Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.1991, Side 14

Víkurfréttir - 08.05.1991, Side 14
14 Víkurfréttir 8. maí 1991 Skák Landsbankamót unglinga: Sveit Keflavíkur sigraði Nú fyrir skömmu stóð Skák- samband Suðurnesja í samstarfi við Landsbankann, fyrir ntiklu skákmóti fyrir unglingana á svæðinu. Þetta er annað árið í röð sem slíkt Suðumesjamót fer frant, Fyrst fór fram keppni í ötlum skólum á Suðurnesjum, bæði í eldri og yngri flokki. Eldri flokk- ur miðast við þau sem fædd eru 1975-78, en yngri flokkur við þau sem fædd eru 1979 og síðar. Þrír el'stu menn í hvorum flokki, í hverjum skóla, unnu sér þátt- tökurétt í úrslitamótinu. Það fór fram í Landsbankanunt í Grinda- vfk, og var keppt bæði í ein- staklingskeppni og sveitakeppni. Urslit urðu þau að í eldri flokki varð Arnbjörn Barbato úr Kella- vík, Suðurnesjameistari. Hann hlaut sex og hálfan vinning. í öðru sæti varð Olöf Vigdís Ragn- arsdóttir úr Sandgerði, hlaut fimm og hálfan vinning. I þriðja til fjórða sæti urðu svo Elvar Olafsson úr Keilavík og Jakob Kristjánsson úr Njarðvík, með fjóra og hálfan vinning. I yngri flokki var sigurvegari Atli Már Ólafsson úr Njarðvík, hlaut sex vinninga. Annar varð lngi Garðar Erlendsson úr Kefla- vík. með ftmm og hálfan vinning. Þriðji til fjórði voru svo Vignir Már Eiðsson úr Vogum og Magnús K. Sigurðsson úr Kefla- vík, með fimrn vinninga. Daginn eftir einstaklings- keppnina fór fram sveitakeppni. I henni sigraði sveit Keflavíkur nokkuð örugglega. hlaut 22 vinn- inga. Sveit Gerðahrepps varð í öðru sæti með 17 1/2 vinning, sveit Njarðvfkur þriðja nteð 16 vinninga, sveit Voga hlaut 12 1/2 vinning, sveit Sandgerðis 11 1/2 og sveit Grindavíkur 10 1/2. Sveit N jarðvíkur, hafnaði í þriðja sæti. Sveit Keflavíkur, sem sigraði í Unglinga sveitakeppni Suð- urnesja. Sveit Gerðahrepps, hafnaði í öðru sæti. Uppskeruhátíö U.M.F.N. ÖRVAR EFNILEGASTUR - hlaut Elfarsbikarinn aö launum Uppskeruhátíð yngri flokka U.M.F.N. fór fram um helgina í íþróttahúsi Njarðvíkur. Leikmenn yngri flokkanna ásamt foreldrum fjölmenntu í húsið. Lúðrasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur lék nokkur létt lög fyrir viðstadda, og frant fór leikur milli yngstu leikntanna liðsins. Greinilegt var á þeim hópi, að margir efnilegir körfuknattleiks- kappar eru í Njarðvíkunum. Að leikjunum loknum fengu allir kók og súkkulaði, en síðan voru afhent verðlaun fyrir mestu framfarir og besta leikmanninn í hverjum flokki. Eftirtaldir hlutu viðurkenningu fyrir mestar framfarir: Minnibolti stúlkna.........Ingibjörg Þórðardóttir Stúlknaflokkur.............Bjarklind Gísladóttir Minnibolti 10 ára drengja.........Páll Þórðarson Minnibolti 11 ára drengja...lngvi Steinn Jóhannss. 7. flokkur drengja.............Gísli Þórarinsson 8. flokkur drengja.............Hilmir Jónsson 9. flokkur drengja.............Arnar Leifsson Bestu leikmenn í hverjum flokki voru eftir- taldir: Minnibolti stúlkna..........Pálína Gunnarsdóttir Stúlknaflokkur..........Lovísa Guðmundsdóttir Minnibolti 10 ára drengja.... Davíð Páll Viðarsson Minnibolti 11 ára drengja...Davíð Ingi Jóhannss. 7. flokkur drengja.............Ásgeir Skúlason 8. flokkur drengja.........Örvar Kristjánsson 9. flokkur drengja.........Tómas Ríkhardsson Örvar Kristjánsson hlaut Elvarsbikarinn, sem veittur er efnilegasta leikmanni yngri flokkanna, í minningu Elfars Þórs Jónssonar. Örvar Kristjánsson tók við Elfarsbikarnum frá Júlíusi Valgeirssvni formanni unglingaráðs U.M.F.N. Þau svndu mestar framfarir í körfuboltanum hjá U.M.F.N. KEILA Ulfar sigraði á 1. maí mótinu Keilufélag Suðurnesja hélt keilumót á 1. maí. Spilað var í einum flokki með forgjöf. Últ'ar Sigurðsson bar sigur úr býtum með 629 stig. Annars urðu úrslitin þessi: 1. Úlfar Sigurðsson.........629 2. Jón ÓlafurÁmason.......612 3. Danelíus Hansson........605 4. Ingiber Óskarsson.......594 5. Gunnlaugur Hafsteinsson...587 6. Gísli Brynjólfsson......586 Danelíus átti hæsta leikinn, 199. Tvíkeila: Ólafur með stúrleik Ólafur Sólmundar var aldeilis í stuði í tvíkeilunni. Hann náði sínum hæsta leik frá upphaft, fékk samtals 569 stig. Það kom þó fyrir ekki að hann næði sigri, því Theódóra Pétursdóttir og Steinar Hjartarson sigruðu í tvíkeilunni. TÍieódóra skoraði 507 stig og Steinar 503, eða alls 1010. Olafur og Jón Ólafur Árnason höfnuðu í öðru sæti, með 966 stig. Ólafur átti hæsta leikinn. 200.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.