Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.1991, Page 4

Víkurfréttir - 08.05.1991, Page 4
4 Gerðahreppur ræðst í stórframkvæmdir í byrjun næsta árs: Víkurfróttir 8. maí 1991 Byggingu íþróttahúss og sund- laugar lokiö á þremur ánim I byrjun næsta árs verður boðin út á vegum Gerðahrepps bygging nýs íþróttahúss og sundlaugar í byggðarlaginu. Aætlaður kostnaður við byggingu mannvirkisins er um 100 milljónir króna. Mun sveit- arsjóður verja allt að 25-30 millj- ónum til verksins næstu þrjú árin, en á þeim tíma er áætlað að bygg- ingu mannvirkjanna ljúki. Það er Suðumesjamaðurinn Valdimar Harðarson, hjá Arki- tektum sf., sem vinnur að hönnun hússins. Uppsteypu sundlaugar- byggingarinnar er lokið og á aðeins eftir að setja niður sundlaugina, sem að öllum líkindum verður sömu tegundar og laugin sem fyr- irhugað er að byggja í Grindavík. Samkvæmt frumteikningum sem nú liggja fyrir, er gert ráð fyrir að íþróttasalurinn verði 44x25,3 metr- ar að stærð og rúmi þannig löglega keppnisvelli í öllum íþróttum sem almennt eru stundaðar á fslandi. Iþróttasalurinn er teiknaður sam- kvæmt kröfum Alþjóða handknatt- leikssambandsins, þannig að keppnisvellir annarra íþrótta rúmast allir innan þeirra marka, bæði í hæð, breidd og lengd. Salurinn á að rúma að jafnaði um 450 áhorf- endur. Ef um stórviðburð í körfu- knattleik verður að ræða, verður með góðu móti hægt að koma 800- 1000 áhorfendum í salinn. Gert er ráð fyrir að sundlaugin verði tæpir 17 metrar að lengd, með steyptum botni, en hliðar og bakkar verði úr stáli með ásoðnum PVC dúk. Einnig verða a.m.k. tveir heitir pottar og vaðlaug. I húsinu verður einnig veitingasalur sem rúmar 60 manns í sæti svo eitthvað sé nefnt. 1 kjallara undir afgreiðslu og bún- ingsklefum verður síðan gert ráð fyrir erobikk- og þreksal, svo eitt- hvað sé nefnt. Sigurður Ingvarsson er formaður byggingarnefndar og sagði hann í samtali við blaðamann að bygging iþróttahúss og sundlaugar væri orð- in nauðsynleg fyrir byggðarlag eins og Garðinn og stæði í raun byggð- arlaginu fyrir þrifum hvað varðar fjölgun á íbúum. Þessa þjónustu þarf alla að sækja út fyrir svæðið, þar sem t.a.m. fþróttahús skólans er fyrir löngu orðið allt of lítið og áhugi á íþróttum, svo sem körfu- knattleik og sundiðkun er vaxandi meðal íbúa hreppsins. Kennsla í íþróttum á vegum Gerðaskóla hefur í vaxandi mæli verið flutt til Sand- gerðis. Bygginganefnd iþróttamann- virkja í Garði skipa auk Sigurðar, þeir Einvarður Albertsson, Ólafur Kjartansson, Sigurður Gústafsson og Kristjón Guðmannsson. Fasteignasalan Hafnargötu 27 - Keflavík - Símar 11420-14288 Ásabraut 11, Keflavík 2ja herb. neðri hæð með sér- inngangi. Laus strax. Góðir greiðsluskilmálar. 2.300.000.- Víkurbraut 50, Grindavík Neðsta hæð með sérinngangi. Tilboð Smáratún 34, Keflavík Efri hæð ásamt bílskúr. Nýleg eldhúsinnrétting. Sérinngangur. Mjög lítil útborgun. Möguleiki á að yfirtaka hagstæð lán. 6.800.000,- Melteigur 12, Keflavík 130 ferm. einbýlishús ásamt bíl- skúr og 37 ferm. baðstofulofti. Húsið er í mjög góðu ástandi. Eftirsóttur staður. Tilboð Brekkugata 14, Vogum 124 ferm. e.h. ásamt 48 ferm. bílskúr. Hagstæðir greiðsluskil- málar. 6.500.000,- Hátún 1, Keflavík 2ja herb. risíbúð á góðum stað. Góðir greiðsluskilmálar. 2.200.000.- Keflavík-Njarðvík: Höfum úrval af 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúðum í við; komandi sveitarfélögum. I mörgum tilfellum er hægt að gera hagkvæm viðskipti. Nánari upplýsingar á skrif- stofunni. ATHUGIÐ! Aðeins örfáar íbúðir óseldar í Sambýlishúsinu Heiðarholti 36, Keflavík. Seljandi: Húsagerðin h.f. Ibúðirnar eru fullfrágengnar og mjög glæsilegar. Eru til sýnis og afgreiðslu strax. Allar nánari upplýsingar um söluverð og greiðslu- skilmála á skrifstofu Fasteignasölunnar. Gefnarborg: Afmælisfagnaður á laugardag Leikskólinn Gefnarborg í Garði er 20 ára um þessar mund- ir. Af því tilefni verður boðið til afmælisdagskrár í Samkomu- húsinu í Garði nk. laugardag kl. 14:00. Böm af leikskólanum munu vera með skemmtiatriði, listaverk eftir bömin verða sýnd og ým- islegt gert til skemmtunar. Ollum er heimill aðgangur. Boðið verð- ur upp á veitingar. Aðgangseyrir er kr. 300. Kleinusala á föstudag Slysavamadeild kvenna í Garði mun nk. föstudag efna til kleinusölu. Er þetta orðinn ár- legur viðburður hjá slysavam- ardeildarkonum að selja kleinur daginn fyrir lokadag. Á föstudaginn verður kleinu- salan við Sparisjóðinn í Garði og mun hefjast kl. 11 um morg- uninn. Það er betra að vera tím- anlega á ferðinni og tryggja sér kleinupoka áður en allt verður uppselt. Firma- Hin árlega firmakeppni hestamannafélagsins Mána verður haldin laugardaginn 11. maí kl. 14.00 á svæði félagsins í Grindavík. Þökkum þeim fyrirtækjum sem taka þátt, fyrir stuðninginn. Stjórn Mána

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.