Víkurfréttir - 08.06.1989, Side 18
MlKUn
18 Fimmtudagur 8. júní 1989
iutm
SPORT
MOLAR
• Gísli Jóhunnsson og Kári
Gunnlaugsson frá ÍBK og
Bjarni l’étursson, UMFN, hafa'
bæst í hóp landsdómara í
knattspyrnu. Þeir luku prófi
fyrir skömmu og eru byrjaðir
að llauta. Gísli situr einnig í
Knattspyrnudómarafélagi Suð-
urnesja.
• Gísli Jóhannsson er maður
sem situr ekki auðum hönd-
um. Hann var á ársþingi
Handknattleissambandsins
fyrir skömmu kjörinn í sam-
bandsstjórn HSI og er fyrsti
Suðurnesjamaðurinn scm sit-
ur i stjórninni.
• Meira um Gísla. Fyrir utan
starf hans í Fríhöfninni og
hlutastarf hjá Ungmennafél-
agi Keflavíkur leikur hann i
marki Hafnaliðsins í knatt-
spyrnu og er einn burðarása
handknattleiksliðs IBK á vet-
urna.
• Suðurncsjamcnn láta ekki
sitt eftir liggja í snókernum.
Um þessar mundir fer fram
heimsmeistaramót unglinga í
Hafnarfirði. Yngsti þátttak-
andinn í mótinu er úr Kefla-
vík, aðeins 12 ára og heitir
Adam Ingason. Hann fékk
sannkallaða cldskírn því einn
mótherja hans gerði sér lítið
fyrir og setti heimsmet, gerði
147 stig í röð, sem er mcstur
fáanlegur stigafjöldi í einum
„rarama". Adam tók fyrsta
stuðið í leiknum en „fékk“
síðan að horfa á niótherja sinn
leika glæsilegasta „ramma“
mótsins.
• Dómari í heimsmetsviður-
cigninni var enginn annar en
Börkur Birgisson, scm um
lcið var að öðlast alþjóðleg
dómararéttindi í snóker, en
liann þarf jafnframt að fylla
út mikið af skjölum og pappír-
um þegar um heimsmet er að
ræða. Börkur er yfirdómari i
þessu móti en að auki eru
nokkrir aðrir dómarar frá
Suðurnesjum á mótinu, m.a.
körfuholtadómarinn kunni,
Kristbjörn Albertsson, og
„leikarinn" Hafsteinn Gísla-
son.
• Einn helsti snókersérfræð-
ingur Suðurnesja og einn besti
spilarinn, Tómas Marteins-
son, sér um kynningu á leikj-
um sem er sjónvarpað á Stöð
2 og er greinilegt að Stöð 2
kom ckki að tómum kofanum
þar, enda hefur Tómas leikið
og fylgst mikið með snóker í
mörg ár.
• Einn af yngri kylfingum
Golfklúbbs Suðurnesja, Rík-
harður Ibsen, 13 ára, gerði sér
litið fyrir og fór holu í höggi á
8. braut í Lcirunni í síðustu
viku. Ríkharður notaði 3. tré í
draumahögginu, „smell-
hitt’ann" og boltinn rúllaði
smá spöl og síðan beint íholu.
• Grindvíkingar láta ekki sitt
eftir liggja í golfinu. Hann
Jón Guðmundsson „pípari“
hitti „loks" í holu í einu höggi
á 9. braut á velli þeirra Grind-
víkinga, Húsatóftavelli. Það
eru þvi þrír Suðurnesja-kylf-
ingar, sem hafa náð högginu
góða á nýbyrjuðu golftíma-
bili.
„VERÐUM AÐ
SIGRA ÞÓR“
- segir Ástráður Gunnarsson, þjálfari ÍBK
„Það er gott að ná stigi gegn
Fram á útivelli en við þurfum
nauðsynlega að sigra í kvöld,
gegn Þór,“ sagði Astráður
Gunnarsson, þjálfari IBK, sem
gerði jafntefli við Islandsmeist-
ara Fram á Laugardalsvellin-
um á sunnudagskvöldið, 1:1.
Það var Jóhann Júlíusson
sem bjargaði Keflvíkingum
um annað stigið í viðureign-
inni við Fram. Eftir langa
aukaspyrnu frá Sigurjóni
Sveinssyni stökk Jóhann
manna hæst og skallaði bolt-
ann glæsilega í netið ogjafnaði
leikinn á 71. mínútu. Framar-
ar skoruðu sem mínútum áður
og var þar að verki Guðmund-
ur Steinsson.
