Morgunblaðið - 11.12.2015, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2015
✝ Þorsteinn Ing-ólfsson fæddist
í Reykjavík 19.
febrúar 1950. Hann
lést á Landspít-
alanum 1. desem-
ber 2015.
Hann var sonur
hjónanna Ástu
Ingibjargar Þor-
steinsdóttur, f. 9.
ágúst 1926, d. 6.
apríl 2012, og Ing-
ólfs Guðmundssonar, f. 30. sept-
ember 1916, d. 10. apríl 2004.
Systkini Þorsteins eru Guð-
mundur Örn, f. 1946, hans kona
er Halla Hauksdóttir, f. 1946,
Einar Axel, f. 26. apríl 1951, d.
29. september 1972, Haraldur
Már, f. 1953, hans kona er Sofía
B. Pétursdóttir, f. 1954, og Ást-
ríður Helga, f. 1962, hennar
Óli, f. 1979, í sambúð með Mo-
niku Justynu Radowska, f. 1980,
þeirra börn eru Ísak Óli Sig-
urðsson, f. 2007, og Nína
Sigurðardóttir, f. 2008.
Börn Þorsteins með Guðnýju
Bogadóttur eru: 4) Erla Björk,
f. 1988, hennar eiginmaður er
Baldur Már Helgason, f. 1984. 5)
Einar Björn, f. 1991, í sambúð
með Láru Leifsdóttur, f. 1993.
Þorsteinn var í sambúð með
Unu Bryngeirsdóttur, f. 1954, til
ársins 2014. Synir hennar eru
Gunnar, f. 1973, og Bryngeir, f.
1976, kvæntur Jóhönnu Arn-
þórsdóttur, f. 1986, þeirra dæt-
ur eru Lovísa Una, f. 2007, og
Arney Stella, f. 2011.
Þorsteinn lauk búfræðinámi
frá Hvanneyri og stundaði nám
við Vélskóla Íslands. Hann var
til sjós um tíma, vann við olíu-
hreinsun úr skipum, keyrði fyr-
ir Ferðaþjónustu fatlaðra og
stundaði leigubílaakstur alla
tíð.
Þorsteinn verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju í dag, 11. des-
ember 2015, klukkan 15.
maður er Kristján
Valsson, f. 1959.
Þorsteinn
kvæntist Pálínu
Ernu Ólafsdóttur,
f. 1947, þau skildu.
Börn þeirra eru: 1)
Halla Dröfn, f.
1974, í sambúð með
Sigurjóni Þ. Guð-
mundssyni, f. 1965,
börn Höllu eru
Erna Hörn Davíðs-
dóttir, f. 1997, faðir Davíð Þór
Valdimarsson, f. 1973, Hilmir
Bjólfur Sigurjónsson, f. 2008, og
Huginn Breki Sigurjónsson, f.
2011. 2) Ásta Ingibjörg, f. 1977,
hennar eiginmaður er Róbert
Grímur Grímsson, f. 1972, og
eru synir þeirra Grímur Þór Ró-
bertsson, f. 2000, og Grettir Þór
Róbertsson, f. 2005. 3) Sigurður
Að kveðja góðan vin er þyngra
en tárum taki.
Það er orðið ansi langt síðan að
ég kynntist Steina, ætli það hafi
ekki verið er ég byrjaði að aka
leigubíl 1976. Það var bara þann-
ig að allir þekktu Steina og Steini
þekkti alla. Það hófst alvöru vin-
skapur og samstarf okkar í milli
er hann fékk fyrstu Caravelluna
sína. Og eftir að hann hóf akstur
fyrir Ferðaþjónustu fatlaðra í
Reykjavík höfum verið svo að
segja í daglegu sambandi og
flesta daga oft á dag. Hann var
afar vinsæll hjá farþegum ferða-
þjónustunnar og er hans sárt
saknað af þeim. Hér áður fyrr var
hann í snatti fyrir Sparisjóð vél-
stjóra og hélt hann enn sambandi
við hluta af því fólki. Í hverjum
mánuði í mörg ár var hann feng-
inn í verkefni fyrir SÍBS er dreg-
ið var í happdrættinu og einnig sá
hann um fleiri verkefni fyrir það
félag ásamt verkefnum fyrir
Hjartaheill. Ég veit ekki hvað
margar jeppaferðir við höfum
farið saman í, en þær eru margar
á mörgum árum. Þetta voru hans
bestu stundir á seinni árum, að
ferðast um okkar yndislega land
gista í skálum, borða góðan mat,
hlusta á og segja sögur. Steini
var góður sögumaður og hafði
gaman af að segja sögur. Hann
var afar minnugur á gamla tíma,
t.d. þegar hann var í sveit sem
polli í Skagafirði, þvottastrákur
hjá Norðurleið þar sem var víst
margt brallað. En drengur var
hann góður og mikill vinur vina
sinna. Því fékk ég sko að kynnast.
