Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 12

Víkurfréttir - 27.07.1989, Síða 12
\>iKun 12 Fimmtudagur 27. júlí 1989 jUtíU KðNNUN A ÞÖRF FYRIR HLUTDEILDARÍBÚDIR ALDRAÐRA Nefnd sem sett var á stofn til að undirbúa byggingar á hlutdeildaríbúðum fyrir aldraða vinnur nú að könn- un, er athugar áhuga ellilíf- eyrisþega á kaupum á slíkum íbúðum. Könnun þessi er unnin af þjónustuhópi aldraðra á Suðurnesjum og er á vegum D.S. og S.S.S. Til að sjá um könnunina hefur verið ráðin María Kristjánsdóttir og hefur hún aðstöðu á skrif- stofu Félagsmálastofnunar Keflavíkur, sími 1 1555. Um leið og kannaður er áhugi ellilífeyrisþega á hlut- deildaríbúðum, á að kanna aðstæður sem þeir búa við í dag og hvers konar þjónustu er þörf fyrir aldraða í sveitar- félögunum. Spurningalista er dreift til allra ellilífeyrisþega í þeim sveitarfélögum sem aðild Stjórn verkamanna- bústaða í Njarðvík: IBUÐIR OSKAST Stjórn verkamannabústaða í Njarðvík auglýsir eftir 3ja-4ra herbergja íbúðum án bílskúrs til kaups. Ibúðirnar skulu vera í hefðbundnum/skipulögðum íbúðahverfum. Þær skulu t.d. ekki vera í húsum, þar sem einskonar verslunar- eða atvinnustarfsemi fer fram eða ris/kjallaraíbúðir. Þær skulu vera í vel byggðum húsum, þar sem eingöngu þarf að fara fram hefðbundið og eðlilegt við- hald miðað við aldur. Tilboðum skal skila til stjórnar verka- mannabústaða í Njarðvík, Fitjum, Njarðvík, eða í pósthólf 275, fyrir 15. ágúst nk. Stjórn verkamannabústaða í Njarðvík. Tilkynning til þungaskattsgreiðenda Gjaldendum vangoldins þungaskatts er bent á að þungaskattskröfum fylgir lögveð- réttur í viðkomandi bifreið, sbr. 2. mgr. 10. gr. laga nr. 3/1987. Verði vangoldnar þungaskattsskuldir eigi greiddar fyrir 19. ágúst nk., mun, skv. 1. gr. laga nr. 49/1951, fyrirvaralaust verða kraf- ist nauðungaruppboðs á bifreiðum þeim, er lögveðrétturinn nær yfir, til lúkningar van- goldnum kröfum auk dráttarvaxta og kostnaðar. Bæjarfógetinn í Keflavík, Njarðvík og Grindavík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. eiga að D.S. og þeir vinsam- legast beðnir um að svara þeim og skila inn á næstu bæjar- eða sveitarstjórnar- skrifstofu, í Keflavík hjá Fél- agsmálastofnun. Einnig er hægt að skila þeim inn í at- hvarf að Suðurgötu 15-17 í Keflavík. Skilafrestur er til 11. ágúst 1989. Mikilvægt er að spurning- arlistum þessum sé svarað og þeim skilað. Niðurstöður þessarar könnunar verða hafðar til hliðsjónar á bygg- ingu hlutdeildaríbúða í hverju sveitarfélagi á starfs- svæði D.S., einnig fyrir aðra þá þjónustu sem þörf reynist á. Með fyrirfram þökk fyrir góðar undirtektir. F.h. undirbúningsnefndar, Jórunn Guðmundsdóttir. Stjórn verkamanna- bústaða í Keflavík: IBUÐIR OSKAST Stjórn verkamannabústaða í Keflavík auglýsir eftir 4ra-5 herbergja íbúðum án r bílskúrs til kaups. Ibúðirnar skulu vera í hefðbundnum/skipulögðum íbúða- hverfum. Þær skulu t.d. ekki vera í hús- um þar sem einskonar verslunar- eða atvinnustarfsemi fer fram eða ris/kjall- araíbúðir. Þær skulu vera í vel byggðum húsum, þar sem eingöngu þarf að fara fram hefðbundið og eðlilegt viðhald miðað við aldur. Tilboðum skal skila til stjórnar verka- mannabústaða, Hafnargötu 80, Kefla- vík, fyrir 15. ágúst nk. Stjórn verkamannabústaða í Keflavík. Tilboð óskast Óskum eftir tilboði í að klæða og skipta um þak á húseigninni Hringbraut 71 í Kefla- vík. Upplýsingar um verkhönnun veitir Georg Ormsson í síma 14349 eða Bjarni Ól- afsson í síma 13167, að Hringbraut 71. Til- boðum óskast skilað til annars fyrrgreindra aðila fyrir 10. ágúst nk. iii ii i« íi í*f Byggðasafn Suðurnesja Opið á laugardögum kl. 14 - 16. Aðrir tímar eftir samkomulagi. Upplýsingar í simum 13155, 11555 og 11769. Afmæli Fimmtugur verður á mið- vikudaginn, 2. ágúst, Sigurð- ur H. Guðjónsson, bygg- ingameistari, Stafnesvegi 22, Sandgerði. Tekur hann á móti gestum í húsi Slysa- varnasveitarinríar Sigurvon- ar, Sandgerði, á afmælisdag- inn, frá kl. 18. Afmæli Ragnar Björnssori, fyrrver- andi hafnarstjóri Landshafn- ar Keflavík-Njarðvík, verður 80 ára 1. ágúst nk. Hann tekur á móti gestum í Glaumbergi, Keflavík, milli kl. 17.00 og 20.00 sunnudaginn 30. júlí nk. Afmæli Kristbjörg J. Mtfgnúsdóttir og Ingibjörg G. Magnúsdóttir verða 30 ára 1. ágúst nk. Þær verða að Hátúni 10 á afmælis- daginn.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.