Víkurfréttir - 08.06.1989, Qupperneq 10
10 Fimmtudagur 8. júní 1989
\)iKun
juUit
Gott kaffi
Gott verð
Fæst í næstu búð
Heildverslun
Gunnars Hjaltasonar
VOGAMENN!
Munið getraunanúmer
U.M.F. Þróttar - 190.
REIÐHJOLASKOÐUN
Á SUÐURNESJUM
fer fram laugardaginn 10. júní sem hér
segir:
Við barnaskólann í Vogum kl. 9.30
Við barnaskólann í Sandgerði kl. 11
Við barnaskólann í Garði kl. 13
Við barnaskólann í Njarðvík kl. 14
Við barnaskólann í Keflavík kl. 16
Til að lijólin fái skoðun verða þau að hafa
þetta: Hemla - 1 jós - bjöllu - framljós og raf-
al - glitauga að aftan - glitauga á fótstigi. Sé
þetta allt í lagi fá börnin viðurkenningar-
miða. Reiðhjólaþrautir á staðnum á meðan
beðið er skoðunar.
LOGREGLAN
Sjómannadagurinn á Suðurnesjum:
FJÖLBREYTT
DAGSKRÁ
Björgunaræf ingar I Keflavík
Æfingar og sýningar á vcg-
um björgunarsveita settu svip
sinn á dagskrá sjórnannadags-
ins í Keflavík. Áhöfn þyrlu
Landhelgisgæslunnar stóð sig
vel sem fyrr ásamt þeim hjálp-
arsveitar- og Stakksmönnum,
sem aðstoðuðu þá. Þá klifu
björgunarsveitarmenn Olíu-
samlagshúsið og að lokum var
fluglínu skotið úr byssu frá
bakkanum neðan nýja póst-
hússins og að dönsku skipi
sem lá í höfninni.
Síðastnefnda atriðið var síð-
asta dagskráratriðið við höfn-
ina og var það þungt í vöfum
að flestir áhorfenda voru farn-
ir til síns heima áður en yfir
lauk. Af hefðbundnum dag-
skráratriðum má nefna að
aldraðir sjómenn voru heiðr-
aðir og heiðrað var fyrir björg-
unarafrek.
En það atriði, sem best var
sótt, var hin árlega skemmti-
sigling með fullorðna og börn.
Að þessu sinni var siglt með
Stafnesi og Happasæl og sem
fyrr var það ánægður hópur
sem. kom að landi.
Þeir öldnu sem heiðraðir
voru í ár eru Árni Sveinsson,
Magnús Bergmann og Sigurð-
ur Hallmannsson. Þá var Odd-
ur Sæmundsson og áhöfn hans
heiðruð fyrir björgunarafrek
út af Garðskaga er þeir björg-
uðu skipverja af báti úr Vog-
um. Eins og víðast hvar ann-
ars staðar á landinu fóru menn
í fótspor aflakóngs lands-
manna, Sigurjóns Oskarsson-
ar úr Vestmannaeyjum, og
veittu ekki viðtöku bikar fyrir
aflakóng, þar sem kvótaút-
hlutunin ræður aflamagni en
ekki fengsæld skipstjórans.
Þeir voru heiðraðir i Keflavík. F.v. Arni Sveinsson.Sigurður Hallmannsson og Magnús Bergmann.
Fimmtudagur 8. júní 1989 11
Veðurguðirnir hliðhollir
Veðurguðirnir voru hlið-
hollir Garðmönnum þegar
skemmtiatriði sjómanna-
dagsins fóru þar fram og það
nú í 35. skipti. Sólarglæta
braust fram úr skýjunum
þegar skemmtiatriði fóru
fram við höfnina. Talið er að
um fjórðungur íbúa byggð-
arlagsins hafi fylgst með
skemmtidagskránni. Stytta
varð mörg atriði, þar sem
keppnislið, sem lofað höfðu
komu sinni, létu ekki sjá sig.
Hart var barist í hinum sí-
gilda koddaslag, en nú voru
notaðir belgir til að slá niður
andstæðinginn og gerði þetta
skemmtiatriði mikla lukku.
Einnig var boðið upp á
flekadrátt og reipitog.
Við samkomuhúsið í
Garði fóru einnig fram
skemmtiatriði, þar sem
hreppsnefndarfólk áttist við
og sjómaður heiðraður. I ár
kom það í hlut Ásgeirs
Hjálmarssonar að heiðra
Ásmund Böðvarsson fyrir
vel unnin störf til sjós, en Ás-
mundur hefur verið á ýmsum
skipum í íslenska fiskiskipa-
flotanum.
