Víkurfréttir


Víkurfréttir - 01.06.1989, Page 12

Víkurfréttir - 01.06.1989, Page 12
12 Fimmtudagur 1. júní 1989 „Sti rál carn ir vi íií ia ðl Its if hj; álpa a / Spjallað við tvær hressar, Bylgju Baldursdóttur og Vigdísi Elísdóttur, sem hafa róið á Mumma GK í tæpt ár Þegar minnst er á sjómenn, þá dettur flestum í hug hraustlegir karlmenn sem muna tímana tvenna og hafa lent í ýmsum veðrum. Fæstir gera sér í hugarlund unga og myndarlega kvenmenn úti á dekki með gogg í höng við að innbyrða stóra og myndar- lega þorska eða önnur verð- mæti úr hafinu. Það heyrir til tíðinda ef Frænkurnar og sjómennirnir Bylgja Baldursdóttir (t.v.) og Vigdís Elísdóttir. kvenmaður er í fiskiskipa- flotanum, en í Sandgerði eru þær tvær og það á sama skip- inu. Mummi GK 120 heitir skipið og þar hafa stúlkurn- ar verið frá því á síðasta hausti. Blaðamaður Víkurfrétta hitti þær að máli í stuttu helgarstoppi um síðustu helgi og hér kemur árangur samtalsins. Nítján ára frænkur Stúlkurnar heita Vigdís Elísdóttir og Bylgja Baldurs- dóttir. Þær eru báðarfæddar 1970 og því á 19. árinu, önn- ur orðin nítján og hin á af- mæli seinna á árinu. Blaða- maður hefur veitt því athygli um nokkurn tíma hvað stúlkurnar eru samrýmdar. Hann var alltaf að sjá þær saman öllum stundum. Rétt áður en í viðtalið var haldið komst hann hins vegar að því að Vigdís og Bylgja eru frænkur. Mæður þeirra eru systur, dætur Bergs Sigurðs- sonar, fyrrum verkstjóra hjá Miðnesi hf. -Hvenœr fóruð þið fyrst til sjós og hvað varþað semfékk ykkur til þess? ,,Það var 9. september í fyrra sem við fórum í fyrsta skipti til sjós. Þá fórum við með Grétari Mar í róður á Mummanum og veiddum í siglingu og fórum síðan með skipinu út,“ sagði Bylgja og Vigdís bætti við: „Okkur hafði lengi langað til að fara til sjós og þetta var orðinn langþráður draumur, en það voru nokkuð margir sem höfðu litla trú á okkur.“ Bræðurnir í fjölskyldunum -Það er þá enginn sjómað- ur í fjölskyldunni sem hefur hvatt ykkur til að fara á sjó- inn? Fimmtudagur 1. júní 1989 13 „Okkur datt þetta bara svona í hug upp á okkar einsdæmi. Pabbi var einu sinni á sjó,“ sagði Bylgja. Vigdís bætti því við að þær ættu enga bræður, „við erum bræðurnir í okkar fjölskyld- um.“ -Hvernig er það, á kven- fólk eitthvert erindi á sjóinn? „Það er allt í lagi fyrir kvenfólk að fara á sjóinn ef það treystir sér til þess. Sjó- mennskan er engin vinna fyrir konur til langframa, heldur bara til að prófa. Það hafa allir gott af því að vita hvað þetta er.“ Kassi af kók og prins póló -Þið hafið reynt ýmis veið- arfœri. „Við fórum í einn róður á rækjutroll á Sjávarborginni. Við vorum í 23 daga úti og engin sjoppa nálæg. Það var agalegt ástand,“ sagði Bylgja. „Það var hringt í mig á hádegi og ég spurð hvort ég hefði áhuga á að koma með á rækjuveiðar. Ég sló til og spurði hvort ekki væri pláss fyrir Vigdísi. Hún gat komið með.“ Vigdís bætti við: „Við tókum með okkur sinn hvorn kassann af kók og einn af prins póló, en þetta var búið eftir vikuna og þá áttum við eftir að þrauka í rúman hálfán mánuð í við- bót. Við urðum því að fara í búrið til að finna okkur eitt- hvað að smjatta á. Eftir svona langa útiveru á rækjunni, þá var mjólkin orðin nokkuð súr á bragðið, reyndar farin að skilja sig, en hún var ágæt ef blandað var til helminga í kókómalt. Það er víst að við förum ekki aft- ur á rækju til að liggja úti og frysta um borð. Það bjargaði okkur einnig að við þekktum strák á nærstöddu skipi, sem gat bjargað okkur um gos- drykki, þannig að við lifðum af sjóferðina. Þegar við komum í land aftur af rækjunni, héldum við að við gætum ekki fengið pláss á báti og vorum því byrjaðar að vinna í fiski í landi, en þá var hringt og okkur boðið pláss.