Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.05.1991, Blaðsíða 19

Víkurfréttir - 08.05.1991, Blaðsíða 19
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VÍÐIR 19 Víkurfréttir 8. maí 1991 Stjórn Víðis Stjóm Knattspymufélags- ins Víðis skipa eftirtaldir aðilar. Formaður er Sig- urður Gústafsson, varaformað- ur Jónatan Ingimarsson, ritari Jón Ögmundsson og gjaldkeri Heiðar Þorsteinsson. Með- stjómendur eru Astþór Sig- urðsson, Guðmundur Knútsson, Matthildur Ingvarsdóttir og Halldór Einarsson. LEIKIR VÍDISÍ SUMAR 1. UMFERÐ VÍÐIR - KR mánudaginn 20. maí kl. 20 2. UMFERÐ ÍBV - VÍÐIR fimmtudaginn 30. maí kl. 20 3. UMFERÐ VÍÐIR - UBK laugardaginn 8. júní kl. 14 4. UMFERÐ STJARNAN - VÍÐIR miðvikudaginn 12. júní kl. 20 5. UMFERÐ VÍÐIR - FRAM miðvikudaginn 19. júníkl. 20 6. UMFÉRÐ KA - VÍÐIR þriðjudaginn 25. júní kl. 20 7. UMFERÐ VÍÐIR - VALUR sunnudaginn 30. júní kl. 20 8. UMFERÐ VÍÐIR - FH Fimmtudaginn 4. júlí kl. 20 9. UMFERÐ VÍKINGUR R. - VÍÐIR sunnudaginn 14. júlíkl. 20 10. UMFERÐ KR - VÍÐIR mánudaginn 22. júlí kl. 20 11. UMFERÐ VÍÐIR - ÍBV sunnudaginn 28. júlí kl. 20 12. UMFERÐ UBK - VÍÐIR miðvikudaginn 31. júlfkl. 20 13. UMFERÐ VÍÐIR - STJARNAN sunnudaginn 11. ágúst kl. 19 14. UMFERÐ FRAM - VÍÐIR miðvikudaginn 14. ágúst kl. 19 15. UMFERÐ VÍÐIR - KA mánudaginn 19. ágúst kl. 19 16. UMFERÐ " VALUR - VÍÐIR laugardaginn 31. ágúst kl. 14 17. UMFERÐ " FH - VÍÐIR laugardaginn 7. sept. kl. 14 18. UMFERÐ VÍÐIR - VÍKINGUR R. laugardaginn 14. sept. kl. 14 Einu fulltrúar Suðurnesja í 1. deild, Víðir. Myndin var tekin eftir að liðið tryggði sér sigur í 2. dcildinni í fyrra. Ljósm.: hbb Steinar Ingimundarson: „Náum stigi í fyrsta leik“ Daníel Einarsson: „Þetta verður jöfn deildar- keppni“ / g á von á því að keppnin í deildinni í sumar eigi eftir að vera nokkuð jöfn, þó svo stóm Reykjavíkurfélögin eigi eftir að sýna nokkra sérstöðu. Það er gaman að vera kominn í 1. deildarslaginn að nýju eftir þriggja ára fjarveru og við strákarnir emm ákveðnir í að gera okkar besta“. -Nú hefur liöinu gengið afleitlega í vorleikjunutn. Hvaða skýring er á því? „Vorleikimir gefa alls ekki rétta mynd af Víðisliðinu. þar sem í liðið hefur vantað niarga af sterkari leikmönnum liðs- ins. Meiðsli hafa verið að hrjá mannskapinn. en ég á ekki von á öðru en við komum í topp- formi í deildarslaginn. Ef liðsandinn verður góður í sumar og við náum að sýna baráttu, þá á ég von á því að þegar upp verður staðið verður liðið um miðja deildina," sagði Daníel að endingu. Steinar Ingimundarson hóf að leika með Víðismönnum á síðasta keppnistímabili, en hann gekk til liðs við knattspyrnuna í Garði úr KR. Hann var spurður út í það hverjir væru möguleikar Víðis gegn KR í fyrsta leik sumarsins. „KR-liðið er orðið mun sterkara heldur en þegar Víðismenn léku síðast í 1. deild. Ég er hins vegar ekkert hræddur við liðið og á allt Okkur hefur gengið vel með KR-ingana hingað til. Við töpuðum að vísu vígslu- leiknum gegn þeim hér á grasinu í Garðinum fyrsta árið sem við vor- um í 1. deild fyrir sex árum, en síð- an þá höfum við ekki tapað leik gegn þeim í Islandsmótinu og hvers vegna ættum við að fara að breyta því nú? Þetta er kannski engin óska- byrjun að fá KR í fyrsta leik og ég hefði alveg viljað fá eitthvað lakara lið í fyrstu viðureign sumarsins. Við munum mæta hressir og kátir í eins von á því að við náum af þeim stigi eða stigum í fyrsta leik fs- landsmótsins". -Hverju viltu spá um frant- vindu sumarsins? „Stóru Reykjavíkurfélögin þrjú eiga eftir að skera sig