Framarar voru mun meira
með boltann en tókst illa að
brjóta vörn Keflvíkinga á bak
aftur. Þeir fengu þó nokkur
tækifæri en hinn ungi mark-
vörður ÍBK, Ólafur Pétursson,
stóð sig vel í markinu og varði
mjög vel. Þá áttu Keflvíkingar
einnig sín færi en nýttu þau
ekki.
Keflvíkingar eru því komn-
ir með tvö stig eftir þrjá leiki
og eru í neðsta sæti eftir 3 um-
ferðir, en munurinn er mjög
lítill, þannig að sigur í kvöld
gegn Þór gæti lyft þeim upp í
miðja deild. Þá ber þess að geta
að liðið hefur náð jafntefli gegn
tveimur sterkustu liðum deild-
arinnar.
Keflvíkingurinn Sigurjón Sveinsson verður í cldlínunni í kvöld gegn
Þór.
Víðismenn í 3. sæti
Markalaust jafntefli varð
þegar Víðismenn léku gegn
Leiftri á Ólafsfirði sl. laugar-
dag. Leikur liðanna var mjög
jafn og áttu bæði lið góðar
sóknir.
Þriðji leikur Víðismanna í
2. deildinni verður í kvöld en
þá leika strákarnir gegn ÍR-
ingum í Garðinum og hefst
leikurinn kl. 20. Eru stuðn-
ingsmenn Víðis hvattir til að
mæta á völlinn og hvetja sína
menn til sigurs en Víðisliðið
hefur nú 4 stig eftir tvo leiki.
Einar meö
15 mörk
í 2 leikjum
Njarðvíkingar hafa byrjað
vel í 4. deildinni í knatt-
spyrnu. Þeir hafá sigrað í
tveimur fyrstu leikjum
sínum. Fyrst unnu þeir Ögra
„aðeins” 28:0 og síðan
Stokkseyringa 4:2. Einar
Einarsson hefur gert hvorki
flciri né færri en 15 mörk í
leikjunum, 12 stykki gegp
Ögra og þrjú gegn Stokks-
eyringum.
Kristinn
Þór vann
og er efstur
/
Mánudagsmót Píanóbars-
ins halda enn áfram. Krist-
inn Þór Kristinsson varð
efstpr á síðasta móti, Þor-
steinn Magnússon varð
annar, Friðrik Jakobsson
þriðji og Þorsteinn Jóhanns-
son í fjórða sæti.
Kristinn Þór er efstur í
stigakeppninni með 23 stig,
Guðjón Hauksson er í öðru
sæti með 19 stig, Þorsteinn
Jóhannsson með l7ogFrið-
rik Jakobsson með 16.
íþróttadag-
urinn I
Keflavík
Íþróttadagur i"yrir al-
menning verður á laugar-
daginn í Keflavík. Verða öll
íþróttamannvirki, íþrótta-
hús og sundlaug opin og get-
ur fólk farið og skoðað, skellt
sér í sund eða hlaupið á
íþróttavellinu. Aðgangur er
ókeypis.
Tilgangurinn með íþrótta-
degi fyrir almenning er fyrst
og frepist sá að hvetja fólk til
að taka þátt í einhverjum
íþróttum, sér og öðrum til
ánægju til heilsubótar.
UMFK
með
hreins-
unar-
átak
Um næstu helgi munu
ungmennafélögin í landinu
standa fyrir miklu hreinsun-
arátaki og er stefnt að því að
hreinsa rusl meðfram 5000
km af þjóðvegum landsins
og mun þetta verða eitt öfl-
ugasta og umfangmesta
hreinsunarátak sem ráðist
hefur verið í á Islandi.
Ungmennafélag Keflavík-
ur tekur þátt í þessu átaki og
er ætlunin hjá félagsfólki að
mæta í félagsheimili UMFK
að Skólavegi 32 kl. 10 nk.
laugardag, 10. júní. Vonast
stjórn UMFK til að sjá sem
flesta, bæði félagsmenn sem
gesti, unga sem aldna, alla þá
sem vilja leggja landinu lið
og taka til.
ÍBK - ÞÓR í kvöld
fimmtudag 8. júní kl. 20.
SUÐURNESJAMENN!
Sigur í kvöld er
lífsnauðsynlegur.
Ykkar stuðningur
er okkar vopn.
Fjölmennum!
Knattspyrnuráð ÍBK