Morgunblaðið - 11.12.2015, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 11.12.2015, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. DESEMBER 2015 ✝ Magni Kjart-ansson fæddist á Klúkum í Hrafnagilshreppi, Eyjafirði 22. maí 1930. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 30. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir, f. 8.2. 1887, d. 5.9. 1969, og Kjartan Ólafsson, f. 23.11. 1892, d. 2.3. 1974. Systkini Magna eru Jón, f. 15.3. 1913, d. 4.10. 1977, Ólafur, f. 13.12. 1920, d. 23.11. 1988, Kristinn, f. 24.3. 1922, Guðrún, f. 15.6. 1925, og Tryggvi, f. 4.2. 1927, d. 22.7. Helgi, f. 15.9. 1961, Alda Björg, f. 14.8. 1962, og Herdís, f. 13.12. 1968, faðir þeirra er Ármann Magnússon, Egils- stöðum. Magni fluttist með for- eldrum sínum fjögurra ára gamall að Miklagarði í Saur- bæjarhreppi, gekk í barna- skóla í sveitinni, ólst upp við venjuleg bústörf og hallaðist fljótt að hestamennsku. Fór snemma að vinna við tamn- ingar og síðar á vélum. Magni keypti Árgerði 1963 og hóf þar búskap 1964 með blandað bú, þar sem hann stundaði ár- angursríka hrossarækt. Hann var einn af stofnendum hesta- mannafélagsins Funa í Eyja- firði og var þar virkur alla tíð. Útför Magna fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 11. desember 2015, klukkan 13.30. 2005. Magni giftist 28. desember 1982 Þórdísi Sigurðar- dóttur frá Borgar- felli í Skagafirði, f. 21.9. 1941. For- eldrar hennar voru Sigurður Ei- ríksson, f. 12.8. 1899, d. 25.1. 1974, og Helga Sveinbjörnsdóttir, f. 27.9. 1918, d. 4.7. 2005. Systkini Þórdísar eru Guð- mundur Eysteinn Sigurðsson, f. 19.12. 1937, d. 3.2. 2005, og Inga Björk Sigurðardóttir, f. 21.7. 1944. Börn Þórdísar af fyrra hjónabandi eru Sigurður Í dag kveðjum við hestamenn Magna í Árgerði. Enginn hefur lagt annað eins til hesta- mennsku og hrossaræktar í Eyjafjarðarsveit eins og hann. Reiðmennska og hrossarækt var ástríða bóndans í Árgerði en á báðum sviðum hafði hann náð- argáfu. Magni tamdi framan af flest sín hross og sýndi mörg þeirra í keppni og kynbótadómi með miklum glæsibrag. Áseta Magna og reiðmennska var fág- uð og er enn í dag öðrum til fyr- irmyndar. Margar eftirminni- legar sýningar hafa greypt sig í huga þeirra sem sáu. Skemmst er að minnast sýninga þar sem Magni geystist um á Snældu yngri, það var ekkert slor að sjá hartnær áttræðan manninn taka Snældu svo glæsilega til kost- anna. Magni var kröfuharður hrossaræktandi enda búa hross- in í Árgerði og Litla-Garði yfir einstökum eiginleikum. Magni og Dísa voru í góðu samstarfi við Herdísi og Bigga í Litla- Garði og á hverju ári koma fram gæðingar frá búunum sem bera Magna og Dísu fagurt vitni. Fátt gladdi Magna meira en vel þjálfaður gæðingur og því hefur árangur Bigga og Gangsters frá Árgerði í keppni við fremstu gæðinga landsins eflaust fyllt hann stolti á ævikvöldinu. Magni var einn af stofnfélög- um Hestamannafélagsins Funa í Eyjafirði árið 1960 og var hann gerður að heiðursfélaga árið 1997. Allt frá stofnun Funa setti hann svip sinn á mót og sam- komur félagsins. Framan af var hann ötull á keppnisvellinum en síðustu árin mætti hann ævin- lega í áhorfendabrekkuna ásamt Dísu til að fylgjast með mótum félagsins. Ekki hefur skemmt fyrir að oftast áttu þau fulltrúa í brautinni, bæði hesta og menn. Afkomendur Magna og Dísu munu njóta ævistarfs Magna og halda merki hans á lofti í heimi hestamennskunnar. Þau Dísa, Herdís, Biggi, Hafþór, Nanna Lind, Sindri og Ásdís Helga hafa öll gefið Magna mikið með því að vera honum samferða um þann ævintýraheim. Minningin um merkan hestamann mun lifa