Oddur Sæmundsson skipstjóri (t.v.) veitti viðtöku
verðlaunum fyrir skipshöfn Stafnessins, fvrir að
bjarga skipverja af Ágústi Guðmundssyni GK úr
sjónum. Til hægri er Kristján Ingibergsson.
Sandgerði:
Færeyingur heiðraður
Hátíðarhöld sjómanna-
dagsins í Sandgerði fóru vel
fram. Dagurinn hófst með
sjómannaguðsþjónustu i
björgunarstöð Sigurvonar
að morgni, en eftir hádegið
var haldið niður að höfn, þar
sem ræður voru fluttar, sjó-
maður heiðraður, drukkn-
Tveir aldraðir sjómenn voru hciðraðir i Grindavík. F.v. Tómas
Þorvaldsson og Sæunn Kristjánsdóttir, sem tók við viðurkenning-
unni f.h. eiginmanns sins, Sverris Jóhannssonar.
aðra minnst og ýmis
skemmtiatriði fóru fram.
I árvar heiðraðurfæreysk-
ur sjómaður, sem til langs
tíma var búsettur í Sand-
gerði. Hann heitir Jakob
Vest Jóhannessen og er nú
búsettur í Færeyjum. Jakob
kemur oft til Sandgerðis og
var viðstaddur á sjómanna-
sunnudaginn, þegar viður-
kenningin fyrir vel unnin
störf var afhent. Það kom í
hlut Kristins Lárussonar að
afhenda viðurkenninguna,
en hann hefur annast þann
þátt sjómannadagsins
nokkur undanfarin ár.
Textí:
epj., hbb. og gub.
Mynclir:
epj., hbb. og hpé.
Flaggskip Vogamanna
í skemmtisiglingu
Skemmtisiglingin var einn vinsælasti dagskrárliðurinn. Hérer það I lappasæll
KF sem siglir fram hjá Hólmsberginu.
Grindvíkingar skáru sig úr
Mjög víða um land var sá
siður aflagður að veita afla-
kónginum viðurkenningu og
farið þar með að fordæmi
Vestmannáeyinga' eins og
fram kemur annars staðar á
síðunni. Grindvíkingar
héldu þó þessum sið og
veittu allakóngi Suðurnesja,
Jóni Ragnarssyni, viður-
kenningu.
Þá voru tvær gamlar
kempur heiðraðar, Tómas
Þorvaldsson og Sverrir Jó-
hannsson. Sá síðarnefndi gat
_ekkf verið viðstaddur og því
tók eiginkona hans, Sæunn
Kristjánsdóttir, við viður-
kenningunni fyrir hans
hönd. Að öðru leyti fór dag-
skráin vel fram þókuldi væri
mikill, eins og víðast annars
staðar.
Hátíðarhöld sjómanna-
dagsins í Vogum voru með
hefðbundnum hætti og sá
björgunarsveitin Skyggnir
um þau.
Fór m.a. fram stakka-
sund, koddaslagur, bifreiða-
dráttur og fleira og sýnd var
notkun björgunarstóls. Eftir
dagskrána við höfnina var
björgunarsveitin með kaffí-
sölu í Glaðheimum. Þar fór
einnig fram verðlaunaaf-
hending fyrir ofantaldar
keppnisgreinar. Er líða tók á
kaffisamsætið kvaddi sér
hljóðs Garðar Garðarsson,
stjórnarmaður í UMF Þrótti,
og færði hann Jóni M. Guð-
mundssyni, gjaldkera
Skyggnis, peningagjöf að
upphæð 47 þús. kr. frá Ung-
mennafélaginu.
Síðar um daginn var
hreppsbúum boðið í
skemmtisiglingu með Þúríði
Halldórsdóttur, sem segja
má að sé flaggskip Voga-
manna, þrátt fyrir tilkomu
Mariane Danielsen.
Koddaslagurinn í Garði vakli
mikla hrifningu sem og
annars staðar.
Enginn sjómannadagur fer fram án kappróðurs, og þar voru
Grindvíkingar ekki undanskildir.
SUMARTILBOÐ A UTIMALNINGU
TIL 17. JUNI
Úrvals útimálning
frá Sjöfn á aðeins
360
KR. LITERINN
10% afsláttur á fúavörn og annari
málningu
Gríptu tækifærið og pensilinn og
/
gerðu fínt hjá þér fyrir 17. júní.
Járn & Ski