Víkurfréttir - 19.04.1989, Qupperneq 12
12 Miðvikudagur 19. apríl 1989
Bílvelta á
Reykjanesi
Bílvelta varð á þjóðvegin-
um út á Reykjanes á föstu-
dagskvöld. Farþegi í fram-
sæti meiddist á hálsi en lét
ekki vita af slysinu fyrr en
hann var kominn til síns
heima. Var hann fluttur á
sjúkrahúsið í Keflavík, en
fékk að fara heim að lokinni
aðhlynningu læknis.
Fimm
skotmenn
stöðvaðir
liii.iivil.iinilliiix.nii
Fimm skotmenn voru
stöðvaðir við þá iðju á
Reykjanesi síðasta laugar-
dag, en sem kunnugt er, þá er
óheimilt með öllu að skjóta
úr byssum á Suðurnesjum.
Harður árekstur
Allliarður árckstur varð nýlega á niótum Gerðavalla og Víkurbrautar í Grindavík. Lenti þar
saman bifreiðum af þýskri og japanskri gerð, með þeim afleiðingum að báða bílana varð að fjarlægja
með kranabifreið. Engin slys urðu á fólki í þessum árekstri. Ljósm.: hbb
Sendum Suðurnesjamönnum
okkar bestu óskir um
gleðilegt og áfallalaust sumar.
BRUnHBÓTOFÉlflG Í5UWD5
Umboösskrifstofa - Hafnargötu 58 - Keflavik
Úk í veg
fyrir tvö
bifhjól
Ökumaður, sem ók bifreið
sinni eftir Sólvallagötu í
Keflavík á föstudag, ók í veg
fyrir tvö bifhjól er komu eftir
Skólaveginum. Lenti bifreið-
in á öðru bifhjólinu ogsíðan
á kyrrstæðum bíl sem stóð
við gatnamótin. Engin slys
urðu á fólki en tjón á öku-
tækjunum varð töluvert.
Alls var lögreglunni í
Keflavík tilkynnt um 8 um-
ferðaróhöpp unt síðustu
helgi. Fyrir utan það sem að
lraman greinir varð bílvelta
á Reykjanesi, en sérstaklega
er greint frá því annars stað-
ar í blaðinu. Þá varð bílvelta
á Reykjanesbraut í Kúagerði
aðfaranótt laugardagsins.
Sex ntanns voru í bílnum en
allir sluppu án teljandi
meiðsla.
Þá var ekið á umferðar-
merki á gatnamótum Njarð-
arbrautar og Reykjanes-
brautar á Fitjum og stungið
af.
Skótauið
rifið út um
gluggann
Mjög mikið var um að
unglingar söfnuðust saman í
miðbæ Keflavíkur um síð-
ustu helgi. Voru þá brotnar
rúður í sýningarglugga í
Nýja bíói og húsnæði Skó-
búðar Keflavíkur.
I Skóbúðinni varytragler-
ið í einum glugganna fyrst
brotið og skömmu síðar það
innra. Um leið var skótau,
sem þar var fyrir innan, tekið
út um brotna glerið og dreift
eitthvað um nágrennið.
Ekki er vitað hverjirþarna
voru að verki en mjög mikið
var um unglinga á staðnum
er lögregluna bar að. Unt
helgina var niikill erill sök-
um ölvunar í heimahúsum
og víðar, sem lögreglan
þurfti að hafa afskipti af.
Hefur að undanförnu verið
mikil aukning á óskum um
afskipti lögreglu í heimahús-
um urn helgar.
Grindavíkur-
lögregla með
afskipti af
skotmönnum
Lögreglan í Grindavík
þurfti tvívegis að hafa af-
skipti af byssumönnum ,um
síðustu helgi, sem voru að
skjóta á lauslega hluti úti í
náttúrunni, bæði á laugar-
deginum og sunnudeginum.
Var í fyrra tilfellinu um að
vræða byssumenn i landi
Hrauns, en í þvi seinna var
verið að skjóta á Hópsnesi.
Lögreglan vildi bendaáað
öll meðferð skotvopna er
bönnuð á Reykjanesskagan;
um nema með heimild land-
eigenda.