Morgunblaðið - 18.12.2015, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Hæstiréttur dæmdi í gær að Sýrlend-
ingur, sem framvísaði fölsuðu vega-
bréfi við komu til Íslands, skuli ekki
sæta refsingu.
Héraðsdómur Reykjaness hafði áð-
ur dæmt manninn í 30 daga fangelsi í
samræmi við dóma, sem áður hafa
fallið í svipuðum málum.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar
að maðurinn, sem er 43 ára gamall
sýrlenskur ríkisborgari, framvísaði
albönsku vegabréfi með nafni annars
manns þegar hann kom hingað til
lands í apríl frá París.
Í framhaldi af því var gerð leit í far-
angri hans og fundust ýmis gögn á ar-
abísku með öðru nafni. Þegar gengið
var á manninn tók hann upp úr jakka-
vasa sýrlenskt vegabréf á sínu nafni.
Sagðist hann eiga systur á Íslandi og
hefði ætlað að koma inn í landið, hitta
systur sína og gefa sig svo fram og
sækja um hæli sem flóttamaður.
Maðurinn afplánaði fangelsisrefs-
inguna sem héraðsdómur dæmdi
hann í en áfrýjaði samt dómnum.
Hann hefur síðan fengið hæli hér á
landi og dvalarleyfi til fjögurra ára.
Hæstiréttur vísar til þess að sam-
kvæmt ákvæði alþjóðasamnings um
stöðu flóttamanna, sem íslenska ríkið
gerðist aðili að 30. nóvember 1955,
skuli aðildarríkin ekki beita refsingu
gagnvart flóttamönnum vegna ólög-
legrar komu þeirra til landsins ef þeir
koma beint frá landi, þar sem lífi
þeirra eða frelsi hafi verið ógnað,
enda gefi þeir sig tafarlaust fram við
stjórnvöld og beri fram gildar ástæð-
ur fyrir ólöglegri komu sinni. Samn-
ingurinn hafi hins vegar ekki lagagildi
hér á landi og í ljósi þess að maðurinn
játaði að hafa framvísað fölsuðu vega-
bréfi er sakfelling hans staðfest.
Við ákvörðun refsingar mannsins
sé hins vegar unnt að taka tillit til
samningsins í ljósi þeirrar megin-
reglu íslensks réttar að leitast skuli
við að skýra lög til samræmis við
þjóðréttarskuldbindingar ríkisins. Í
því sambandi verði að gæta að því að
samkvæmt málflutningi af hálfu
ákæruvaldsins fyrir Hæstarétti sé
ekki dregið í efa að telja megi mann-
inn til flóttamanna og að lífi hans eða
frelsi hafi verið ógnað. Því sé ekki rétt
að gera honum refsingu.
Ekki refsað fyrir falsað vegabréf
Hæstiréttur taldi
manninn hafa stöðu
flóttamanns
Leifsstöð Vegabréfaskoðun.
Hollvinir eikarbátsins Húna II EA-740 buðu í
gærkvöldi til skötuveislu um borð í bátnum, sem
legið hefur við Torfunefsbryggju á Akureyri.
Alls mættu um 80 manns og reiknað er með öðr-
um eins fjölda í kvöld, þegar seinni hluti veisl-
unnar fer fram. Auk þess að bjóða velunnurum
Húna í skötuna fékk hollvinafélagið glaðning frá
fyrirtækinu Blikkrás til að hafa upp í rekstur og
viðhald bátsins. Skatan var soðin uppi á dekki,
með tjaldi yfir, og um soðninguna sáu þeir Karl
Steingrímsson og Gylfi Guðmarsson, sem fylla
hér kampakátir á eitt fatið.
Reiknað með alls 160 manns í skötuveislu um borð í Húna II við Torfunefsbryggju á Akureyri
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Hollvinir Húna taka forskot á Þorláksmessusæluna
Framkvæmdaaðilar bera allan
kostnað við verndun hafnargarðs á
Austurbakka. Þetta kemur fram í yf-
irlýsingu frá Minjastofnun í nafni
Kristínar Huldar Sigurðardóttur,
forstöðumanns Minjastofnunar.
