Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.06.1989, Síða 16

Víkurfréttir - 08.06.1989, Síða 16
tfiKurt 16 Fimmtudagur 8. júní 1989 ATVINNA Vantar fólk til starfa við heimilishjálp. Félagsmálastjórinn í Njarðvík, Fitjum, sími 16200. Fóstrur og annað starfsfólk óskast á leikskólann Gimli, Njarðvík, frá og með 15. ágúst 1989. Umsóknareyðublöð liggja frammi að Lágmóa 4, Njarðvík, milli kl. 17og 19. Umsóknarfrestur er til ló.júní nk. Opið á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í símum 13155, 11555 og 11769. Vilhjálmur formaður héraðsnefndar Héraðsnefnd Suðurnesja, sem er arftaki Sýslunefndar Gullbringusýslu hefur kom- ið saman til fyrsta fundar. Á fundinum skiptu stjórnar- menn með sér verkum. Fyrsti formaður er Vil- hjálmur Grímsson, varafor- maður Björgvin Lúthersson og ritari Eðvald Bóasson. Vargfugli á Suðurnesjum verði útrýmt Stjórn Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum sam- þykkti á fundi sínum 25. maí sl. að senda veiðistjóra eftir- farandi áskorun: „Stjórn S.S.S. samþykkir að beina þeim eindregnum tilmælum til veiðistjóra að nú þegar verði hafist handa við útrýmingu vargfugls á Suðurnesjum." Njarðvík Hreinsunarvika Dagana 12.-16. júní 1989, að þeim meðtöldum, verður skipu- lögð hreinsunarvika í Njarðvík. Allt rusl þarf að vera út við lóðarmörk og þar sem vinnuvélar og vinnuflokkar komast að því með góðu móti. Vinnuflokkar þessir munu þó aðeins fjarlægja rusl sem sett hefur verið í poka eða bundið saman í knippi og safnað saman í tæka tíð á einn stað, út við götu, við hverja lóð. Rusl, sem er ekki frágengið í pokum eða knippum, ber umráðamanni lóðar sjálfum að fjar- lægja. Vinnuflokkar bæjarins munu ekki hreinsa sjálfar lóðirnar nema til slíkra aðgerða þurfi að koma og þá á kostnað umráðamanns lóðar. Tekið verður á móti tilkynningum í símum 11696 og 16200. NJARÐVÍKINGAR - TÖKUM NÚ ÖLL SAMAN HÖND- UM OG GERUM STÓRÁTAK í HREINSUN Á LÓÐUM OKKAR. Njarðvíkurbær verður okkur kær, þegar ruslið frá í gær, hverfa burtu fær. BÆJARSTJÓRN NJARÐVÍKUR Starfsfólk Æfingastofunnar, Gerður Gunnlaugsdóttir, Inga Rún Guðjónsdóttir og eigandinn, Valborg Einarsdóttir. Ljósm.: hbb. Auknar vinsældir meðal karlmanna Eigendaskipti hafa orðið á Æfingastofu Beggu við Hafnargötu 25 í Keflavík og hefur Valborg Einarsdóttir tekið við rekstri fyrirtækis- ins. Jafnframt hefur nafninu verið breytt í Æfmgastofan, Hafnargötu 25. Valborg sagði í samtali við blaðið að vinsældir Slender You leikfimibekkjanna færu enn ört vaxandi. Hér væri ekki um að ræða einhverja tískusveiflu, heldur eru bekkirnir til frambúðar. „Leikfimibekkirnir eru farnir að njóta aukinna vin- sælda meðal karlmanna og þeir eru mikið farnir að spreyta sig á þessu núna,“ sagði Valborg þegar hún var spurð hvort það væri ein- göngu kvenfólk sem stund- aði leikfimina í bekkjupum. Jafnframt sagði Valborg að Slender You bekkirnir væru vinsælir meðal kyrrsetufólks og að fólk væri fljótt að verða vart árangurs. Æfingastofan verður opin virka daga frá 9-22 og laugardaga frá 10-14 eða 16, eftir því sem þörf krefur. Áherslan í umhverfismálum: Fitjarnar og Iðavellirnir Heilbrigðiseftirlit Suður- nesja hefur nú ákveðið að taka tvö svæði á Keflavíkur/Njarð- víkursvæðinu sérstaklega út úr varðandi umhveríismál. Kom þetta fram á fundi meðfulltrú- um stofnunarinnar nú í vik- unni. v Hefur þeim Snorra P. Snorrasyni og Júlíusi Bald- vinssyni verið falið að sjá um þennan málaflokk. Svo má þó ekki skilja á þessu að önnur svæði verði útundan þó aðal- áherslan verði lögð á þessi tvö svæði. Verður nú öllum þeim fyrir- tækjum er hafa yfirumhverfis- menguðum athafnasvæðum að ráða send áminningarbréf. Að loknum fresti verður það ítrek- að og að því loknu verður hreinsað hjá þeim, hafi ekkert gerst í millitíðinni, og nú á kostnað eigenda draslsins. í næsta tölublaði munum við leggja eftirlitinu lið og birta myndir af svæðum, sem betur mega fara og eins af stöðum sem eru til sóma á viðkomandi svæðum. Varðandi Njarðvík, þá kom frarn í máli Magnúsar H. Guðjónssonar, heilbrigðis- fulltrúa, að bærinn hefði tekið vel í málaleitan eftirlitsins og sent unglingavinnuna á þá staði sem eftirlitið benti á. Mun eftirlitið eftir sem áður taka fyrir svæði í Sandgerði, Garði, Grindavík og eins hjá Sorpeyðingarstöð £uðurnesja við Hafnarveg. En náirar um þessi mál öllsömul í næsta tölublaði. VIÐHALD er undirstaða góðrar endingar! Annast nýsmíði og viðhaldýmiskonarjafnt innanhúss sem utan s.s. parketlagnir, gler- ísetningar, endurnýjun á þökum og útan- hússklæðningar. Smíða einnig hurðir, glugga, laus fög o.fl. Sölvi Þ. Hilmarsson, húsasmíðameistari, s: 13842.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.