Víkurfréttir - 08.06.1989, Blaðsíða 2
Vimr<
juWi
Fimmtudagur 8. júní 1989
Björgunarmenn ná unga drengnum úr sjónum upp í björgunarbát
Ægismanna. Ljósm.: hbb
Ungum dreng bjargað
Þegar skemmtiatriði sjó-
mannadagsins í Garði stóðu
sem hæst við höfnina, vildi
það óhapp til að ungur
drengur féll í höfnina. Var
mikið af börnum á bryggj-
unni þegar óhappið átti sér
stað. Þar sem drengurinn féll
nálægt björgunarbát Ægis-
manna, tókst með snörum
handtökum að bjarga
drengnum áður en honum
varð meint af volkinu.
Bókun meirihluta bæjarstjórnar Keflavíkur:
Nettóskuldir
225 millj. kr.
Fyrri umræða um ársreikn-
inga Keflavíkurbæjar fyrir ár-
ið 1988 fór fram á fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur nú á
þriðjudag. Við umræðurnar
lagði Guðfinnur Sigurvinsson,
bæjarstjóri, fram eftirfarandi
bókun meirihlutans:
„Reikningar Bæjarsjóðs
Keflavíkurfyrirárið 1988sýna
að útgjöld flestra málaflokka
eru í samræmi við fjárhags-
áætlun þá sem unnið vareftirá
árinu. Augljóst er að yfirmenn
og starfsfólk hafa Iagt sig fram
við að fjárhagsáætlunin stand-
ist og fyrir það þökkum við.
Verulegur árangur hefur
náðst í að bæta fjárhagsstöðu
Bæjarsjóðs Keflavíkur á árinu.
Hækkun á hreinu veltufé frá
fyrra ári er kr. 29.395.814.- og
tekjur umfram gjöld eru kr.
51,058.226.
í skýrslu endurskoðenda
bæjarreikninga segir m.a.:
„Allur frágangur og vinnsla
bókhalds er nú unnin jafnóð-
um af aðalbókara ogaðstoðar-
mönnum hans. Allar af-
stemmingar og önnur vinnsla
tengdum mánaðamótum er
unnin mánaðarlega og stöður
viðskiptamanna kannaðarsér-
staklega. Ofangreind vinna
gerir það að verkum að nú er
hægt að nota reikningshald
bæjarfélagsins sem tæki til
stjórnunar og ákvörðunar-
töku.“
Rétt er að benda á að brúttó
skuldir Bæjarsjóðs Keflavíkur
voru í árslok 1988 kr.
472.272.911 á móti kemureign
bæjarsjóðs kr. 177.445.431
mismunur er kr. 294.827.480.
Frá þeirri tölu má síðan draga
lán Byggingarsjóðs ríkisins
vegna íbúða fyrir aldraða kr.
69.744.014, en bæjarsjóður
hefur enga greiðslubyrði af því
láni og eru þá nettó skuldir
Bæjarsjóðs Keflavíkur kr.
225.083.466.
Hrein eign Bæjarsjóðs
Keflavíkur í árslok 1988 er kr.
1.428.058.443 en var kr.
1.136.649.219 í árs byrjun.
Hrein eign hefur því aukist um
kr. 291.409.224 á árinu 1988.
Safnaðarheimili
í Sandgerði:
Óskar
tók
fyrstu
skóflu-
stunguna
Fyrsta skóflustungan að
byggingu safnaðarheimilis í
Miðneshreppi var tekin á
sjómannasunnudaginn. Það
var Óskar Arnason, einn gef-
enda landsins undir safnað-
arheimilið, sem tók skóflu-
stunguna.
Nokkurt fjölmenni var
viðstatt athöfnina, sem fram
fór á hæð við malarvöllinn í
Sandgerði, en þar mun safn-
aðarheimiiið rísa. Halldóra
Thorlacíus, sem sæti á í
sóknarnefnd Hvalsnessókn-
ar, ávarpaði gesti og sóknar-
10% afsláttur af öllum
vörum til 17. júní í tilefni
1 árs afmælis verslunarinnar
• Full búð af nýjum vörum.
