Morgunblaðið - 11.12.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2015
Friðriksmót Landsbankans - Ís-
landsmótið í hraðskák - fer fram í
útibúi Landsbankans við Austur-
stræti 11 á morgun, laugardaginn
12. desember. Mótið hefst kl. 13 og
stendur til kl. 16.30.
Gera má ráð fyrir að flestir
sterkustu skákmenn landsins taki
þátt og efsti keppandi mótsins fær
titilinn Íslandsmeistari í hraðskák.
Tímamörkin eru 5+2 og tefldar eru
ellefu umferðir.
Þetta er tólfta árið í röð sem
Landsbankinn og Skáksamband Ís-
lands standa fyrir Friðriksmótinu í
skák, en mótið er haldið til heiðurs
Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeist-
ara Íslendinga. Margir af sterkustu
stórmeisturum landsins hafa und-
anfarin ár teflt til heiðurs Friðriki,
segir í frétt frá Skáksambandinu.
Síðdegis í gær höfðu 103 skák-
menn skráð sig til leiks.
Héðinn Steingrímsson stórmeist-
ari var sigurvegari mótsins í fyrra.
Teflt til
heiðurs
Friðriki
Morgunblaðið/Kristinn
Stórmeistari Mótið er haldið til
heiðurs Friðriki Ólafssyni.
Á miðvikudag tóku þrír starfs-
menn Háskóla Íslands við viður-
kenningu fyrir lofsverðan árang-
ur í starfi á fundi rektors með
starfsmönnum skólans. Verð-
launahafarnir eru Urður Njarð-
vík, dósent við sálfræðideild,
Hannes Jónsson, prófessor við
raunvísindadeild, og Elva Ellerts-
dóttir, deildarstjóri á skrifstofu
félagsvísindasviðs.
Þetta er í 13. sinn sem starfs-
menn við Háskóla Íslands eru
heiðraðir fyrir vel unnin störf.
Forsendur viðurkenningar eru
ágæti í kennslu, rannsóknum,
stjórnun eða í öðrum störfum í
þágu Háskólans.
Staðið er að tilnefningum með
þeim hætti að allir starfsmenn
háskólans fá sendan tölvupóst
þar sem þeim er gefið tækifæri
til að tilnefna til viðurkenning-
anna fyrir rannsóknir og önnur
störf, en nemendur frá póst þar
sem þeim býðst til að tilnefna til
viðurkenningarinnar fyrir
kennslu. Ennfremur tilnefnir
kennslumálanefnd háskólaráðs
þrjá akademíska starfsmenn til
viðurkenningar fyrir kennslu og
vísindanefnd tilnefnir þrjá aka-
demíska starfsmenn til við-
urkenningar fyrir rannsóknir.
Þriggja manna valnefnd fer síðan
yfir tilnefningarnar og rökstuðn-
ing tilnefningaraðila og velur
einn úr hverjum hópi. Á mynd-
inni eru verðlaunahafarnir ásamt
Jóni Atla Benediktssyni, rektor
Háskóla Íslands, frá vinstri Hann-
es, Urður, Elva og Jón Atli.
Háskólinn veitir verðlaun
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Þrír starfsmenn fá viðurkenningu fyrir lofsverðan árangur
Í ár fagna þjónustumiðstöðvar
Reykjavíkur tíu ára afmæli en þær
eru sex og þjóna öllum hverfum;
Árbæ, Grafarholti og Úlfarsárdal,
Breiðholti, Grafarvogi, Laugardal
og Háaleiti, Miðborg og Hlíðum og
Vesturbæ.
Forsögu þjónustumiðstöðvanna
má rekja til fjölskylduþjónustu
sem sett var á fót í Miðgarði í
Grafarvogi árið 1997 og til sam-
þykktar í borgarstjórn sumarið
2002 um að auka nærþjónustu í
hverfum. Áður höfðu fulltrúar
Reykjavíkurborgar kynnt sér
starfsemina í norrænum frænd-
garði, m.a. Ósló, Stokkhólmi og
Kaupmannahöfn, sem leiddi til
þess að skipuð var nefnd um stofn-
un þjónustumiðstöðva í byrjun árs
2003, og síðar stýrihópur sem lagði
til að þjónustumiðstöðvarnar yrðu
opnaðar árið 2005.
Í tilefni tíu ára afmælisins efnir
velferðarsvið til málþings í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag, föstudaginn 11.
desember kl. 13-16.30. Þar verður
rætt um reynsluna af starfi þjón-
ustumiðstöðvanna, stöðu þeirra og
þróun í þjónustu borgarinnar.
Starf þjón-
ustumiðstöðv-
anna rætt
Bering
26.700
Bering
31.000
Bering
33.300
Börkur
24.900
Casio
6.200
DW
28.600
Sign
hálsmen
25.500
Michael Kors
49.900
Michael Kors
55.900
Tissot PRC200
81.700
Tissot PR100
49.900
Tissot Lady
81.700
Tissot Dressport
75.900
Úr skart & skrín
fallegar gjafir í jólapakkann
Sign armband
19.900
Sign hringur
35.900
Sign hringur
19.900
Sign
eyrnalokkar
19.900
Herraskrín
17.900
Skrín
17.800
Skrín
3.990
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007skartgripirogur.is