“ í upphafi hálf- gert „núll“ -Hvernig taka skipsfélag- arnir ykkur? „Það er voðalega mis- jafnt,“ sögðu þær báðar. „Það eru margir undrandi yfir því að við séum á sjón- aksjón. Bvlgja og Björgvin vélstjóri. J um. I upphafi var litið á okk- ur sem hálfgerð „núll“ og haldið að við gætum ekkert og strákarnir vildu alltaf vera að hjálpa okkur. Þeir urðu bara að venjast því hvernig er að vinna með kvenmönnum á sjó.“ -Hvernig er með blessuðu sjóveikina? „Við höfum ekkert orðið sjóveikar frá því í febrúar,“ sögðu þær báðar stoltar. „Það vottaði aðeins fyrir sjó- veikinni í brælunum í janúar og febrúar, en þá gekk Mummi reyndar undir nafn- inu „Veðurskipið". Það var farið út í hvaða veðri sem er og skipstjórarnir á Eini og Barðanum voru farnir að hringja hingað um borð til að athuga hvort þeim væri óhætt að fara á sjó á yfir- byggðum skipum. Á meðan stóðum við og unnum á dekki í skvettum og gusum. Annars fengum við góðan stuðning fyrst þegar við byrj- uðum á sjó, til að komast yfir þetta.“ Skipstjórarnir tolla illa Þær Vigdís og Bylgja eru búnar að vera lengst um borð í Mumma GK af allri áhöfninni á nýliðinni vetrar- vertíð. Þann tíma sem stelp- urnar hafa verið um borð hafa sjö skipstjórar verið með skipið. „Þeir tolla voðalega illa hjá okkur, skipstjórarnir,“ sögðu þær báðar. Til marks um það, þá voru þrír skip- stjórar með Mummann í síð- ustu viku.“ -A að leggja sjómennskuna fyrir sig til frambúðar? , ,Það er nú ekki hugmynd- in að gera þetta að framtíð- arstarfi. Ef Mumma verður lagt í sumar, þá er hugmynd- in hjá okkur að taka okkur langt og gott sumarfrí fram á haustið, en þá ætlum við láta verða af því að reyna síld- veiðar. Síðan hugum við að því að láta þetta gott heita.“ -Eigið þið ykkur eitthvert draumastarf? „Það er lítið um drauma- störf eftir að við prófuðum sjómannsstarfið. Það er al- gjörlega óráðið hvað við ætl- um að gera í framtíðinni.“ -Að lokum, eiga aðrar stelpur að slá til ogfara á sjó- inn? „Það hafa allar stelpur gott af því að prófa þetta starf og það er reyndar ekk- ert að óttast. Einhvern tím- ann er alltaf í fyrsta sinn,“ sögðu þær Bylgja Baldurs- dóttir og Vigdís Elísdóttir, sjómenn frá Sandgerði, að lokum. Viðtal: Hilmar Bragi Bárðarson. Ljósmyndir: hbb. og úr myndasafni Bylgju Baldursdóttur og Vigdísar Elísdóttur. Við lagningslúguna þegar línan er lögð. Fiskverkunarstöð Axels Pálssonar hf. Keflavík Fiskverkun Guð- mundar Axelssonar, Keflavík Fiskverkun Oskars In gibersson ar, Njarðvík Fiskverkun Magnúsar Björgvinssonar• Garði Sendum sjómönnum bestu hátíðarkveðjur í tileíni sjómannadagsins. Útgerðarfélagið Eldey hf. Fiskm arkað ur Suðurnesja hf. Miðnes hf., Sandgerði Happasœll hf., Keflavík Olíufélagið Skeljungur, sheii umboð Keflavík Fiskverkun Karls Njálssonar, Garði Fiskbœr, Hringbrauf Keflavík Valbjörn og Jón Erlingsson hf., Sandgerði Skipaaf- greiðsla Suðurnesja sf. Stafnes hf. Njarðvík Olíusamlag Keflavíkur og nágrennis Tros, Sandgerði Nesfiskur hf., Garði Fiskvaf Básvegi 6, Keflavík s Islenskur Gœðafiskur hí, Njarðvík ' Brunabótafélag s Islands hí, Keflavík Netaverkstaeði Suðurnesja, Njarðvík Valdimar hf., Vogum Njáll hf, Garði Sjófiskur, Keflavík Hraðfrystih ús Keflavíkur hf. mun jutUí

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.