu.
Keflavík 50 ára?
Almenn óánægja kom
fram á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur í síðustu viku
með seinagang við afmælis-
blað það, sem Ragnar Karls-
son hefur tekið að sér að
koma út vegna 40 ára afmæl-
is bæjarfélagsins. Einnig
virðast bæjarfulltrúar ekki
vera á eitt sáttir með þau
vinnubrögð sem uppi eru
varðandi skoðun á handriti
bæklingsins. Segja sumir
hverjir að bæjarstjórn hefði
átt, samkvæmt fyrri sam-
þykktum, að fá að fylgjast
betur með vinnu við bækl-
inginn. Þó höfðu bæjarfull-
trúar gaman af prentvillu
einni, sem kom í fyrstu drög-
um, um að Keflavíkurbær
væri 50 ára. Sumir höfðu
reyndar á orði að kannski
væri verið að skrifa bækling
um 50 ára afmælið en ekki 40
ára, og því engin furða þó
hann væri ekki kominn út!
Hvers vegna eru bíl-
arnir ekki fjarlægðir?
Þeir eru margir sem undr-
ast slælega framgöngu lög-
reglu gegn þeim fjölmörgu
bifreiðaeigendum, sem
leggja bílum sínum ólöglega
við Píanó-barinn, sem áður
hét Brekkan. Þarna er bílum
lagt þeim megin sem ekki má
leggja bílum, einnig of ná-
lægt gatnamótum og hindra
þar með útsýni ökumanna
og eins ber nokkuð á frekju
gagnvart nágrönnum veit-
ingastaðarins, sem oft verða
að sætta sig við bíla inni í inn-
keyrslum eða jafnvel fyrir
þeim. Finnst fólki að lög-
reglan eigi að kalla til krana-
bíla og fjarlægja viðkomandi
bíla og láta síðan eigendur
þeirra borga þá út.
TONLEIKAR
Lúðrasveit Tónlistarskólans í Keflavík
heldur tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju
miðvikudaginn 26. apríl kl. 21.00. Allir
hjartanlega velkomnir.
Munið
Getraunanúmer
ÍBK: 230
Hvað skyldi bæjarstjórn finna að þessari lóð? Erfitt er að sjá það en
svona leit hún út á sama tíma og bæjarstjórinn skammaðist yfir út-
liti hennar. Ljósm.: hbb