Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.1989, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 21.09.1989, Blaðsíða 2
2 a Glóðinni Hver festist í Glóðinni um helgina? Þú? Þctð er í mjög góðu lagi, því þetta er hin landsþekkta Hljómsveit Gildran sem leikur fyrir dansi til kl. 03 föstudags- og laugardags- kvöld. Aðgangseyrir 500 kr. Snyrtilegur klæðnaður. Minnum á hinn vinsæla Steikarbar ó sunnudags- kvöld. Aðeins kr. 1250 ó mann. mnmn/im/ Kynning verður haldin á Flug Hóteli laugardaginn 23. september kl. 14:00. Arnþrúður B. Árnadóttir, skrifstofutæknir, útskrifuð jan. ’89: „Námið var mun yfirgrips- meira en ég hafði haldið. Það hitti beint í mark hjá mérenda voru kennararnir frábærir og námið ítarlegt. Það var mjög ánægjulegt að hitta og starfa með því fólki sem var á nám- skeiðinu. Ég sé ekki eftir því að hafa fjárfest í skrifstofutækninámi, því það skilar sér margfalt til baka.“ Nám í skrifstofutækni opnar þér nýja möguleika í starfi. Kenndar eru allar helstu viðskipta- og tölvugreinar, sem gera þig að úrvals starfskrafti. Innritun og upplýsingar í síma 14879. V VÍKURHUGBÚNAÐUR Hafnargötu 61 - Keflavík - Sími 14879 Gildra Fréttir Víkurfréttir 21.sept. 1989 Vallargata 3 rifin Enn eitt af gömlu húsunum í miðbæ Keflavíkur hvarf af sjónarsviðinu síðasta föstu- dag. Um er að ræða hús það sem hafði númerið 3 við Vall- argötu. Er hér um gamalt íbúðar- hús að ræða, sem þó hefur verið notað sem vinnuskúr við nýja Sparisjóðshúsið undanfarin ár. Var það fyrir- tækið Garðaþjónusta Jóns og Jóhönnu sem hafði yfir- umsjón með verkinu, en verktakinn var Guðmundur' B. Kristinsson. Grafan vann auðveldlega á Vallargötu 3. Ljósm.: epj. Opiö hús hjá Önnu Leu og Bróa Líkamsrækt Önnu Leu og Bróa hefur nýlega opnað nýja aðstöðu að Hafnargötu 23, á þriðju og fjórðu hæð, og verð- ur opið hús fyrir Suðurnesja- menn, þar sem þeir geta skoð- að aðstöðuna laugardaginn 23. september milli kl. 11 og 16. Frjáls tími er kl. 11-12:30 fyrir þá sem eru hjá þeim í Tæplega tvö hundruð tonna vatnstankur verður settur upp í Ut-Garðinum næsta vor. Var komið með tankinn í Garðinn fyrir nokkru, en áður var hann notaður undir flugvélabensín á Keflavíkurflugvelli. Að sögn sveitarstjórans í líkamsrækt eins og venju- lega. Nú eru liðnar þrjár vik- ur frá því starfsemin hófst í neðri sal líkamsræktarinnar en tæp vikafrá þvíbyrjaðvar í efri sal. Vonast Anna Lea og Brói til þess að sem flestir láti sjá sig á laugardaginn og skoði aðstöðuna. Garði, Ellerts Eiríkssonar, er tanknum ætlað að koma í veg fyrir vatnsskort í Út- Garðinum. Verður honum komið fyrir ofan við Skemm- una, eða gömlu fískverkun- arhús Guðbergs Ingólfs- sonar. Garður: Enn kveikt í við bensín- stöðina Um klukkan 22.30 á þriðjudagskvöld var kveikt í rusli við bensínstöðina í Garði. Var lögregla og slökkvibíll þegar send á vett- vang, en er liðið kom á stað- inn fannst enginn eldurinn, en augljóst var að bensín hafði verið borið að og kveikt Þar sem þetta er í annað sinn á stuttum tíma, að kveikt er í við bensínstöðina, er málið litið alvarlegum augum og því í athugun. Björgunar- sveit kölluð út vegna Varnar- liðsæfinga í síðustu viku barst tilkynn- ing undir miðnætti dag nokk- urn um að norskur bátur sæi þrjú rauð neyðarblys á lofti í 12 sjómílna fjarlægð frá sér, í átt að Grindavík. Meðtók Reykjavíkurradíó tilkynningu þessa og kom henni á fram- færi við önnur skip. Þegar það bar ekki árangur var slysa- varnasveitin Þorbjörn í Grindavík kölluð út. Síðar kom í ljós að hér var um varnarliðsæfingu að ræða, þar sem neyðarblys voru notuð. Samkvæmt at- hugun blaðsins tilkynnti varnarliðið æfinguna til flug- vallarlögreglu og Landhelg- isgæslunnar. Flugvallarlög- reglan kom boðum til Kefla- víkurlögreglu, sem kom þeim áfram til Slysavarna- félagsins. Engu að síður var björgunarsveit kölluð út. Tanknum komið fyrir utan við áhaldahús Gerðahrepps, þar sem hann verður lagaður til í vetur, s.s. lakkaður að innan með sérstök- um efnum. Ljósm.: hbb. Garður: 200 tonna vatnstank- ur settur upp í vor STÆRSTA FRETTA-OG AUGLYSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM Útgefandi: Víkurfréttir hf. ---------------------------------------------------------------------------------- Afgreiösla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,15717, Box 125, 230 Keflavík. - Rltstjórn: Emil Páll Jónsson, heimas. 12677, bilas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadelld: Páll Ketilsson. - Upplag: 5500 eintök, sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.