svolítið úr keppninni, en hin félögin eiga eftir að sigla í kjölfarið í einum hnapp,“ sagði Steinar. þennan leik og leika til sigurs,“, sagði Guðjón Guðmundsson fyr- irliði. „Það má alveg búast við því að þetta verði barningur t' sumar. Ég held að deildin skiptist í tvennt og það er spurning hvað liðin í neðri hlutanum ná að klóra mörg stig af sterkari félagsliðunum. Við gerum okkur grein fyrir því hvað við erum að fara út í og ef við höfnum fyrir ofan miðja deild þegar lokaúrslit sumarsins eru ljós, þá verðum við hæstánægðir með það,“ sagði Guð- jón Guðmundsson að endingu. Guöjón Guðmundsson, fyrirliöi: „Okkur hefur gengið vel með KR-ingana“ ÓSKAR INGIMUNDARSON, ÞJÁLFARI VÍÐIS: „Agætt að Ijúka erfiðari leikjunum strax“ / g held að menn geti verið sammála um það að þetta er erfið byrjun á Islandsmót- inu að taka á móti einu sterkasta liði deildarinnar í fyrsta leik. Við mun- um síðan sækja Eyjamenn heim í öðrum leik og þar má búast við að Vestmannaeyingar verði eins og grenjandi Ijón. Hins vegar tel ég það ágætt að ljúka hinum erfiðari leikjum strax og það mun gefa strákunum nokkuð góða mynd af því hvemig þeir standa,“ sagði Óskar í samtali við blaðið. -Hvcrnig lýst þjálfnranum á sumarið í heild? „Það er ómögulegt að spá nokkru. Þarna eru þó nokkur lið sem eru ekki eins sterk og ég hafði haldið í fyrstu, en einnig eru þarna mjög sterk lið. Eftir að hafa skoðað deildarliðin nú á vormánuðum þá hef ég þá til- finningu að Valur, KR og Fram hafa möguleika á að stinga önnur fé- lagslið af, en annars verði deildin nokkuð jöfn. Það þarf lítið útaf að bregða til þess að við missum af lestinni og á sama hátt getur þurft lítið til þess að við höldum í við risana. Það er hins vegar erfitt að spá. Fólk má þó alveg vita það að við erum staðráðnir í að verja sæti okkar í 1. deild., enda væri allt annað aumingjaskapur,“ sagði Óskar Ingimundarson að endingu. ÖLL MÖRKIN MYNDUÐ Viðar Oddgeirsson, kvikmyndatökumaður Sjónvarpsins á Suð- urnesjum, hefur fengið það verkefni að mynda öll mörk sem skoruð verða í Garðinum í sumar. íþróttadeild Sjón- varps hefur hug á að reyna að ná öllum mörkum sumarsiris í 1. deild á mynd. Þessi samningur hefur það í för með sér að nú er „slegisl" um auglýsingapláss við völl- inn í Garði og herma fregnir að þegar sé búið að selja aug- lýsingar meðfram báðum hliðum knattspyrnuvallarins. Björn Vilhelmsson: „Fyrsti leik- urinn verður erfiður“ Fyrsti leikur deildarinn- ar gegn KR verður okkur erfiður, enda erum við þar að eiga við sterkasta lið fyrstu deildar sem ég spái að standi uppi sem Islandsmeistarar þegar deildarkeppninni lýkur“, sagði Björn Vilhelmsson í samtali við blaðamann. „Ég hef trú á því að við eigum eftir að spjara okkur í surnar ef samstaðan verður góð innan hópsins. Ég óttast það helst að Víðisliðið sé ekki í nógu góðri æfingu, þar sem töluvert hefur verið um meiðsli í okkar hóp. Þetta fer kannski hægt af stað hjá okk- ur, en iagast örugglega strax í fyrstu leikjunum". -Verður þetfa skemmti- legt knattspyrnusumar? „Knattspymuáhugamenn eiga eftir að sjá skemmtilega knattspymu í sumar. Ég á von á því að deildin eigi eftir að skiptast í tvo hluta, þ.e. topp og botnbaráttu. Við munum koma til með að vera um miðja deild og okkar stuðn- ingsmenn eiga ekki að þurfa að verða fyrir vonbrigðum. Ég vona að Suðurnesja- menn komi og standi við bak- ið á okkur, því við höldum uppi heiðri knattspyrnunnar á Suðurnesjum," sagði Björn Vilhelmsson að endingu.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.