Peter Van Holland - GANT -
Z - Victor
Glæsilegur sumarfatnað.ur
HERRAFATAVE^SLUNIN
PERSONA
HOLMGARÐI 2 SÍMI15099
- Þegar þú kaupir föt -
Eignir Lífeyrissjóðs Suðurnesja í árslok:
Námu 1.5
milljarði kr,
Seta í bæjarráði
Keflavíkur:
Ingólfur
vann á
hlut-
Óskar Árnason, einn gefenda
landsins undir safnaðarheimilið,
tekur fyrstu skóllustunguna. Með
honuni á myndinni er I lalldóra
Thorlacius, sem sæti á í sóknar-
nefnd. Ljósm.: hbb.
prestur, séra Hjörtur Magni
Jóhannsson, flutti stutt
ávarp. Þá söng blandaður
kór Hvalsness- og Utskála-
sókna nokkur vers.
Kostnaður við rekstur sjóðs-
ins var 9,2 m.kr. eða 5,0% af
iðgjöldum ársins, sem er 0,6%
lægra hlutfall en árið 1987.
Kostnaðurinn hækkaði milli
ára um 22,8%.
Hrein eign í árslok til
greiðslu lífeyris var 1,5 millj-
arður króna og hækkaði um
43,1% frá árslokum 1987.
Til samanburðar hækkaði
meðaltal lánskjaravísitölu um
23,1% milli áranna 1987 og
1988.
Á árinu 1988 voru veitt lán
til 94 sjóðfélaga, samtals að
upphæð 31,5 m.kr. Skulda-
bréfakaup af Húsnæðisstofn-
un námu 170,0 m.kr. ogönnur
skuldabréfakaup námu 150,1
m.kr.
Um 4400 manns greiddu ið-
gjöld til sjóðsins á árinu 1988
og hefur þeim verið send yfir-
lit, sem sýnir greiðslur þeirra
til sjóðsins.
Endurskoðun og gerð árs-
reiknings annaðist Endur-
skoðun Sig. Stefánssonar hf.
Árlega er haldinn fulltrúa-
ráðsfundur sjóðsins en á þeim
fundi eiga sæti fulltrúar þeirra
7 stéttarfélaga, sem eru aðilar
að sjóðnum. Fundurinn verð-
ur að venju haldinn að hausti.
kesti
Við nefndarkjör hjá bæj-
arstjórn Kcflavíkur var sjálf-
kjörið í allt nema bæjarráð.
Verður Anna Margrét Guð-
mundsdóttir áfram forseti
bæjarstjórnar, en enginn
bauð sig fram á móti henni.
Þegar kom að kjöri í bæj-
arráð stakk meirihlutinn upp
á Hannesi Einarssyni og Vil-
hjálmi Ketilssyni og hlutu
þeir fimm atkvæði. Fram-
sóknarmenn stungu upp á
Drífu Sigfúsdóttur og sjálf-
stæðismenn stungu upp á
lngólfi Falssyni. Hlutu þau
hvort um sig tvö atkvæði.
Þurftu þvíDrífaoglngólf-
ur að láta hlutkesti skera úr
um það hvort þeirra hefði at-
kvæðisrétt í bæjarráði. Vann
Ingólfur það en Drífa hefur
af hálfu minnihjutans setið
með þann rétt í tvö ár í bæj-
arráði á þessu kjörtímabili.
Matsmaður óskast
til starfa við frystihúsið í Höfnum. Upplýs-
ingar í síma 16921.
Pólar-Frost hf.
Ársuppgjöri Lífeyrissjóðs
Suðurnesja fyrir árið 1988 er
lokið. í ársreikningi sjóðsins
kemur m.a. fram að iðgjöld á
árinu námu 184,6 m.kr. og
hækkuðu um 38,8% frá árinu
1987. Heildarlífeyrisgreiðslur
námu 71,2 m.kr., þar af var
hlutur Umsjónarnefndar eftir-
launa 26,8 m.kr. og hlutur
sjóðsins 44,4 m.kr. eða 24,1%
af iðgjöldum ársins. Hækkun
lífeyrisgreiðslna frá árinu 1987
var 23,1%.