Síðast nú í sumar er ég var á leið
norður í land og bíllinn minn bil-
aði.
Þá hringdi ég í Steina fyrstan
af öllum og ekki stóð á svarinu
„kem í hvelli“. Og hann kom og
dró mig í bæinn. Fyrir nokkrum
árum fórum við allmarga ferðir á
jökla landsins en nú síðari ár höf-
um við aðallega farið í haustferð-
ir, oftast tvær ferðir á hverju
hausti. Núna í haust fórum við
tvær ferðir, fyrst eina dagsferð
og síðan tveggja daga ferð í októ-
ber. Í þeirri ferð vorum við Halli,
bróðir Steina, farþegar. Hann ók
sjálfur allan tímann sjálfur þessa
rúma 1.000 km á rúmum sólar-
hring sem þessi ferð tók. Þetta
var því miður síðasta jeppaferðin
okkar Steina í þessu lífi. Hann fór
til Tenerife í febrúar á þessu ári
með Karli Grant og Sollu. Við
Helga drifum okkur líka og vor-
um við í síðasta afmælinu hans er
hann varð 65 ára. Honum leið alls
ekki vel á þessum tíma, en hann
lagaðist heldur er heim kom.
Bílar skipuðu stóran sess í hans
lífi.
Hann byrjaði snemma þó ung-
ur væri að aka traktorum og
jeppum í sveitinni í Skagafirði.
Hann gerði akstur að ævistarfi
sínu og fannst ekkert skemmti-
legra en að vera að aka. Hann var
orðinn afar spenntur að fara að fá
nýja Bensann sem hann var bú-
inn að panta, en hann var rétt
ókominn til landsins er ólánið
reið yfir. Hann var búinn að eiga
gamla Broncoinn hans pappa síns
í mörg ár og hafði ekkert gert í
honum afar lengi, en nú var sú
uppgerð komin á allgóðan rek-
spöl er hann féll frá. Ég vona að
einhver góður taki við keflinu af
honum og klári það verkefni, þó
ekki sé það auðvelt.
Ég votta börnum, barnabörn-
um, systkinum og öðrum ástvin-
um mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur. Minningin lifir um góðan vin.
Steindór Björnsson.
Við söknum hans Steina. Að
eiga ekki lengur von á að fá hann
í kaffi eða snatt eða spjall. Þá
sagði hann okkur sögur af sjón-
um eða af prakkarastrikum úr
sveitinni fyrir norðan. Nú, eða þá
talaði um bíla. Fornbíla, torfæru-
bíla, sýningarnar í Bandaríkjun-
um, jafnvel um leigubíla. Það var
gott að sitja með Steina og spjalla
og hlusta á smitandi hrossahlát-
urinn hans sem hljómaði oft um
húsið.
Steini var góður félagi okkar
og vinur og starfaði fyrir SÍBS af
mikilli trúmennsku í áratugi.
Hann var alltaf boðinn og búinn
til að gera það sem gera þurfti
fyrir okkur. Ekki bara í vinnunni
heldur líka í skemmtiferðunum
okkar vítt um land, þar sem hann
var sjálfkjörinn bílstjóri, traustur
og áreiðanlegur og góður ferða-
félagi. Ef þurfti að fá skutl í flug
til Keflavíkur eða akstur fyrir
Hjartaheill út og suður var Steini
alltaf boðinn og búinn.
Oft er sagt að maður komi í
manns stað og það er vafalaust
rétt, að störfin verða unnin
áfram. En í hug okkar og hjarta
verður tómarúm að Steina
gengnum sem verður vandfyllt.
Hvíl í friði kæri vinur.
Við vottum börnum hans og
öðrum aðstandendum samúð
okkar.
Fyrir hönd starfsfólks í SÍBS-
húsinu,
Ásgeir Þór Árnason.
Þorsteinn
Ingólfsson
✝ Jónína Hall-dóra Einars-
dóttir fæddist á
Sæbóli, Ingjalds-
sandi, 4. maí 1924.
Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir í
Reykjavík 1. des-
ember 2015.
Foreldrar henn-
ar voru Rósa-
munda Guðný
Jónsdóttir, f. á Sæ-
bóli á Ingjaldssandi 1894, d.
1984 og Einar Guðmundsson, f.
