Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.09.1989, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 21.09.1989, Blaðsíða 19
ÍÞRÓTTIR _________19 \ikurfréttir 21.sept. 1989 m v\kmmr Jæja, þá er getraunasumarfrí- inu okkar lokið og spekingar geta farið að kasta teningum og spá i liðin. Okkar maður á Wembley siðasta vor var Júlíus Baldvinsson, formaður Víðis í Garði. Hann sigraði í getrauna- leiknum og vann ferð til London á bikarúrslitaleikinn í ensku knattspyrnunni. „betta var ógleymanleg ferð og leikurinn frábær," sagði Júlíus, sem fær tilraun til að verja titilinn. Þann- ig höfum við alltaf haft það. Mótherji hans í þessari fyrstu umferð er Þorvaldur Ólafsson rafvirki, en hann tippaði gegn Birni Bjarnasyni í síðustu um- ferð undanúrslitanna í vor, sem Júlíus Þorvaldur endaði með jafntefli, en Björn tryggði sig þannig inn í úrslita- keppnina. Við bætum því Valda þetta upp,úr því að hann tapaði ekki og fær því að reyna sig við meistarann sjálfan. En hérkoma spár félaganna.... J. Þ. Arsenal-Charlton 1 1 Aston Villa-Q.P.R. 1 X Chclsea-Coventry 1 2 C. Palace-Nott. For. 2 X Derby-Southampton X 1 Everton-Liverpool 2 1 Luton-Wimbledon 1 2 Man. City-Man. Utd. 2 2 Norwich-Tottenham 2 1 Bournem.-Blackburn X 1 Oxford-Ipswich X X West Ham-Watford 1 1 Hraðmót í handbolta í Keflavík um helgina Hraðmót í handknattleik verð- ur haldið í íþróttahúsi Keflavíkur um helgina. Verður keppt bæði í karla- og kvennaflokki. I karla- flokki hafa Grótta,_ HK, Stjarnan og Suðurnesjaliðin IBK og UMFN tilkynnt þátttöku. I kvennaflokki verða Grótta, UMFA, Stjarnan, Haukar og gestgjafarnir, IBK. Mótið hefst á morgun, föstu- dag, kl. 16.30 en lýkur á hádegi á sunnudag. Leikjaröðin verður annars svona: KARLAR Föstudagur 22/9 16.30-17.20 Grótta - H.K. 17.20-18.10 Stjarnan - U.M.F.N. 18.10-19.00 Í.B.K. - Grótta 19.00-19.50 H.K. - U.M.F.N. 19.50-20.40 Stjarnan - Í.B.K. KARLAR Laugardagur 23/9 09.00-09.50 U.M.F.N. - Grótta 09.50-10.40 Í.B.K. - H.K. 10.40-11.30 Grótta - Stjarnan 11.30- 12.20 Í.B.K. - U.M.F.N. 12.20- 13.10 H.K. - Stjarnan KONUR Laugardagur 23/9 13.30- 14.20 Grótta - Í.B.K. 14.20- 15.10 Haukar - U.M.F.A. 15.10- 16.00 Stjarnan - Í.B.K. 16.00-17.10 Grótta - Haukar 17.10- 18.00 U.M.F.A. - Stjarnan KONUR Sunnudagur 24/9 09.00-09.50 Grótta - Stjarnan 09.50-10.40 Í.B.K. - U.M.F.A. 10.40-11.30 Haukar - Stjarnan 11.30- 12.20 Grótta - U.M.F.A. 12.20- 13.10 Í.B.K. - Haukar Reykjanesmótið í handbolta: ÍBK vann UMFN Það er í nógu að snúast hjá handknattleiksmönnum um þessar mundir. Auk hraðmóts, sem verður um helgina, þá eru Suðurnesjaliðin með í Reykja- nesmótinu og voru fyrstu leik- irnir sl. föstudag. ÍBK vann ÍH í Hafnarfirði 26:22 eftir að heimamenn höfðu verið yfir í leikhléi, 11:10. Kefl- víkingar fylgdu þessum góða sigri eftir og unnu nágranna sína, Njarðvíkinga, 23:17 (12:5). Njarðvíkingar töpuðu síðan gegn Breiðabliki. Öli Gott. Ólafur Gottskálksson, landsliðsmarkvörðurí knatt- spyrnu og körfuknattleiks- maður, mun að öllum líkind- um leika með liði ÍBK í vet- ur. ,,Við vitum ekki beturen að Ólafur komi þegar knatt- spyrnuvertíðinni er !okið,“ sagði Gunnar Jóhannsson, formaður körfuknattleiks- C-vaktin best C-vakt slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli1 sigraði á útimóti UMFN í knatt- spyrnu, sem haldið var í Njarðvik fyrir skömmu. Slökkviliðið vann Kefla- víkurverktaka í úrslitaleik, 2:1. Spútniklið Grágásar varð í þriðja sæti með því að sigra Njarðvíkurbæ með þremur mörkum gegn engu. með ÍBK deildar IBK, í samtali við blaðið. Keflvíkingar misstu sem kunnugt er tvo af sterkustu og reyndustu leikmönnum sínum, þá Jón Kr. Gíslason og Axel Nikulásson. Jón fór til Danmerkur en Axel gekk til liðs við KR.