Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.1991, Síða 1

Víkurfréttir - 08.05.1991, Síða 1
Vogar hf. kaupa Sjöstjörnuhúsiö Gengið hefur verið frá kaupum Voga hf. í Vogum á frystihúsi þrotabús Sjö- stjömunnar h.f. í Njarðvík. Keypti fyrirtækið frystihúsa- hlutann og skrifstofubygg- inguna af Höfninni Keflavík- Njarðvík á 60 milljónir króna. Tók fyrirtækið við húsinu þann 1. maí sl. Vogar hf. hef- ur sem kunnugt er rekið fisk- verkun í Vogum, auk þess sem Fiskverkun Garðars Magnússonar h.f. í Njarðvík sameinaðist fyrirtækinu urn áramót. Eru aðaleigendur Voga h.f. feðgaiTiir Garðar Magnússon og Sigurður Garðarsson og fjölskyldur þeina. Að sögn Péturs Jóhanns- sonar hat'narstjóra Hafn- arinnar Keflavík-Njarðvík, er Sjöstjörnueignin þar með öll komin í hendur nýn'a eigenda, en skemmumar fyrir neðan frystihúsið mun Höfnin leigja til Fiskmarkaðar Suðurnesja, auk þess sem þar verður að- staða fyrir hafnarverði í Njarðvík. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum: Suðunesjamenn að jöfnu við aðra landshluta Á fundi stjómar Sambands sveitarfélaga á Suðumesjum fyrir alþingiskosningar var til umræðu fulltrúaráðsfundur Santbands íslenskra sveit- arfélaga. I framhaldi af umræðum unt fundinn var rætt um hlut Suðumesjamanna í nefndum og ráðunr á vegum Sambands ísl. sveitarfélaga, Alþingi og ráðuneytum. Samþykkti stjóm SSS að senda öllum þingflokkum bréf að af- loknum Alþingiskosning- unum 20. apríl sl. I bréfinu kom fram ósk um að Suðumesjamenn verði til- nefndir í hinar ýmsu nefndir og ráð til jafns við aðra landshluta. Einnig var sam- þykkt að senda stjórn Sam- bands ísl. sveitarfélaga sam- hljóða bréf. Frá krvningu Fegurðardrottningar íslands á Hótel íslandi. Lengst til vinstri er Sigrún Eva Kristinsdóttir og Telma Birgisdóttir beint fyrir aftan hana. Það er síðan Sigríður Asta Ein- arsdóttir sem krýnir Svövu Haraldsdóttur, Fegurðardrottningu Islands 1991. Ljósm. Morgunblaðið KGA. STÆRSTA FRETTA- OG AUGLYSINGABLAÐIÐ A SUÐURNESJUM LANDSB'OKASAFK safnahdsinu hverfisgötu 101 REYKJAV 19. tölublað 12. árgangur Miðvikudagur 8. maí 1991 AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA • ® 14717,15717 • FAX^ 12777 Leikskólagjöld í Njarðvík: IBUUM MISMUNAD EFTIR BÚSETU - Bæjaryfirvöld endurgreiða gjöldin á Holti, en ekki á Gimli □ æjarráð Njarðvíkur hefur tekið af skar- ið og hafnað því að sami afsláttur sé veittur fyrir böm á leik- skólanum Gim li og er á leikskólanum Holti. Höfðu foreldrar bama á Gimli óskað eftir því að bæjarfélagið greiddu mismuninn, en bæj- aryfirvöld óskuðu eftir því að mismunurinn yrði greiddur af þeim einkaaðila sem rekstur leikskólann. Þegar rekstraraðilinn treysti sér ekki til að verða við erindinu ákvað bæjarráðið að hafna því. I framhaldi af höfnun ráðsins birtust bókanir bæði frá meiri- hlutanum og minnihluta bæj- arstjómar Njarðvíkur á fundi í bæjarráði. Þessum bókunum og fleira um málið er gert nánari skil á blaðsíðu 17 í blaðinu í dag. Stóð til að taka málið til endanlegrar afgreiðslu á fundi bæjarstjómar Njarð- víkur síðdegis í gær. En þar sem blaðið var farið í prentun áður en sá fundur hófst, bíða nánari fréttir af málinu þar til síðar. IÞROTTAHUSINNAN ÞRIGGJA ARA Gerðahreppur mun í byrjun næsta árs opna útboð í bygg- ingu íþróttahúss og sund- laugar í byggðarlaginu. Er nú verið að vinna að gerð teikn- inga. Samkvæmt áætlun Gerðahrepps skal verkinu vera lokið á innan við þremur árum frá því að verktaki hefur framkvæmdir, sem verður í mars á næsta ári. Mjög aðkallandi er að byggingu þessara mannvirkja verði lokið á sem skemmstum tíma, þar sem sú þjónusta sem þama fer fram stendur byggð- arlaginu fyrir þrifum hvað varðar fjölgun íbúa. Þessu stórverkefni Gerðahrepps er gert betri skil inni í blaðinu í dag og þar eru jafnframt teikningar að mannvirkinu. Feguröarsamkeppni Islands: FRABÆR ARANGUR! - sjá viötöl við Sigrúnu Evu, Telmu og Ágústu Jónsdóttur í miðopnu

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.