Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 8

Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 8
8 Fimmtudagur 27. júlí 1989 SUMARUTSALA á skarti og -- !/■ 1 \)IKUR jíitU* molar Grín - Gagnrýni - Vangaveltur Umsjón: Emil Páll Losað um útivist- arreglurnar... Augljóst er að losað hefur verið all mikið um útivistar- reglur þær er gilda varðandi hermenn hér í heiðinni fyrir ofan. Kemur þetta heim og saman við það ónæði sem menn af lægri gráðum valda hér i byggðum. Þrátt fyrir það að yfirmenn þar efra reyni allt hvað þeir geta til að breiða yfir málið og helst eyða því. ...og skert siðgæði gagnvart landanum Það er þó ekki aðeins það að hermenn séu að spássera meira niðri í byggðinni, ölv- aðir og jafnvel vopnaðir hnífum eða öðru. Þeir eru líka farnir að angra landann meira og meira, sem fer út í náttúruna, gangandi eða ríð- andi. Eru mýmörg dæmi um það að menn, gráir fyrir járn- um, hafa stöðvað landann og spurt hann um skílríki eða hvert menn séu að fara. Er landinn jafnvel minntur á það að honum sé óheimilt að ganga um tiltekið landsvæði, jafnvel utan girðingar. Því er spurning hvort heryfirvöld séu ekki fyrir löngu farin að ganga of langt í þessum efn- um og hvort þeir séu ekki þarna farnir að sýna töluvert skert siðgæði gagnvart okk- ur? Sameiningin úr sögunni Á síðasta vetri var skýrt frá því hér í mo/um að unnið væri að sameiningu tveggja fiskvinnslufyrirtækja í Njarðvík, Brynjólfs h.f. og íslensks gæðafisks h.f. Frá því að þetta var birt hafa átt sér stað margir fundir og Vaktmaðurinn úti í guðsgrænni náttúrunni Þeir hafa margir ekið með bros á vör í gegnum Grænáshlið- ið nú í vikunni. Ekki að það sé svo skemmtilegt, heldur hefur nýtt uppátæki hjá kananum lyft brúninni á fólki. Nýjasta hugmyndin hjá kananum er nefnilega að staðsetja vaktmann sinn við Grænáshliðið á stól gegnt varðskúr lög- reglunnar. Lögregluþjónn í hliðinu sagði í samtali við blaðið að þetta væri það sem koma skildi hjá kananum, hann væri að flytja sig nær náttúrunni. Til þess að vaktmanninum yrði nú ekki kalt, þá hafði hann hitablásara sér við hlið svo blóð- rennslið héldist eðlilegt. Sem sagt, vaktmennirnir hjá hernum hafa flutt sig út í guðsgræna náttúruna. Ljósm.: hbb mikið verið unnið að undir- búningi sameiningarinnar. M.a. sagði annað fyrirtækið öllum fastráðningarsamn- ingum starfsfólks upp vegna þess. Nú hefur hins vegar komið í ljós að ekkert verður úr sameiningunni og því hef- ur viðkomandi starfsfólk verið endurráðið. Sáu þeir tvöfalt? Nú er fullvíst talið að taln- ingarmenn þeir, sem gáfu molum upp fjöldann í afmæli Bigga Guðna á dögunum, hafi verið búnir að þiggja miklar og góðar veigar er þeir töldu fólkið, því það mun nær lagi að þær hafi tal- ið tvöfalt en einfalt. Sértilboð Á ÚTIMÁLNINGU - Stóraukin málningarþjónusta. BETT, BECKERS, VITRETEX OG HEMPELS málningarvörur. Litaval Baldursgötu 14 - Sími 14737 Við erum í leiðinni! • Matvara • Nýlenduvara • Grænmeti og ávextir • Öl, gos, sælgæti • Hreinlætisvörur • Úrval af vítamínum VERSLUNIN Op'ö alla daga til kl. 20:45. Hringbraut 99 - Sími 14553. HORNIÐ

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.