um ókomna tíð og félagsmenn í Funa eins og aðrir unnendur ís- lenska hestsins eiga Magna mikið að þakka. Við sendum Dísu og fjölskyld- unni allri samúðarkveðju fyrir hönd félagsins. Fyrir hönd Funa, Anna Kristín Árnadóttir og Valur Ásmundsson. Vinur minn, Magni Kjartans- son, bóndi og hrossaræktandi í Árgerði í Eyjafirði, er látinn. Ég var svo lánsamur að kynnast Magna, þeim einstaka manni, árið 1978 þegar ég var að leita mér að góðum reiðhesti. Var mér bent á að glæsilegur fimm vetra foli væri falur hjá Magna. Ég prófaði hestinn og kaupin voru handsöluð. Vinátta okkar Magna hefur varað síðan og aldrei borið skugga á. Sem hrossaræktandi er Magni þjóðkunnur og hlaut hann flestar þær viðurkenning- ar sem veittar eru í hrossarækt á Íslandi. Sem tamningamaður og þjálfari var hann í sérflokki. Hann hafði einstakt næmi á hross og öll þjálfun var gerð á forsendum hestsins löngu áður en það var almennt viðurkennt. Umgengni við hrossin ein- kenndist af væntumþykju og þolinmæði. Það þekkja flestir hestamenn söguna um Magna og stóðhestinn Snældu-Blesa. Hvernig honum tókst með ein- stakri þrautseigju og góðra manna hjálp að græða fótbrot hans og koma honum á fætur þannig að hann gæti gagnast í ræktunarstarfinu en undan hon- um hafa komið margir góðir gripir. Magni tileinkaði sér snemma klassíska reiðmennsku og fal- lega ásetu. Eftir var tekið hve hross fóru vel hjá honum. Hann sat teinréttur í hnakknum og grófar bendingar og taumaskak voru honum víðsfjarri þótt tekið væri til kostanna. Magni vand- aði sig í öllu sem hann gerði og fæst var tilviljunum háð. Mér er það minnisstætt þeg- ar ég sýndi honum ýmsan ný- tísku hjálparbúnað sem menn voru að taka í notkun hér syðra eins og innbindingagræjur og margt fleira. Þá kom maður ekki að tómum kofunum hjá Magna því oftast hafði hann prófað eitthvað þessu líkt mörg- um árum áður og vissi hvernig búnaðurinn virkaði. Magna hefur hlotnast marg- víslegur heiður á lífsleiðinni með hrossin sín. Það eru nokkrir há- punktar á ferlinum sem vert er að nefna. Eins og þegar Magni komst á verðlaunapall með Draum sinn á fjórðungsmótinu í Húnaveri árið 1964. Hann fór með Snældu á Þingvöll sumarið 1978, þar vann hún sex vetra og eldri flokkinn, sá sigur lagði grunninn að hrossarækt Magna, en segja má að flest hrossin í Árgerði eigi rætur að rekja til Snældu 4154 og Penna 702. Það var líka stór stund hjá Magna að sýna Penna til fyrstu verðlauna á Landsmótinu á Vindheima- melum 1982. Árið 1987 var haldið fjórð- ungsmót á Melgerðismelum – í hans heimasveit, sem var mjög ánægjulegt fyrir Magna. Þar sýndi hann Snældu til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi og varð hún efst í þeim flokki. Blika dóttir Snældu hlaut efsta sæti í sex vetra flokki, Brynja systir hennar var í öðru sæti í fimm vetra flokknum og loks Hreyf- ing í þriðja sæti í fjögurra vetra flokki. Síðan þá hefur komið fram fjöldi úrvalsgripa frá búinu, bæði merar og stóðhestar sem væri of langt að tíunda. Magni hafði góðan húmor og sá alltaf spaugilegu hliðarnar á lífinu. Hann var hlýr, heilsteypt- ur og tryggur vinur. Með honum og fjölskyldu hans áttum við Hildur margar góðar stundir. Í einkalífi var hann lánsamur. Eiginkona hans, Þórdís Sigurð- ardóttir, stóð eins og klettur við hlið hans í einu og öllu. Ég votta Dísu, Herdísi, Bigga, Boggu, Helga og fjöl- skyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Egill Ágústsson og fjölskylda. Magni Kjartansson ✝ ÞorgerðurÞorgeirsdóttir fæddist á Hlemmi- skeiði á Skeiðum 19. janúar 1926. Hún lést á Land- spítalanum Foss- vogi 27. nóvember 2015. Foreldrar henn- ar voru Þorgeir Þorsteinsson, bóndi á Hlemmi- skeiði, f. 16.3. 