Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 6
yfiKun
6 Fimmtudagur 27. júlí 1989
| jUtíit
MS5/38
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111
ÖLL ALMENN GARÐAÞJONUSTA
ökum að okkur alla
almenna garðaþjónustu
s.s. umhirðu á lóðum
- Hellulögn.
- Utplöntun.
Gerum föst verðtilboð.
Ráðleggingarþjónusta.
SIMI
JON B. OLSEN 13767
skrúðgarðyrkjumeistari.
JÓHANNA GUNNARSDÓTTIR
garðyrkjufræðingur.
Lögreglan í Keflavík
þurfti að hafa töluverð af-
skipti af fólki sem'hafði verið
að skemmta sér aðfaranótt
laugardagsins. t>á nótt voru
dansleikir t Keflavík, Njarð-
vík og Sandgerði.
Eftir að dansleiknum í
Sandgerði var lokið varð þó
nokkuð uin slagsmál þar í
plássinu. M.a. ruddist fólk
inn í íbúð eina og braut m.a.
hurðakarm til að komaát
inn.
Einnig var nokkuð um
ryskingar meðal fólks sem
var að skemmta sér í Stapan-
trm og Glaumbergi svo og
Píanóbarnum umrædda
nó'tt. Hafði lögreglan því í
miklu að snúast sökum óláta
nótt þessa.
Jón B. Olsen
verktaki hjá
Njarðvikurbæ
við verk-
stjóra-
þjónustu
í sumar hefur Jón B. 01-
sen starfað sem verktaki hjá
Njarðvíkurbæ og býður
verkstjóraþjíópustu. Aðsögn
Odds Einarssonan; bæjar-
stjóra í Njarðvík, býður Jón
þjónustu sína á svipuðum
nótum og Verkfræðistofa
Njarðvíkur býður verkfræði-
þjónustu.
Með þessu ntóti 'er Jón
ekki á launaskrá sein bæjar-
verkstjóri, heldur þiggur
laun sem verktaki eins og
áður segir. Hann hefur um-
sjón með sumarstörfuin og
öðrum þeim störfum sem
bæjarverkstjóri hafði áður.
Reykvíkingar slógu rafmagnið út
Þrjá daga í röð urðu raf-
magnstruflanir á Suðurensj-
um í síðustu viku vegna
óhappa. Annars staðar er
greint nánar frá tveimur til-
fellanna en það þriðja kom
upp á miðvikudag er Raf-
veita Reykjavíkur gróf í
sundur streng hjá sér.
Við það myndaðist álags-
hnykkur sem varð til þess að
rofi fyrir 30 kílówatta línuna
hingað suður datt út og raf-
magn féll út í hálfa klukku-
stund á Keflavíkurflugvelli,
Sandgerði, Garði og efri
hluta Keflavíkur.
Fjórir bllar
yfirgefnir
eftir umferð-
aróhöpp
^Aðfaranótt sunnudagsins
og að morgni þess dags kom
lögreglan í Keflavík að fjór-
um bílum, sem höfðu verið
yflrgefnir eftir untferðar:
óhöpp í umdæmi hennar. I
einu tilvikanna er talið að bíl
hafi verið stolið, þar sem
beintengt var framhjá sviss
hans. Sá bíll fannst við
steypustöðina í Njarðvík og
er nánar greint frá því máli
annars staðar í blaðinu.
Skömmu eftir að sá bíll
fannst ók lögreglan fram á
annan. Sá var nálægt Víkur-
blómum á Fitjurn og hafði
honum augljóslega verið ek-
ið á ræsi nálægt steypustöð-
inni. Um kl. 9 um morgun-
inn var komið að bíl í Kúa-
gerði sem augljóslega hafði
ekið á umferðarmerki og var
hann skemmdur að framan.
Þá var síðar á sunnudeg-
inum komið að bíl sem hafði
oltið á gamla þjóðveginum
milli Garðs og Sandgerðis,
skammt frá golfvelli Sand-
gerðinga. Var bíllinn á hjól-
unum en mikið skemmdur
og búið að fjarlægja af hon-
um númeraspjöldin.
„Þetta er alveg æðislegt“ sögðu barnfóstrurnar er mynd þessi var tekin á Tjarnarseli. „Það er synd að
ekki skuli vera hægt að setja þetta víðar, vegna þess hve dýrt það er.“ Ljósm.: epj.
Nýjar öryggismottur til reynslu á Tjarnarseli:
Skapa mikið öryggi
fyrir börnin
Að ósk Foreldrafélags
Tjarnarsels hefur bæjarráð
Keflavíkur samþykkt að
kaupa sérstakar gúmmí-
mottur, unnar úr hjólbörð-
um, undir rólurnar á dag-
heimilinu Tjarnarseli í
Keflavik. Að sögn Björns
Samúelssonar, eftirlits-
manns Keflavíkurbæjar, er
hér um að ræða prufuverk-
efni til reynslu á Tjarnarseli.
Eru mottur þessar, sem
unnar eru á Akureyri, mjög
dýrar. Kostar hver fermetri
ræpar 2.900 krónur. Þó er
hér um afar sterkt, huggulegt
og vandað efni að ræða og
voru þær settar upp nú, áður
en heimilið kom úr sumar-
fríi.
Að sögn Margrétar Þór-
ólfsdóttur, forstöðukonu
Tjarnarsels, líst henni mjög
vel á þetta, þó aðeins væri
komin fárra daga reynsla.
En áður en þetta kom til var
það malbikið eitt sem tók við
börnunum, ef þau féllu t.d.
ór rAlnm
Slagsmál
og ólæti
eftir
dansleiki