Víkurfréttir - 08.05.1991, Side 5
5
Fréttir
Víkurfréttir
8. maí 1991
Mikill revkur barst frá eldinum að Hjallavegi 5.
Ljósm.: epj.
Fjölbýlishús viö Hjallaveg, Njarövík:
Verulegt tjón vegna íkveikju
Keflavík-Njarövík
íþrótta
dagur
haldinn í
Keflavík
á morgun
Eftirfarandi tillaga var ný-
lega borin upp af öllum bæj-
arfulltrúum bæjarstjórnar
Keflavíkur og samþykkt sam-
hljóða:
„Bœjarstjórn Kejlavíkur
lýsir ánœgju sinni nieð frá-
bœran árangur íþróttafólks í
Keflavík nú í vetur. Af því til-
efni samþykkir bæjarstjórn að
stofna til íþróttadags í sani-
vinnu við Iþróttabandalag
Keflavíkur, þar sein íþrótta-
fólki og forystumönnum verði
þökkuð vel unniii störf í þágu
íþrótta- og œskulýðsniála í
bœnum“.
Ekki var verið neitt að
tvínóna frekar við hiutina, og
ákveðið að halda íþróttadaginn
á morgun, fimmtudag, sem
jafnframt er uppstigningadagur.
Dagskráin er auglýst nánar hér
í blaðinu.
All nokkuð brunatjón varð
í sameign á neðstu hæð í
þriggja hæða fjölbýlishúsi að
Hjallavegi 5 í Njarðvík á
föstudagskvöldið. Er lög-
regla og slökkvilið komu á
vettvang var alelda gang-
urinn framan við geymslu-
herbergin og mikill reykur
lagði upp eftir framhlið liúss-
ins.
Tók slökkvistarfið
skamma stund, en reyklosun
nokkurn tfma. Reykur hafði
farið um alla sameignina og
eins eitthvað inn í íbúð á 2. hæð.
Þó nokkrar skemmdir urðu af
völdurn brunans m.a. sprakk
múrhúð af herberginu þar sem
eldurinn kom upp, auk þess sem
innbú sem var í geymslunni
skemmdist, svo og við-
leguútbúnaður fbúanna og ýmis
annar vamingur er þar var. Þá
urðu skemmdir af reyk, vatni
og sóti.
Varð eldsins vart með
þeim hætti að sjónvarpið og
síðan síminn duttu út. Er far-
ið var að grennslast unt or-
sökina kom í Ijós bruninn,
sem magnaðist á örskammri
stundu, þannig að íbúamir
fengu ekki við neitt ráðið.
Talið er nokkuð víst að um
íkveikju liafi verið að ræða.
Sameiginlegt
tjaldsvæði í
Njarðvík
Ferðamálanefndir Keflavíkur
og Njarðvíkur hafa komið sér
saman um tillögu að sam-
eiginlegu tjaldsvæði Njarðvíkur
og Keflavíkur. Um er að ræða
opið svæði vestan við Sam-
kaup.
Er erindið nú til afgreiðslu
hjá bæjaryfirvöldum beggja
bæjarféíaganna.
Stefnir í bíla-
vandræði
hjá SBK
Útlit er nú gott varðandi
sumarvertíð Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur, að sögn Steindórs
Sigurðssonar, framkvæmda-
stjóra. Sem dæmi þar um þá
voru allir bílar fyrirtækisins í
gangi síðasta föstudag og á
tímabili var bílastæði fyrir-
tækisins autt þann dag.
Sagði Steindór að útlitið væri
golt hvað sumarumferð varðar.
helst væri það skortur á bif-
reiðum sem gætu farið út fyrir
malbikaða vegi, sem yrði til
vandkvæða.
matinmeu.
SUNDBOLIR
Fegurstu stúlkur íslands
klæöast Matinbleu sund-
bolum...
-Þú færö þá hjá okkur.
SUMAR
SENDINGIN KOMIN!
mathibívuL,
Jogginggallar. Frábær snið og
margir litir. Aldrei meira
úrval. Einnig mikið
val af Matinbleu stutt
buxum og bolum.
SKÓR
frá LAGEAR, Nike
Adidas, Puma og
Patric í úrvali.