1885 á Reykjum á Skeiðum, d. 20.8. 1943, og k.h. Vilborg Jónsdóttir, kennari og húsfreyja á Hlemmiskeiði, f. 9.5. 1887 í Efra-Langholti, Hruna- mannahreppi, d. 2.4. 1970. Systkini Þorgerðar voru: Unnur, f. 15.5. 1915, d. 8.3. 2008, Þórir, f. 14.7. 1917, d. 25.6. 1997, Hörður, f. 15.7. 1917, d. 28.5. 2006, Inga, f. 2.2. 1920, d. 30.4. 2010, Jón, f. 29.5. 1922, d. 22.11. 2014, Rósa, f. 6.2. 1924, d. 21.1. 1952, og Vilborg, f. 21.7. 1929. Þorgerður giftist í Róm á Ítal- íu 8. maí 1955 Gísla Magnússyni píanóleikara, f. 5.2. 1929 á Eski- firði, d. 28.5. 2001. Foreldrar hans voru Magnús Gíslason skrifstofustjóri, f. 1.11. 1884 í Eydölum í Breiðdal, d. 21.9. 1970, og k.h. Sigríður Jónsdóttir og dvöldu þar í eitt ár í náms- leyfi. Þorgerður gekk í Héraðsskól- ann á Laugarvatni 1943-45 og Húsmæðraskólann á Laugar- vatni 1945-46. Eftir það fór hún í Húsmæðrakennaraskólann og lauk þaðan prófi árið 1948. Sum- arið 1947 starfaði hún á hóteli sem rekið var í Húsmæðraskól- anum á Laugarvatni og sá þar um matseld ásamt skólasystur sinni en þetta var liður í náminu í Húsmæðrakennaraskólanum. Í tvö sumur eftir brautskráningu var hún ráðskona í hótelinu í Fornahvammi í Norðurárdal og bar ábyrgð á allri matseld þar. Þorgerður hóf störf sem hús- mæðrakennari við Laugarnes- skóla 1948 og kenndi þar til árs- ins 1969 og eftir það í Lauga- lækjarskóla þar til hún fór á eftirlaun. Inga systir hennar kenndi einnig við sömu skóla og störfuðu þær því á sama vinnu- stað nánast alla sína starfsævi. Þorgerður skrifaði kennslubæk- ur í heimilisfræði: Unga stúlkan og eldhússtörfin 1967 og Fæðan og gildi hennar 1968 ásamt sam- starfskonu sinni Vilborgu Björnsdóttur. Þær voru notaðar í heimilisfræðikennslu áratug- um saman og eru jafnvel enn. Fyrri bókin fékk síðar heitið Unga fólkið og eldhússtörfin og er enn í dag þarfaþing á mörg- um heimilum. Útför Þorgerðar verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, 11. desember 2015, klukkan 15. húsmóðir, f. 27.9. 1897 í Nesi í Norð- firði, d. 23.5. 1965. Börn þeirra eru: 1) Magnús, deild- arstjóri hjá Reikni- stofnun HÍ, f. 27.4. 1956, kvæntur Guð- rúnu Halldórsdóttur leikskólakennara, f. 16.3. 1957, börn þeirra Gísli, f. 16.4. 1988, og Vilborg f. 29.5. 1993. 2) Rósa myndlistarmaður, f. 4.7. 1957, m. Þórhallur Eyþórs- son, prófessor í HÍ, f. 4.6. 1959, börn þeirra Þorgerður, f. 12.3. 1989, Helga Gunndís, f. 23.6. 1991, og Guðrún Sigríður, f. 19.4. 1996. Þorgerður, sem var alltaf kölluð Stella af sínum nánustu, ólst upp á Hlemmiskeiði. Eftir að faðir hennar lést flutti hún ásamt móður sinni og yngri systkinunum á Langholtsveg 27 í Reykjavík. Þar átti Þorgerður heima þar til hún giftist Gísla ár- ið 1955. Þá hófu þau búskap að Bergstaðastræti 65 og bjuggu þar alla tíð. Þorgerður bjó ein eftir að Gísli lést. Árið 1961 fluttu Þorgerður og Gísli til Lundúna ásamt börnum sínum Tengdamóðir mín, Þorgerður Þorgeirsdóttir, var glæsileg kona, grönn og ljós yfirlitum, hógvær, hlédræg og með fágaða fram- komu. Hún var mikil fjölskyldu- manneskja og stóð eins og klettur að baki öllu sínu fólki og lét sér mjög umhugað um velferð þess. Það var einstök gæfa að tengjast þessari góðu konu sem tók mér strax opnum örmum. Mér fannst raunar frá upphafi að ég hefði allt- af verið hluti af fjölskyldunni. Þegar ég kynnti Rósu, konuna mína, fyrst fyrir ömmu minni sagði hún: „Mér líst vel á þessa stúlku; ég held að hún sé skyld okkur.