Ástæðan er frétt sem birtist á Vísi
um að áætlaður kostnaður við að
færa hafnargarðinn sé hálfur millj-
arður króna. Segir þar eftir for-
stjóra fyrirtækisins Landstólpa að
ríkið verði krafið um bætur vegna
þessa.
Í yfirlýsingu Minjastofnunar segir
hins vegar að fyrirtækið geti ekki
hafa talist eiga lögmætar væntingar
um að geta byggt á lóðinni án þess
að í ljós komi menningarminjar sem
kunni að verða verndaðar. Þá segir
að í samkomulagi Minjastofnunar og
Landstólpa sé ekki að finna nein
ákvæði um að kostnaður falli á ríkið.
Kostnaður ríkisins af samkomu-
laginu er því enginn að undan-
skildum launakostnaði starfsmanna
við eftirlit með verkefninu.
Morgunblaðið/Golli
Hafnargarður Ríkið mun ekki bera
kostnað af því að færa garðinn.
Engin ákvæði
um kostnað
fyrir ríkið
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Niðurskurðaraðgerðir eru ekki á
teikniborðinu hjá stjórnendum
Ríkisútvarpsins þrátt fyrir að gert
sé ráð fyrir því að útvarpsgjald lækki
úr 17.800 kr. niður í 16.400 kr. fyrir
árið 2016. Lækkun útvarpsgjaldsins
gæti haft í för með sér tekjumissi
RÚV sem nemur tæpum 500 millj-
ónum kr., og er jafnframt reiknað
með því að RÚV verði af auglýsinga-
tekjum þar sem skera þurfi niður í
dagskrárgerð.
Þetta kom fram í svörum stjórn-
enda og fjögurra stjórnarmanna
Ríkisútvarpsins, sem kallaðir voru
fyrir fjárlaganefnd í gærkvöld.
Fundurinn var opinn fjölmiðlum
þegar málefni RÚV voru tekin fyrir,
en afar sjaldgæft er að fundir fjár-
laganefndar séu opnir fjölmiðlum.
Hallarekstri verið snúið við
Í svörum RÚV kom fram að
stjórnendur og stjórnarmenn hafi
margoft fengið þau skilaboð frá Ill-
uga Gunnarssyni menntamálaráð-
herra að framlög til RÚV yrðu
óbreytt á milli ára. „Við vinnum mið-
að við það,“ sagði Magnús Geir Þórð-
arson útvarpsstjóri. Þó kom það
fram í svörum bæði Magnúsar og
Guðlaugs G. Sverrissonar, stjórnar-
formanns RÚV, að hallarekstri fé-
lagsins hefði verið snúið við á undan-
förnum árum og hefði reksturinn
verið jákvæður á síðasta ári og í slíkt
hið sama stefni í ár.
Í svörum kom fram að ef til niður-
skurðar komi vinni stjórnendur að
því að reka RÚV án halla, en niður-
skurðurinn kæmi fyrst og fremst
niður á dagskrárgerð og kjarnaþjón-
ustu sökum mikils niðurskurðar í
allri umgjörð á undanförnum árum.
„Það verður erfitt verk að velja og ég
er sannfærður um að margir myndu
sjá eftir ýmsu sem þyrfti að fara út,“
sagði Magnús og bætti við að
mennta- og menningarmálaráðherra
hugnaðist ekki sú mynd sem blasti
við eftir slíkan niðurskurð.
Ekki farin að huga að niðurskurði
Stjórnendur RÚV boðaðir á fund fjárlaganefndar Unnið samkvæmt óbreyttu framlagi á milli ára
„Sannfærður um að margir myndu sjá eftir ýmsu,“ segir útvarpsstjóri um fyrirhugaðan niðurskurð
Morgunblaðið/Styrmir Kári
RÚV Stjórnendur og stjórnarmenn RÚV voru boðaðir á fund fjárlaganefnd-
ar Alþingis í gær. Gengið er út frá því að framlög haldist óbreytt milli ára.