Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.06.1989, Side 8

Víkurfréttir - 08.06.1989, Side 8
8 Fimmtudagur 8. júní 1989 mun juÍUv molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Smökkuðu fyrir páfann Það var mikið umstang á mörgum vígstöðvum þegar páfinn kom. Að sjálfsögðu þurfti að leita til nokkurra „páfagauka" á Suðurnesjum til að þjónusta páfann. Fisk- val, sem m.a. sér Flugleiðum fyrir fiski í „flugvélamat- inn“, þurfti að skila fiski degi áður, sem matreiðslumenn Flugleiða síðan matreiddu eins og gera átti fyrir páfann, og „hans“ menn smökkuðu síðan á herlegheitunum. Fiskurinn bragðaðist vel og var „samþykktur". Þegar til kom var páfi ekki mjög svangur á leiðinni til íslands en nartaði þó i fiskinn en borðaði aðallega ost... Sex manna súkkulaðiterta Fleiri Suðurnesjamenn gerðu mat fyrir páfann. Sig- urjón í samnefndu bakaríi bakaði súkkulaðistykki og rúnstykki í flugvélina sem flutti páfa hingað og að auki „spes“ 6 manna súkkulaði- tertu, sem páfi ætlaði að bjóða gestum ef tækifæri gæfist til... ...og koparplata Þriðji þjónustuaðilinn á Suðurnesjum sem molahöf- undur veit um var Ólafur Sigurðsson, skiltagerðamað- ur. Hann útbjó sérstaka kop- arplötu með áletrun á sem sagði m.a. að páfi hafi bless- að viðkomandi plötu, en hún var sett upp í Landakots- kirkju, þar sem hann mess- aði... Kyssti Miðneshrepp blautum kossi ,,Já, það var mikill heiður fyrir páfa að fá að kyssa Mið- neshrepp blautum kossi,“ varð einum Sandgerðingi að orði þegar hann frétti af því að páfi hefði kysst malbikið við Leifsstöð hálfrakt, er hann sté á íslenska grundu. Sameiningin í verki? Eins og flestir vita eru tvær björgunar- og hjálparsveitir á Keflavíkur-Njarðvíkur- svæðinu. Ein í hvoru byggð- arlaginu. Því er það nokkuð skondið að formaður Njarð- víkursveitarinnar skuli búa í Keflavík og formaður Kefla- víkursveitarinnar í Njarðvík. Bara mjög mannlegir Þar sem það orð hefur ekki farið af lögreglumönnum á Keflavíkurflugvelli að þeir væru hvað liðlegastir við þá sem leitað hefðu ásjárþeirra, Vörubílastöð Keflavíkuv tilkynnir breytt síma- númer frá 1. júní: y**! 15580 Li n iiíiiP’wnrci? " ' 1 ' 1' 1 j , ; yji, .• iii líiilÉÉIIiíliíiSiii l'jÍJijpjjij.v :!:;j -i Keflavík Uppfyllt lóð á besta stað í Kefla- vík. Sérlega glæsi- leg teikning. Nán- ari upplýsingar á skrifstofunni. Eignamiðlun Suðurnesja Símar 11700 og 13868 þótti mörgum þeirvera mjög mannlegir og liðlegir á allan hátt þegar páfi sté á íslenska grundu á dögunum. Von- andi voru það ekki bara sparibrosin sem þar voru sett upp. Aflakóngur hvað? Þá er enn einn sjómanna- dagurinn liðinn. A flestum stöðum umhverfis landið nema í Vestmannaeyjum var aflakóngur heiðraður. Þó áttu Eyjamenn nú aflakóng sem sló landsmet, ef ekki heimsmet. Hann afsalaði sér þó að vera heiðraður sökum þess að kvótakerfið mismun- aði mönnum og þeir einir gætu orðið aflakóngar, sem kæmust yfir nægan kvóta frá öðrum. Þarna voru orð í tíma töluð, en því miður tóku sumir aflakóngar á Suðurnesjum við titlum, þó svona væri í pottinn búið. Tveggia mánaða töf lokið Þá er Mariane Danielsen loks farin erlendis til við- gerðar. Hætt er við að mörg- um hafi létt nokkuð er það gerðist, enda hefur ekki gengið þrautalaust að fá drátt á skipinu yfir hafíð. Fyrst var það pólskur drátt- arbátur sem dró komu sína hátt í þrjár vikur. Þá stóð til að Harpan og síðan togarinn Ólafur Jónsson færu með skipið, enda hið síðarnefnda á leið til sama lands, en það brást á síðustu stundu og þá var slegið til