“ Það kom upp úr dúrnum að þær amma Guðrún og tengda- móðir mín voru báðar af Reykja- ætt á Skeiðum og skyldar í fjórða lið. Þessi saga telst ekki til tíðinda á Íslandi en útlendingar verða dol- fallnir þegar þeir heyra hana því að hún staðfestir hugmyndir þeirra um íslenska örsamfélagið þar sem allir eru skyldir öllum. Þorgerður var alltaf kölluð Stella af þeim sem þekktu hana. Maðurinn hennar, Gísli Magnús- son, var einn helsti píanóleikari þjóðarinnar og mikill öðlingur. Hann dó um aldur fram árið 2001, sjötíu og tveggja ára að aldri. Þau Gísli og Stella kynntust í flugvél á tónleikaferðalagi til Norðurlanda þar sem hún söng í kór en hann spilaði undir. Tónlist og ferðalög voru alla tíð sameinandi afl. Stella lagði land undir fót til Ítalíu til að hitta Gísla sem var í framhaldsnámi í píanóleik í Róm og þau gengu í hjónaband á skrif- stofu borgarfógeta á Kapítólhæð vorið 1955. Mikið var hlegið að til- raunum Ítalanna til að skrifa nafn- ið á fæðingarstað hennar, Hlemmiskeiði, á giftingarvottorð- ið. Gísli og Stella voru einstaklega samhent og samtaka hjón. Á smekklegu heimilinu að Berg- staðastræti 65 var menningar- bragur og þar áttum við fjölskyld- an ófáar gleðistundir. Stella eldaði afbragðsgóðan mat enda höfund- ur annálaðra kennslubóka í mat- reiðslu. Bókin Unga fólkið og eldhús- störfin varð mér opinberun þegar ég fékk eintak að gjöf rúmlega tví- tugur að aldri. Stella hafði líka un- un af blómarækt og hafði svo græna fingur að hún fékk öll blóm til að dafna inni sem úti. Ógleymanlegar eru heimsóknir tengdaforeldra minna til landa þar sem við Rósa áttum heima: Þýskalands, Bandaríkjanna og Englands. Sérstaklega minnis- stæð er þó dvöl okkar fjögurra í Róm þar sem Gísli og Stella höfðu forðum átt rómantískar stundir. Það var okkur Rósu sérstök ánægja þegar Stella slóst í för með okkur aftur til Rómar fyrir nokkrum árum. Þótt hún væri þá komin á níræðisaldur lét hún eng- an bilbug á sér finna og þrammaði með okkur um helstu sögustaðina í borginni eilífu, frá Kapítólhæð, þar sem þau Gísli giftu sig, til Pét- urskirkjunnar – og allt þar á milli. Stella hélt góðri heilsu fram undir það síðasta og hugsaði um heimili sitt með þeim glæsibrag sem hún var vön. Fyrir fáeinum vikum veiktist hún alvarlega og var lögð inn á Landspítalann. Þar fékk hún hægt andlát eftir stutta sjúkralegu, umvafin ljúfum kon- um í fjölskyldunni sem vöktu yfir henni til hinstu stundar. Þórhallur Eyþórsson. Í dag þegar þetta er skrifað er fyrsti í aðventu og það fyllir mig djúpri sorg að vera ekki hjá ömmu Stellu í aðventukaffi, drekka kakó og fá epli í raspi með rjóma, skinkuhorn og hvítu smákökurn- ar. Það rennur upp fyrir mér að ég á aldrei eftir að drekka kaffi í skotinu í eldhúsinu með ömmu og það er óttalega, óttalega sorglegt. Amma var mikið jólabarn og elskaði jólalög og jólaskraut. Afi og amma áttu afar skemmtilegt jólaskraut og settu það alltaf á sömu staðina. Pínulitla jólakalla sem héngu úr ljósakrónunni inni í eldhúsi og fallegar útskornar myndir af jólabarninu og Betle- hemstjörnunni sem ég held að afi hafi föndrað. Þau héldu mikið upp á leirkalla sem við systurnar bjuggum til og áttu að vera Jes- úbarnið og fjölskylda. Þau voru alltaf svo ánægð með allt sem maður föndraði eða teikn- aði og höfðu allt til sýnis. Það fyllti okkur ómældri ánægju að sjá að hlutirnir sem við bjuggum til fengu fallegan sess á heimilinu. Sumar af mínum dýrmætustu minningum eru frá ömmu og afa og hvernig þau gerðu hversdags- leikann ævintýralegan og háfleyg- an. Það er til eftirbreytni. Amma bjó til heilan heim í kringum litla króka á heimilinu eins og „skyrskotið“ sem var lítið horn inni í búri og