á Skarði í Lundarreykjadal
1882, d. 1966. Systkini Jónínu
voru Sigríður Marín, f. 1921, d.
2011, Rósa, f. 1927, Jón Guð-
mundur, f. 1931, d. 1931 og
Sveinfríður Ragna, f. 1933.
Jónína giftist Bjarna Ás-
mundi Gíslasyni 5. júlí 1953,
fæddur á Borg í Skötufirði 11.
maí 1928.
Börn þeirra Jónínu og
Bjarna eru: 1. Rósamunda
Gerður Bjarnadóttir, f. 29. júlí
1953. Maki: Skúli Skúlason,
þau skildu. Börn: a) Jónína
1986. e) Jónína Sigríður, f.
1988. f) Sigtryggur Brynjar, f.
1990, 3. Gísli Jón, f. 29. apríl
1961, maki Guðbjörg Aðal-
steinsdóttir, f. 1966. Börn
þeirra: a) Elín Anna, f. 1988,
sambýlismaður: Sigurberg Guð-
brandsson, f. 1988. Barn
þeirra: Guðbrandur Gísli, f.
2012. b) Íris Eva, f. 1992, sam-
býlismaður: Mathieu Grettir
Skúlason, f. 1993. Barn hennar:
Eva Elírós, f. 2012.
Jónína fæddist á Sæbóli en
flutti síðar með foreldrum sín-
um að Bakka í Dýrafirði. Jón-
ína sótti barnaskóla í Dýrafirði
en fór síðar í Hússtjórnarskól-
ann í Hveragerði. Vann hún
lengi vel á saumastofu í
Reykjavík á sokkabandsárum
sínum. Hún bjó ásamt Bjarna
eiginmanni sínum í nokkur ár
á Austfjörðum en þau fluttu
eftir það aftur suður til
Reykjavíkur og bjuggu þá
lengst af í Hvassaleiti 157. Jón-
ína tók þá að sér saumaskap
og uppsetningu á púðum sem
hún vann að heima. Síðustu
starfsár Jónínu vann hún sem
eldhústæknir í eldhúsi fyrir
aldraða við Lönguhlíð, Reykja-
vík.
Útför Jónínu fer fram frá
Grensáskirkju í dag, 11. desem-
ber 2015, klukkan 11.
Edda Skúladóttir,
f. 1974, maki Einar
Guðmannsson, f.
1971. Börn þeirra:
Guðný Rós, f. 1995,
og Sóley Ósk, f.
2000, Erla Dís, f.
2009. b) Ómar
Rafn Skúlason, f.
1979. Börn hans:
Katrín Hugljúf, f.
2008, Kristín Ósk,
f. 2011, Pálína
Margrét, f. 2013. c) Þórdís
Anna, f. 1988. Sonur hennar:
Daníel Máni, f. 2011. 2. Guðrún
Hildur, f. 29. júlí 1953, maki
Þorlákur Sigtryggsson, f. 1955,
d. 2001. Börn: a) Bjarni Hall-
dór Sigursteinsson, f. 1976,
maki Sigrún Kristín Jónasdótt-
ir, f. 1981. Börn þeirra: Hilmir
Þór, f. 2009 og Eygló Ninna, f.
2011. b) Kristjana Þuríður, f.
1980, sambýlismaður Francesco
Dotto, f. 1968. Barn þeirra:
Vigdís Aurelia, f. 2013. c) Ein-
ar Guðmundur, f. 1983, sam-
býliskona Aldís Gunnarsdóttir,
f. 1983. d) Magnús Jóhann, f.
Það eru ekki nógu mörg orð til í
heiminum sem geta lýst því
hversu mikið ég sakna þín, elsku
amma mín, en minning þín mun
alltaf vera til staðar.
Ég var vön að koma í heimsókn
til þín til að spila rommí, við gátum
spilað eins og okkur sýndist, við
fengum aldrei nóg. Það var þó
ekki auðvelt að vinna þig en það
kom fyrir örfáum sinnum að mér
tókst að vinna þig.
Ég man ekki hversu oft ég fékk
símhringingu frá þér um þennan
bévítans síma sem blikkaði stans-
laust og þú gast ekki lagað það, ég
kom alltaf með bros á vör, tilbúin
til að hjálpa þér. Þetta ljós kom
alltaf þegar þú misstir af símtali.
En sama hvað ég reyndi að út-
skýra fyrir þér ástæðuna fyrir
þessu ljósi þá fussaðirðu og
sveiaðir yfir því og hélst að hann
væri bara bilaður.