og pantaður skoskur dráttarbátur og lauk hann ætlunarverki sínu, að ná í skipið til Njarðvíkur. Þrír um sæti Kjartans... Nú berast fregnir af því að hafinn sé undirbúningur að baráttu um fyrsta sætið á framboðslista krata fyrir næstu alþingiskosningar. í sjálfu sér er það ekki óeðli- legt, þar sem Ijóst er að Kjartan Jóhannsson verður ekki með, enda þá farinn til starfa á erlendri grundu. Er vitað til þess að Karl Steinar stefni á 1. sætið en hann mun þó ekki vera einn um það, því á sama sæti stefna líka Guðmundur Arni Stefáns- son, bæjarstjóri í Hafnar- firði, og Rannveig Guð- mundsdóttir, varaþingmað- ur. ...góður móralskur stuðningur fyrir Kalla Afmæli Karls Steinars á dögunum er talið góður mór- alskur stuðningur við hann fyrir slaginn um I. sætið. Fullvíst er talið að afmæli þetta hafi verið eitt það fjöl- mennasta, ef ekki.ýiað fjöl- mennasta, sem haldið hefur verið hér suður með sjó. 9,30 ferð í Reykjavík Ekki er Steindór Sigurðs- son búinn að starfa lengi hjá SBK, en þó má þegar sjá batamerki á fyrirtækinu. Þó flestir ættu að fagna því, er það furðulegt en satt að þó nokkrir sjá ofsjónum yfir því Umsjón: Emil Páll að nú er farið að ganga betur. Meira er að gera fyrir bíla- flotann og mannskapurinn betur nýttur. Vonandi tekst með sameiginlegu átaki stjórnenda og starfsmanna að gera fyrirtækið enn vold- ugra, eins og það var hér áð- ur fyrr. En stjórnendur hafa sýnt það að fyrirhuguð er mikil endurskipulagning hjá Sérleyfinu og þá ekki aðeins í hópferðum, heldur einnig í áætiunarferðum. Það nýjasta er að taka upp á ný ferðir á morgnana, kl. 9.30 frá Kefla- vík og 10.30 til baka frá Reykjavík. ...og beint í áætlun Þeir hjá SBK hafa bætt við sig 19. bílnum og fór hann beint í áætlun kl. 10.30 til Keflavíkur að morgni fimmtudags með fram- kvæmdastjórann við stýrið. Virðist því svo sannarlega ekkert hálfkák vera á þeim bæ. Mannkynsfjölgun á stéttinni Á einum af baðstöðunum á Suðurnesjum gerðist það fyrir tæpum hálfurn mánuði að mannkyninu var fjölgað á stéttinni. Hvað meinar mað- urinn? hugsar nú einhver þegar hann les þetta. Það sem þarna gerðist var að næstsíðasta sunnudag, rétt fyrir opnun baðstaðarins, er umsjónarmaðurinn kom til að opna,_ blasti þetta við honum: Á bakkanum var par eitt í óða önn við að fjölga mannkyninu, stúlkan ofan á og bæði kviknakin, en þau höfðu komist inn í óleyfi skömmu fyrir opnun. Svo upptekin voru þau við iðju sína að þau tóku ekki eftir áhorfendum fyrr en komu- manni leiddist málið og kall- aði til þeirra: „Viljið þiðekki klára þetta heima hjá ykk- ur.“ Þá var ekki að spyrja að leikslokum. Greiddu fyrir sumarbústaðinn Annars staðar hér í Mol- um er fjallað um þátt Suður- nesjamanna í undirbúningi að komu páfans á dögunum. Skömmu fyrir prentun feng- um við eina frásögn til við- bótar við hinar sem birtar eru hér. Sú er rétt er, telst ekki síður skondin. Kona ein héðan að sunnan þurfti að flytja sumarbústað austur á Þingvöll til að endurnýja annan á staðnum. Ox henni í augun kostnaðurinn við flutninginn. En á sama tíma fréttu þeir sem undirbjuggu komu páfans til Þingvalla, af málinu, en þá vantaði ein- mitt sumarbústað sem skrúðhús fyrir páfa. Segir sagan því að konunni og undirbúningsnefndinni hafi samist þannig að bústaður- inn yrði lluttur austur kon- unni að kostnaðarlausu og settur niður þar sem hann skyldi síðar verða, gegn því að hún lánaði hann i einn dag til fyrrgreindra nota, og auðvitað þáði konan boðið.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.