þar fékk maður alltaf hrært skyr við pínulítið borð. Þau höfðu svo mikið fyrir okkur barnabörnunum og vildu að við hefðum allt til alls og fengjum að upplifa fegurð heimsins. Þau fóru oft og mörgum sinn- um með okkur í bústaðinn sinn Skýjaborg. Þar var allt óendan- lega spennandi fyrir litlar sálir. Hið venjulega varð undravert í þeirra heimi. Við byggðum stein- hús niðri við Grjótá, lékum með búdót, tíndum bláber á haustin og lásum Grimmsævintýri á kvöldin. Amma og afi voru ótrúlega samhent hjón og ég man eftir svo mikilli ást á milli þeirra og gagn- kvæmri virðingu. Þau voru svo góð hvort við annað. Það er stór- kostlegt að skoða gamlar myndir af þeim, sérstaklega um það leyti sem þau giftu sig í Róm; þau voru eins og Hollywood-stjörnur. Allt var rómantískt í kringum þau. Amma elskaði fátt jafn mikið og að vera úti í garði að sinna blóm- unum, sópa stéttina eða taka til og raða, endurraða hlutum í geymsl- unni eða þrífa og gera fínt. Hún vildi hafa gríðarmikið magn af blómum hjá sér og var með marg- rómaða græna fingur. Bleiku pel- argóníurnar í gluggunum á Bestó hafa verið umtalaðar sem prýði götunnar. Ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa haft ömmu Stellu í mínu lífi, hún hefur séð um mig alla tíð og alltaf veitt mér griðastað. Hún var kærleiksrík og sterk kona, skyn- söm, listræn og fáguð og eldaði besta hafragraut í heimi. Ég er einnig þakklát fyrir stundirnar okkar á spítalanum þótt þær hafi verið erfiðar. Ég er þakklát fyrir að hún skuli hafa far- ið á friðsamlegan hátt umkringd elskandi barnabörnum sem eiga alltaf eftir að sakna hennar og minnast með hlýju í hjarta. Ég sé fyrir mér langþráða endurfundi hennar og afa Gísla, skýjum ofar í sinni eigin Skýjaborg, umvafin pí- anótónum, bleikum pelargóníum og með gnægð af kaffi og mola- sykri. Elsku amma Stella, ég mun sakna þín á hverjum degi. Þorgerður Þórhallsdóttir. Það er ótrúlega erfitt að þurfa að kveðja ömmu Stellu svona snöggt en ég er svo þakklát fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman. Heimili hennar á Berg- staðastræti 65, Besta strætinu eða Bestó eins og hún kallaði það, var staður sem maður gat alltaf leitað til hvort sem það var til að fá kaffi- bolla og láta stjana við sig, fá góð ráð eða bara til að slappa af. Það Þorgerður Þorgeirsdóttir Fallin er frá á besta aldri Gísli Jensson, sam- starfsmaður okkar til rúmlega tveggja áratuga. Gísli Jensson kom til starfa Gísli Jóhann Viborg Jensson ✝ Gísli JóhannViborg Jensson fæddist 23. nóv- ember 1949. Hann lést 22. nóvember 2015. Útför Gísla fór fram 4. desember 2015. hjá Íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkur árið 1994. Hann hóf fyrst störf sem vaktstjóri í Árbæj- arlaug, sem þá var nýtt mannvirki hjá ÍTR. Gísli tók svo síðar við sem for- stöðumaður í Sundhöll Reykja- víkur. Gísli fór þaðan til starfa sem forstöðu- maður í Breiðholtslaug um tíma en kom svo aftur til starfa í Sundhöllinni þar sem hann lauk sínum starfsferli á þessu ári. Þegar Gísli kom til starfa fyrir ÍTR hafði hann um árabil verið stýrimaður til sjós og vissulega hafa það verið við- brigði að koma í land eftir all- an þann tíma og hefja störf við sundlaug. En Gísli aðlagaðist því fljótt og í störfum sínum sem stjórnandi var hann ákaf- lega traustur og sinnti sínu starfi af mikilli samviskusemi. Fyrir hönd samstarfsmanna og vina þökkum við frábær kynni. Minning um góðan dreng og samstarfsfélaga mun lifa meðal okkar. Fjölskyldu Gísla færum við innilegar samúðarkveðjur. Steinþór Einarsson, Ómar Einarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.