Morgunblaðið - 18.12.2015, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 2015
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
skadi.is
Þ. Skorri Steingrímsson,
Héraðsdómslögmaður
Steingrímur Þormóðsson,
Hæstaréttarlögmaður
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Árni Páll Árnason, formaðurSamfylkingarinnar, nýtir
hvert tækifæri til að reyna að end-
urvinna það traust sem hann hefur
glatað. Eðlilega hvílir þungt á
mönnum að sitja aðeins í krafti eins
atkvæðis og þegar þannig háttar til
er sennilega skiljanlegt að menn
vitni helst í skoðanakannanir máli
sínu til stuðnings.
Ekki er það þóvænlegt til ár-
angurs, því að það
er ekki síst eltinga-
leikur við þær sömu
kannanir sem hafa
kostað Árna Pál
traustið og Sam-
fylkinguna fylgið.
Nýjasta dæmið um vandræða-ganginn í kjölfar traustsmiss-
isins kom fram í atkvæðaskýring-
um um miðnætti í fyrrakvöld. Þá
reyndi Árni Páll að útskýra hvers
vegna það sem eftir er af flokki
hans væri nú á móti því að hafa
heimildarákvæði um sölu á hlut í
Landsbankanum í fjárlögum næsta
árs.
Hann sagði flokkinn hafa stuttþetta á síðasta kjörtímabili,
en ekki nú, þar sem stjórnarflokk-
unum væri ekki treystandi, og svo
leiddi hann talið út í skoðanakann-
anir eins og við var að búast.
En það er ekki aðeins að skoð-anakannanaröksemdin sé
aum. Hin röksemdin, um að ríkis-
stjórn Jóhönnu og Steingríms hafi
verið treystandi fyrir bankasölu, er
jafnvel aumari.
Sú stjórn einkavæddi bankana íhendur erlendum kröfuhöfum.
Getur verið að fyrrverandi stjórn-
arliðar sjái ekkert athugavert við
málflutning eins og þann sem Árni
Páll bauð upp á?
Árni Páll Árnason
Hann treystir sér
til að meta traust
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 17.12., kl. 18.00
Reykjavík 3 alskýjað
Bolungarvík -5 skafrenningur
Akureyri -2 snjókoma
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 10 skúrir
Ósló 0 skúrir
Kaupmannahöfn 8 þoka
Stokkhólmur 2 skúrir
Helsinki 2 skúrir
Lúxemborg 12 skýjað
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 12 alskýjað
London 15 léttskýjað
París 13 heiðskírt
Amsterdam 12 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 3 súld
Moskva -7 heiðskírt
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 8 léttskýjað
Winnipeg -8 snjókoma
Montreal 6 skúrir
New York 14 skúrir
Chicago 0 alskýjað
Orlando 25 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
18. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:20 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:07 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:51 14:34
DJÚPIVOGUR 10:59 14:50
Hæstiréttur
dæmdi í gær
karlmann í hálfs
árs skilorðs-
bundið fangelsi
og til að greiða
stúlku 250.000
krónur í skaða-
bætur fyrir kyn-
ferðisbrot.
Í dómnum kemur fram að stúlkan
hafi verið úti að skemmta sér ásamt
vinkonu sinni. Vinkonan bauð mann-
inum, sem þær þekktu báðar, heim
með sér. Stúlkurnar sváfu saman í
rúmi í svefnherbergi en vinkonan
bauð manninum að gista á sófa.
Stúlkan sagðist síðan hafa vaknað
við það að maðurinn lá við hliðina á
henni í rúminu. Hann hefði káfað á
rassi hennar og lærum utanklæða á
meðan hann fróaði sér. Lét hann
ekki af því athæfi þrátt fyrir að hún
reyndi að ýta honum af sér.
Maðurinn sagðist, í yfirheyrslu
hjá lögreglu, ekki minnast þess að
þetta hefði gerst og fyrir dómi neit-
aði hann sök. Hann hefði ekki hug-
mynd um hvernig ásakanirnar á
hendur honum væru komnar fram.
Dæmdur
fyrir kyn-
ferðisbrot
Refsingin skilorðs-
bundin í Hæstarétti
Mesti annatími ársins er hjá Póst-
inum um þessar mundir og hefur
verið bætt við um 250 til 300 starfs-
mönnum til þess að bregðast við
auknu álagi, að sögn Brynjars
Smára Rúnarssonar, forstöðumanns
markaðsdeildar Póstsins.
Til þess að tryggja að jólakort og
jólapakkar berist til viðtakenda fyr-
ir jól gefur Pósturinn út upplýs-
ingar um síðustu skiladaga. Þeir
eru flestir liðnir en síðasti skil-
greindi, öruggi skiladagurinn vegna
sendinga á jólapökkum innanlands,
jólakortum í A pósti innanlands og
TNT til Evrópu er á mánudag, 21.
desember. „Það er stærsti skiladag-
urinn okkar,“ segir Brynjar Smári.
Mikil örtröð hefur verið á póst-
húsum undanfarna daga en við-
skiptavinir hafa tekið henni með
æðruleysi. Undanfarin ár hafa
landsmenn sent um 2,5 milljónir
jólakorta á ári. Brynjar Smári segir
að Pósturinn leggi áherslu á að
reyna að koma öllum sendingum á
áfangastað fyrir jól. Unnið verði við
flokkun allan sólarhringinn um
helgina og pakkar verði afhentir til
klukkan 14 á aðfangadag. „Við
reynum að koma öllu til skila fyrir
jól,“ segir hann.
Mesti annatíminn hjá Póstinum
Bætt hefur verið við um 250 til 300
starfsmönnum til að mæta álaginu
Morgunblaðið/Golli
Póstur Landsmenn senda um 2,5
milljónir jólakorta í pósti.