Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 8. D E S E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 296. tölublað 103. árgangur
SKÁLDIÐ Á
BRÝNT ERINDI
VIÐ SAMTÍÐ SÍNA FRAMTÍÐIN ER FYNDIN
12 SÍÐNA
SÉRBLAÐ UM
HERRAMENN
LEITIN AÐ TILGANGI UNGLINGSINS 10 ILMANDI HERRATÍSKAVIÐ LANDAMÆRI 43
Um 400-500 manns mættu þegar flóðljós fótboltavallar Valsmanna að Hlíð-
arenda voru vígð og þar með völlurinn í heild sinni. Að gefnu tilefni brá
unga kynslóðin á leik á upplýstum vellinum. Kjöraðstæður eru nú til fót-
boltaiðkunar á vellinum allan ársins hring en gervigrasið er upphitað.
Valsmenn vígðu flóðljós og völlinn í leiðinni
Morgunblaðið/Golli
Útlendingastofnun hafa á þessu
ári borist umsóknir fjögurra ein-
staklinga með ríkisfang í Banda-
ríkjunum og Kanada um hæli hér á
landi. Kristín María Gunnarsdóttir,
staðgengill forstjóra Útlendinga-
stofnunar, segir búið að afgreiða
þrjár þessara umsókna, en til þessa
hafa einstaklingar frá þessum ríkj-
um ekki fengið hæli á Íslandi.
Alls hafa einstaklingar með ríkis-
fang í fjórum ríkjum sem eru á lista
stofnunarinnar yfir örugg ríki lagt
inn umsókn á árinu eða eiga um-
sókn í vinnslu. »4
Íbúar öruggra ríkja
sækja um hæli hér
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
skipulagsmála komst að þeirri nið-
urstöðu í gær að deiliskipulag á flug-
vallarsvæðinu í Vatnsmýrinni, sem
samþykkt var á síðasta ári, væri ógilt
vegna formgalla í málsmeðferð.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir að niðurstaða nefndarinnar
breyti í engu áformum á Hlíðarenda-
svæði og breyti jafnframt engu um
fyrirhugaða lokun flugbrautar á
Reykjavíkurflugvelli. „Þetta varðar
deiliskipulag Reykjavíkurflugvallar
en ekki þeirrar uppbyggingar sem
er í gangi á Hlíðarendasvæði […]
Þetta breytir því ekki að innanrík-
isráðuneytið þarf að leggja niður
þriðju flugbrautina,“ segir Dagur.
Ekkert samband
ByggáBirk, hagsmunasamtök eig-
enda bygginga á Reykjavíkurflug-
velli, lagði fram kæruna. „Borgin
hefur hunsað okkur sem erum með
eignir á svæðinu. Það hefur aldrei
verið haft samband við okkur eins og
lög gera ráð fyrir,“ segir Alfhild Peta
Nielsen, formaður samtakanna. »4
Deiliskipulag flugvallar
gert ógilt í úrskurðarnefnd
Breytir ekki áformum í Vatnsmýrinni, segir borgarstjóri
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugvöllur Deiliskipulagið var úr-
skurðað ógilt í nefndinni.
Tækifærin leynast á vefsíðunni
LinkedIn, bæði fyrir þá sem leita að
nýju starfi og þá sem vantar starfs-
fólk. Þetta segir Hjalti Rögnvalds-
son, sérfræðingur í markaðs-
setningu á netinu hjá Íslandsbanka.
Hann bendir þó á að lykilatriði sé
að vera með uppfærða ferilskrá og
nýja mynd fyrir þá sem afla upplýs-
inga gegnum vefinn. »18
Nota LinkedIn til að
leita að starfsfólki
Launakostnað-
ur íslenskra
sveitarfélaga
mun hækka um
21,1 milljarð
2015 og 2016 en
skatttekjurnar
aukast um 27,9
milljarða.
Þetta kemur
fram í úttekt
Sambands íslenskra sveitarfélaga
sem gerð var að beiðni Morgun-
blaðsins. Karl Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga, segir kjarasamninga
og endurskoðun á starfsmati helstu
skýringar þess að launakostnaður-
inn er á uppleið. »12
Auknar skatttekjur
fara að mestu í laun
Karl Björnsson
6
GLUGGAR TIL JÓLA
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ásmundur Friðriksson alþingis-
maður leggur til að fengnir verði
óháðir sérfræðingar í sandhöfnum
til að meta stöðuna í Landeyjahöfn.
Farið verði í gegnum það hvað
þurfi að gera til að hún verði heils-
árshöfn fyrir ferjusiglingar. Ef nið-
Sérfræðingar meti höfnina
urstaðan verði að það sé ekki hægt
þurfi að smíða ferju sem einnig
henti til siglinga til Þorlákshafnar
að vetri.
„Menn hafa verið að vaða þarna
áfram án þess að á bak við það
væru nákvæmar rannsóknir. Eftir
að hafa grafið fyrir rúma tvo millj-
arða eru menn ekkert betur stadd-
ur en áður,“ segir Ásmundur.
Steinar Magnússon, fyrrverandi
skipstjóri á Herjólfi, segir að lítið
gagn sé í nýju skipi nema aðkoman
að Landeyjahöfn sé bætt. Lengja
þurfi hafnargarðana og þó að það sé
dýr framkvæmd, þá sé hún fljót að
borga sig ef eyða þurfi hálfum millj-
arði á ári í dýpkun hafnarinnar.
Þingmaður vill óháða sérfræðinga í sandhöfnum til að meta Landeyjahöfn
MLandeyjahöfn verði metin »6
Landeyjahöfn
» Hönnun nýrrar Vest-
mannaeyjaferju er lokið.
» Rætt er um að bjóða smíði
skipsins út fyrir áramót.