Morgunblaðið - 11.12.2015, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2015
Aldrei fyrr hafa jafnmargir verið
handteknir í Bretlandi og nú að
undanförnu vegna gruns um að
eiga aðild að hryðjuverkastarfsemi.
Greinir innanríkisráðuneyti lands-
ins frá því að fyrstu níu mánuði árs-
ins hafi alls 315 handtökur verið
gerðar, en það er um þriðjungs
aukning frá því sem vanalegt er.
Fréttaveita AFP greinir m.a. frá
því að í skýrslu ráðuneytisins, þar
sem tölur um handtökur eru
sundurliðaðar, má t.a.m. sjá að tvö-
falt fleiri konur hafi verið hand-
teknar að undanförnu vegna þessa.
Þá er einnig handtaka einstaklinga
undir 18 ára aldri algengari nú en
áður og eru þeir einstaklingar alls
15 talsins það sem af er ári.
Öryggismálaráðherra landsins
segir ríkisstjórnina staðráðna í að
greina og stöðva alla starfsemi
hryðjuverkamanna í Bretlandi.
AFP
Virðing Breska fánanum flaggað í
hálfa stöng eftir árásina í París.
Handtökur
í Bretlandi
aldrei fleiri
Alls 315 til þessa
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Fyrstu sveitir þýskra hermanna og orrustu-
flugvéla lögðu af stað til Tyrklands í gær þaðan
sem þær munu taka þátt í aðgerðum gegn víga-
mönnum Ríkis íslams í Sýrlandi.
Er um að ræða 40 manna herlið og tvær njósna-
og eftirlitsflugvélar af gerðinni Tornado, en
hópurinn lagði af stað frá Jagel-herflugvellinum í
norðurhluta Slésvíkur-Holtsetalands. Á sama
tíma hóf eldsneytisvél af gerðinni Airbus A310
MRTT sig til flugs frá Wahn-herstöðinni í Köln og
var henni flogið til Incirlik-herflugvallarins í
Tyrklandi, en hann er nærri sýrlensku landamær-
unum.
Framtíð Evrópu ræðst af vináttu ríkja
Þýska þingið samþykkti síðastliðinn föstudag
að sendir yrðu allt að 1.200 hermenn og orrustu-
flugvélar til að taka þátt í alþjóðlegum hernaðar-
aðgerðum gegn Ríki íslams í Sýrlandi. Er þetta
einkum gert til þess að sýna samstöðu með
frönsku þjóðinni eftir hryðjuverkin í París 13.
nóvember síðastliðinn.
Torsten Albig, forsætisráðherra Slésvíkur-
Holtsetalands, var viðstaddur er þýsku hermenn-
irnir lögðu af stað áleiðis til Tyrklands. Hélt ráð-
herrann stutta tölu af því tilefni og sagði hann
meðal annars „framtíð Evrópu ráðast af vináttu“
Frakklands og Þýskalands.
Fréttaveita AFP greinir frá því að áðurnefndar
Tornado-vélar séu búnar afar fullkomnum eftir-
litsbúnaði sem geri þeim kleift að taka njósna- og
innrauðar myndir við erfiðustu veðurskilyrði.
Myndirnar eru svo sendar til greiningar í raun-
tíma á jörðu niðri og geta þær því nýst afar vel í
baráttunni gegn vígasveitum Ríkis íslams.
Þá hafa þýsk stjórnvöld einnig tilkynnt að til
stendur að senda freigátu til Miðjarðarhafsins og
verður hlutverk herskipsins að gæta öryggis
franska flugvélamóðurskipsins Charles de Gaulle
sem nú tekur þátt í hernaðaraðgerðum þaðan. Til
þessa hafa Þjóðverjar ekki tekið ákvörðun um að
beita flugher sínum í beinum hernaði, þ.e. að nýta
vélar hans til loftárása, ólíkt Bandaríkjunum,
Bretlandi og Frakklandi.
Stjórnarherinn hörfar undan Ríki íslams
Frá Sýrlandi berast nú fregnir af sigrum víga-
manna, en þeim hefur nú tekist, eftir að hafa
hrakið sveitir stjórnarhersins á flótta, að vinna
aftur á sitt vald tvö mikilvæg landsvæði í miðhluta
Sýrlands. Fram að þessu höfðu svæðin einungis
verið í höndum stjórnarhersins í um tvær vikur.
„Sýrlenski herinn dró sig í hlé í svæðum Ma-
heen og Hawareen eftir árás Ríkis íslams,“ hefur
fréttaveita AFP eftir Rami Abdel Rahman, sem
fer fyrir mannréttindasamtökum þar í landi. Að
sögn hans geisa nú harðir bardagar á milli
stjórnarhersins og vígamanna í fjalllendi þar við.
Skammt frá þessum átökum má finna bæinn
Sadad þar sem flestir íbúar eru kristnir og hefur
margsinnis verið barist um yfirhöndina þar. Íbúar
bæjarins búa sig nú undir enn eitt áhlaupið af
hálfu vígamanna Ríkis íslams og eru hermenn
Sýrlandsstjórnar nú sagðir búa sig undir hugsan-
legt brotthvarf þaðan.
Fyrstu menn lagðir af stað
Þýska hernum nú
beint gegn vígamönnum
Ríkis íslams í Sýrlandi
AFP
Liðsauki Þýskir hermenn hlýða á yfirmann sinn skömmu áður en þeir lögðu af stað til Tyrklands.
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
ENJO fyrir jólahreingerninguna
Tímasparnaður
Engin kemísk efni
Ódýrara
Umhverfisvænt
6 x hreinna - betri þrif
Vinnuvistvænt
Minni vatnsnotkun
Reykjavíkurvegi 64, Hafnarfirði, sími 555 1515, enjo.is
•
•
•
•
•
•
•