Víkurfréttir - 05.10.1989, Side 24
Uppsagnir dregnar til baka
Stjórn Sambands sveitarfél-
aga á Suðurnesjum kom til
skyndifundar síðasta fimmtu-
dag, þar scm aðcins eitt mál var
á dagskrá. Voru það áðursend-
ar uppsagnirstarfsfólksHeilsu-
gæslustöðvar Suðurnesja í
framhaldi af tilmælum SSS
þess efnis og laga um skiptingu
rekstrarþátta milli ríkis og
sveitarfélaga, er taka gildi um
áramót.
Fyrir fundinum lá bréf heil-
brigðisráðherra þar sem farið
var fram á að umræddum
starfsmönnum yrði ekki sagt
upp frá og með síðustu mán-
aðamótum, þar sem ákveðið
hefði verið aðfresta um sinn að
gera starfsmenn sveitarfélaga
á heilsugæslustöðvum í starfs-
tengslum við sjúkrahús að rík-
isstarfsmönnum.
Telur stjórn SSS því rétt að
stjórn HSS dragi uppsagnir
starfsmanna sinna til baka,
enda er það skilningur stjórn-
ar SSS að það breyti í engu til-
gangi laganna um aðríkissjóð-
ur greiði allan rekstrarkostnað
HSS frá nk. áramótum. Með
sama hætti telur stjórnin ekki
nauðsynlegt að segja upp
starfsmönnum BS og DS, svo
sem fyrirhugað var.
Lindarlax fær
greiðslustöðvun:
Leitað eftir
nýju hlutafé
Fiskcldisfyrirtækið Lindar-
lax á Vatnsleysuströnd fékk 3ja
mánaða greiðslustöðvun í síð-
ustu viku. Fyrirtækið er einn
stærsti aðilinn i fiskcldi hér á
landi.
Um fimmtungur skulda
Lindarlax er skammtímalán
og á meðan á greiðslustöðvun-
artímabilinu stendur er hug-
mynd forráðamanna fyrirtæk-
isins að breyta þeim í lang-
tímalán, auk þess sem reyna á
að ná nýju hlutafé inn í fyrir-
tækið, að stögn Stöðvar 2.
Stærstu eigendur Lindarlax
eru norskir aðilar sem eiga
78% hlutafjár, en Draupnir,
sem er sjóður innan Iðnþróun-
arsjóðs, á um 12%. Að sögn
forráðamanna fyrirtækisins er
eiginfjárstaða jákvæð. Fram-
leiðslugeta Lindarlax er á milli
1100-1400 tonn á ári.
Gull- og silfurmerkjahafar UIVIFK
Ungmennafélag Keflavíkur hélt upp á 60 ára afmæli sitt með hófi á Glóðinni sl. laugardag. Var margt
um manninn á Glóðinni, þar sem ávörp voru flutt og góðum ungmennafélögum veitt gull og silfurmerki
félagsins, auk útnefninga íþróttamanna félagsins. A myndinni eru þeir gull- og silfurmerkjahafar sem
voru viðstaddir, en á bls. 16 er hluti afniælisávarps, sem flutt var við þetta tækifæri.
Ljósm.: pkct.
Bæjarsjóður Keflavíkur
eignast slippinn
Tjðnvaldur
stakk af
Ekið var á bifreið við Lang-
holt í Keflavík að morgni síð-
asta sunnudags. Hafði tjón-
valdurinn stungið af, en við
eftirgrennslan lögreglu fannst
bifreið þess er olli tjóninu.
Við þriðja og síðasta nauð-
ungaruppboð á fasteignum
þrotabús Dráttarbrautar
Keflavíkur sem fram fór rétt
l'yrir hádegi í gær, voru eign-
irnar slegnar bæjarsjóði Keíla-
víkur fyrir fiprin milljónir
króna, en enginn bauð á móti.
Átti bæjarsjóður forgangs-
kröfu upp á þá upphæð vegna
vangoldinna lasteignagjalda.
Eina krafan sem var á und-
an bæjarsjóði og hana verður
að greiða, er l'rá Brunabóta-
félagi íslands upp á hálfa aðra
milljón. Er talið að um 55
milljónir í kröfurn hafi tapast
við uppboðið, cn á 1. veðrétti(
var Iðnlánasjóður nieð 15
milljónir, á 2. veðrétti Byggða-
stofnun mcð svipaða upphæð
og Verslunarbankinn á þeim
3. með svipaða tölu. Munu
þeir tapa öllu sínu.
Að sögn Hjartar Zakarías-
sonar, setts bæjarstjóra, er
málið það nýkomið upp á
borðið, að enn hafa engar á-
kvarðanir verið teknar um
framhald þess.
Mikil þrengsli
Þrátt fyrir fjögurra síðna
stækkun á blaðinu varð mikið
af efni og auglýsingum sem
komst ekki inn, og biðjumst
við velvirðingar á. Jafnframt
skorum við á áhugaaðila að
vera tímanlega með efni og
auglýsingar í næstu blöð, þar
sem fyrirsjáanleg eru mikil
þrengsli.
TRÉ-X ROYAL ÞILJUR
TRÉ-X byggingavörur - löavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700
Landshafnar-
mönnum sagtupp
Samkvæmt ákvörðun ráðu-
neytis hefur stjórn Landshafn-
ar Keflavíkur/Njarðvíkur sagt
upp öllum starfsmönnum
hafnarinnar með þriggja mán-
aða fyrirvara. Er þetta gert
vegna gildistöku laga um
skiptingu milli ríkis ogsveitar-
félaga er taka gildi um áramót.
Eftir áramót mun rekstur
landshafna flytjast yfir til
sveitarfélaga, þar sem það á
við. Kom mál þetta upp á bæj-
arstjórnarfundi í Kefíavík á
þriðjudag, erDrífaSigfúsdótt-
ir vakti athygli á því.
Grænás:
Deiliskipulag
samþykkt
Bæjarstjórn Njarðvíkur hef-
ur samþykkt tillögu allra bæj-
arfulltrúa um að hefja undir-
búning að deiliskipulagi
Grænássvæðisins. Er hér átt
við svæðið ofan byggðar frá
Fitjum að Bolafæti í Njarðvík.
Var bæjarráði falið að heíja
athugun á málinu og er reikn-
að með að fengnir verði skipu-
lagshönnuðir í lið með bæjar-
yfirvöldum vegna þessa.
Grindavík:
Grímuklæddur
maður
- hrellir verðbúðarfólk
Grímuklæddur maður,
ásamt tveimur öðrum, var
stöðvaður við iðju sína utan
við verbúð eina í Grindavík
fyrir síðustu helgi.
Hafði sá grímuklæddi verið
að hrella verbúðarfólkið með
því að liggja á gluggum. Var
lögregla kölluð til og kom þá í
ljós að sá með grímuna reynd-
ist ölvaður og fékk að gista
fangageymslur lögreglu. Hin-
um tveimur var sleppt að
loknu tiltali.
MUNDI
Verður ekki að opna gleði-
hús í slippnum, svo að
Dráttar-brautin standi
undir nafni? . . .