______ UMFN vann UMFG 5:4 Njarðvíkingar ' korhu á óvart er þeir sigruðu Grind- víkinga í undanúrslitum fyr- ir Landsmót ungmennafél- aganna í knattspyrnu. • Njarðvíkingar skoruðu 5 mörk gegn 4 Grindvíkinga. Kjartan Einarsson átti hættulegt skot að marki KA, sem fór í þverslána, Gæfan var hvorki með ÍBK eða Víði Þrjú lið af Suðurnesjum í 2. deild að ári Gæfan var ekki með Kefl- víkingum í síðasta leik þeirraá íslandsmótinu í knattspyrnu sl. laugardag, er þeir léku við KA í Keflavík. KA-menn sigr- uðu 2:0 í leik sem heimamenn hefðu með smáheppni getað náð hagstæðari úrslitum. Einnig töldu margir að fyrsta mark KA hefði verið með rangstöðulykt. En hvað um það, Keflavík verður ásamt tveimur öðrum Suðurnesjaliðum í 2. deild á næsta ári, því bæði Víðir og Grindavík munu veita Kefl- víkingum félagsskap og harða keppni. Víðismenn léku við Teitur Örlygsson, UMFN, og Ingólfur Halldórsson „stinga saman nefjum“ í leik liðanna í Reykjanesmótinu. Ljósm.: pket. Reykjanesmótið í körfu: Hart barist ÚRSLIT: UMFN-UMFT 77:78 (41:41) Stig UMFN: Teitur 34, Friðrik Ragn. 14. Stig UMFT: Valur 1. 31, Bo Heyden 17. UMFG-Reynir 104:71 (53:35) Stig UMFG: Guðmundur Braga 25, Steindór 19. Stig Reynis: Sveinn Gísla 24, David G. 19. ÍBK-UMFT 85:99 (49:45) Stig ÍBK: Guðjón 24, John Vergason 16, Falur 15. Stig UMFT: Bo Heyden 36, Val- ur I. 32, Sturla 19. Haukar-UMFG 73:61 (39:40) Stig UMFG: Guðmundur Braga 17, Jeff Null 16. Stig Hauka: James Bow 15, Jón Amar 18. UMFT-Reynir 71:59 (38:27) Stig Reynis: David Gr. 24, Ellert 10. Stig UMFT: Bo Heyden 42, Val- ur 15. ÍBK-UMFN 87:102 (45:55) Stig ÍBK: John Vergason 25, Guðjón 15. Stig UMFN: Teitur 29, Mike Clark 22. Reynir-Haukar 74:84 (40:42) Stig Reynis: David 27, Ellert 21. Stig Hauka: James 18. Selfoss í síðasta leik sínum í 2. deild fyrir austan og sigruðu 2:1 með mörkum Grétars Ein- arssonar. En það dugði ekki til, því Vestmannaeyingar sigr- uðu einnig í sínum leik og end- uðu því einu stigi fyrir ofan okkar menn úr Garðinum. Stórþjálfarar til Suðurnesja • Varla er knattspyrnuvcrtíð lokið þegarbyrjaðerað ræðaum þjálfaramál næstu vertíðar. Nokkuð víst þykir að bæði ÍBK ogGrindavíkgjói augum til þeirra þjálfara sem náð hafa frá- bærum árangri með sín lið og verða nokkuð örugglega á lausu, en þetta eru þeir Asgeir Elías- son, Framari, og Guðjón Þórð- arson, sem þjálfaði KA, en hann hafði lýst því yfir að hann myndi ckki þjálfa liðið á næsta ári. En hvernig svo sem þjálfaramálin fara er öruggt að 2. deildin, með þrjú Suðurnesjalið innahborðs, verður sterk og spennandi næsta ár. Og gjaldkerar deildanna sjá stóran plús, því búast niá við því að aðsókn að „Derby-leikjun- um“ hér,á Suðurnesjum verði góð og tómahljóðið í kössunum hverfi...________________ Púltið féll líka • Knattspyrnuráð ÍBK hélt uppskeruhátíð allra flokka eftir leik ÍBK og KA á Iaugardag, þar sem leikmennallra flokka fengu viðurkenningar fyrir góða frammistöðu í sumar. Formaður ÍBK, Ragnar Örn Pétursson, og formaður knattspyrnuráðs, Rúnar Lúðvíksson, fluttu ávörp. Þegar Ragnar hafði lokið máli sínu vildi ekki betur til en svo að hann rak sig I púltið seni datt niður á gólftð við mikinn hlátur viðstaddra. Höfðu ntenn orð á því að þetta hefði verið dæmi- gert eftir gengi ÍBK-liðsins... Vinningsnúmer Víðis Dráttur hefur farið fram í happdrætti knattspyrnufél- agsins Vtðis. Eftirtalip núm- er hlutu vinninga: Bifreið nr. 1019, sjónvarp nr. 932 og fjórir ferðavinningar á miða nr. 918, 670, 301, 78. Vinninga er hægt að vitja hjá knattspyrnufélaginu Víði. Víðismenn vilja koma á framfæri þakklæti til allra þeirra er tóku þátt í happ- drættinu. (Birt án ábyrgðar)

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.