Víkurfréttir - 01.06.1989, Qupperneq 9
VllHMjtfUi*
Fimmtudagur 1. júní 1989 9
Vonin KE:
Reykskynjari
för í gang
Slökk vilið Brunavarna
Suðurnesja og lögreglan í
tóflavík lengu á laugardag
tilkynningu um að aðvörun-
arbjalla, er boðar lausan eld,
væri í gangi í Voninni KE 2,
sem lá við bryggju í Njarð-
vík.
Er viðkomandi aðilar
koniu á vettvang fannst eng-
inn eldur, en viðvörunar-
kerfið gaf til kynna að hann
væri í mannaíbúðum frammi
í skipinu. Er talið að einhver
bilun hafi valdið því að kerf-
ið fór í gang.
Slökkviliðið koniið að Voninni í Njarðvíkurliöfn.
Ljósm.: epj.
Svæða-
skipulag
Suðurnesja
á lokastigi
Vinna við svæðaskipulag
Suðurnesja er nú á loka-
stigi. Tilgangurinn með
skipulaginu er að kanna
landgæði og auðlindir svæð-
isins og gera tillögur um nýt-
ingu þess.
í viðtali við höfunda
skipulagsins, er birtist í
sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins um síðustu helgi,
kemur fram að ásókn í land á
Suðurnesjum, bæði undir
byggð og atvinnurekstur, fer
vaxandi. Þannig hefur áhugi
á fiskeldi á svæðinu flýtt
því mjög, að ráðist var í
skipulagið.
Einn aðalþáttur skipu-
lagsins eru vatnsverndar-
svæðin, sem miða að því að
vernda þá auðlind, sem felst í
ferskvatninu undir yfirborði
lands á Suðurnesjum. Vatn-
ið, ásamt jarðhitanum, er sú
auðlind, sem vafalítið verður
helsta undirstaða blómlegs
atvinnulífs á þessu svæði í
framtíðinni, segir Guð-
mundur Björnsson í Kefla-
vík, annar höfundanna, í
viðtalinu umrædda.
Ekkert lát
á ölvunar-
akstri
Því miður virðist ekkert lát
vera á því að ökumenn aki
með aðstoð Bakkusar. Um
síðustu helgi bættust fjórir
ökumenn í hóp þeirra sem
lögreglan í Keflavík grunar
um meinta ölvun við akstur.
Virðist mikill kippur hafa
komið í þessa tegund afbrota
nú síðustu vikurnar, eða um
leið og áróðurinn gegn ölv-
unarakstri minnkaði. Sem
dæmi þar um, þá voru færri
teknir í marsmánuði í ár en á
sama tíma í fyrra, en síðan
hefur aukningin orðið mikil
og var nánast einn tekinn á
dag að meðaltali í maímán-
uði, sem nýliðinn er.
Kiddi, Björk og Ingi, málarameistarar
Dropans, eru til þjónustu reiðubúin og
veita þér faglega ráðgjöf með litaval og
annan undirbúning. Og ef þú vilt get-
urðu fengið þau á staðinn til að ráð-
leggja þér áður en þú byrjar að mála.
Dropinn leggur áherslu á þjónustu og
þekkingu - fyrir þig....
'méhvnyS
steintex - ny
endurbætt p'ast-
málning utanhuss