Þær minningar sem ég hef um
þig eru svo margar að ég kæmi
þeim ekki öllum fyrir. Ég var svo
heppin að geta kallað svona ynd-
islega og góðhjartaða konu lang-
ömmu mína.
Tárin hætta ekki að streyma
niður kinnarnar á mér þegar mér
verður hugsað til þín, amma mín,
og alls þess góða sem fylgdi þér,
svo að ég er hætt að sjá. Svo ég
held að þetta sé nóg, alla vega í
bili.
Þar til við sjáumst síðar ætla ég
að kveðja þig, elsku engillinn
minn.
Þitt langömmubarn,
Sóley Ósk.
Elsku Ninna amma
(langamma), ég sit uppi í rúmi
með tárin í augunum og reyni að
skrifa niður seinustu kveðjuna til
þín en ég veit ekki hvar ég á að
byrja. Við áttum svo margar
minningar saman, minningar sem
munu aldrei gleymast.
Öll þau skipti sem spilin voru
tekin upp og við systur spiluðum
við þig ólsen-ólsen eða veiðimann.
Sama hvað við reyndum að vinna
þig tókst okkur það sjaldnast. Það
er okkur hulin ráðgáta enn í dag
hvernig þú fórst að því að vinna
okkur alltaf.
Þú varst yndislegasta mann-
eskja sem ég þekkti, vildir allt fyr-
ir mann gera og hafðir endalausa
trú á öllu sem maður tók sér fyrir
hendur.
Þrátt fyrir að hafa lítið heim-
sótt þig seinasta árið sem þú varst
inni á Eir kom ég ósjaldan til þín í
Fróðengið. Sama hvað þú varst að
gera þegar ég kom í heimsókn þá
varstu ekki lengi að setja á borð
allskyns kökur og kex fyrir mig.
Við gátum setið heillengi og
spjallað um daginn og veginn. Svo
tókum við auðvitað dekurdagana
okkar þar sem ég kom og litaði og
plokkaði þig og gerði þig fína þar
sem það gekk auðvitað ekki að
vera andlitslaus. Meira að segja
þegar þú varst veik uppi á spítala
baðstu mig um að koma og laga
augabrúnirnar þar sem það voru
jú auðvitað myndarlegir læknar
þarna og það væri alveg ómögu-
legt að vera ekki með andlit þegar
þeir kíktu til þín.
Ég gæti haldið endalaust áfram
að skrifa minningar um þig, elsku
amma mín, en ég ætla að stoppa
hér. Við rifjum upp restina saman
þegar við hittumst aftur.
Góða ferð, fallegi engill.
Ég elska þig af öllu hjarta.
Sjáumst síðar.
Þitt langömmubarn,
Guðný Rós.
Jónína Halldóra
Einarsdóttir
Með kærleik og virðingu
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Ellert Ingason
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
Elsku pabbi okkar, tengdapabbi, afi og
langafi,
BJÖRN J. GUÐMUNDSSON,
er látinn. Útförin verður auglýst síðar.
.
Margrét Björnsdóttir, Einar Hákonarson,
Sigrún Björnsdóttir,
Guðrún Björnsdóttir, Sigurður Ágúst Sigurðsson,
Jón Axel Björnsson, Karen Sigurkarlsdóttir,
Björn Jóhann Björnsson, Vilhelmína Einarsdóttir,
Unnur Ýr Björnsdóttir, Magnús Bogason,
afa- og langafabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐNÝ PÁLSDÓTTIR,
Blönduósi,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands,
Blönduósi, 3. desember síðastliðinn.
Jarðarförin mun fara fram í kyrrþey.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Orgelsjóð Blönduóskirkju eða
Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Páll Kristinsson, Ása Bernharðsdóttir,
Hjálmfríður Kristinsdóttir, Ólafur G. Sæmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær fósturmóðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR KRISTÍN SUMARLIÐADÓTTIR,
Hraunbæ 140, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 7. desember.
.
Sigurgeir Ernst, Birna Baldursdóttir,
Viktoría Sigurgeirsdóttir, Jón Ingiberg
Jónsteinsson,
Unnur Kristín Sigurgeirsdóttir,
Róbert Elí Jónsson, óskírð Jónsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi
og langafi,
OLIVER KRISTÓFERSSON
frá Háteigi, Akranesi,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
25. nóvember. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju 15. desember klukkan 14.
.
Steindór Oliversson, Inga Björg Sigurðardóttir,
Helga Oliversdóttir, Pálmi Pálmason,
Kristófer Oliversson, Svanfríður Jónsdóttir,
Guðlaug Kristófersdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.